Skessuhorn - 06.04.2016, Qupperneq 1
Fimmtudaginn 14. apríl næstkom-
andi munu um 700 ungmenni í
8.-10. bekk grunnskólanna á Vest-
urlandi leggja land undir fót og
mæta á Tæknimessu 2016, sem
haldin verður í Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi. „Með
Tæknimessunni viljum við að
ungmennin kynnist kröftugum
iðnfyrirtækjum á Vesturlandi,
hversu miklir möguleikar eru á
góðum störfum innan atvinnu-
greinarinnar og hvaða iðnnám er
í boði við Fjölbrautaskóla Vest-
urlands. En ekki síður viljum við
kynna fyrir gestum okkar hversu
stór og öflugur iðnaðurinn er á
Vesturlandi,“ segir í kynningu
frá verkefnisstjórn um Tækni-
messu 2016.
Með Skessuhorni í dag fylgir
átta síðna sérblað þar sem
Tæknimessan er kynnt. Blað-
ið er því sent sérstaklega heim
til nemenda á elsta stigi grunnskól-
anna. mm
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 14. tbl. 19. árg. 6. apríl 2016 - kr. 750 í lausasölu
Skessuhorn forsíðuborði
Nýtt útibú í Borgarnesi
opnar föstudaginn �. apríl
Coldfri munnúði
Fluconazol
ratiopharm
- við kvefi og hálsbólgu
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
Síðustu sýningar
vetrarins
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Egilssögur, í tímahylki
tals og tóna
Föstudagur 15. apríl kl. 20
Laugardagur 16. apríl kl. 20
MR. Skallagrímsson
Laugardaginn 9. apríl kl. 20
LANDNÁMSSETur Íslands
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Gagngerar endurbætur hafa staðið yfir á húsnæði kaþólsku kirkjunnar í
Stykkishólmi undanfarin ár. Gömlu leikskólabyggingunni og systrahúsinu hefur
verið breytt í hótel og menningarmiðstöð. Kapellan og íbúðir prestanna hafa
einnig verið endurnýjaðar. Síðastliðinn föstudag var kirkjan svo vígð og blessuð
að endurbótum loknum, sem og önnur húsakynni Hótel Fransiskus. Sjá nánar á
bls. 12. Ljósm. Eyþór Benediktsson.
Ástandið undanfarna viku eða
svo í stjórnmálunum hér á Íslandi
hefur verið miklu líkara efnistök-
um í þætti ítalskrar sápuóperu en
bláköldum raunveruleikanum. Í
örstuttu máli má skýra ástandið
út á þann veg að um miðja síð-
ustu viku byrjaði að kvisast út að
væntanlegur væri þáttur í sjón-
varpi þess efnis að upplýsa ætti
um hundruð nafna einstaklinga
í fjölmörgum löndum sem ættu
félög í erlendum skattaskjólum.
Kastljósþátturinn var sýndur á
RUV klukkan 18 á sunnudag-
inn og á sama tíma þættir í er-
lendum sjónvarpsstöðvum sem
byggðu allir á upplýsingar um
gagnaleka frá fyrirtæki í Panama
sem fóstrar skúffufyrirtæki auð-
manna. Nafn Sigmundar Dav-
íðs Gunnlaugssonar forsætis-
ráðherra var meðal þeirra sem
kom upp auk nafna fleiri þjóð-
höfðingja og fjölmargra annarra
stjórnmálamanna, íþróttamanna
og misþekktra persóna. Með-
al annars voru nöfn ráðherranna
Bjarna Benediktssonar og Ólaf-
ar Nordal nefnd auk fjögurra nú-
verandi og fyrrverandi borgar-
fulltrúa í Reykjavík. Talið er að
um stærsta einstaka gagnaleka sé
að ræða frá upphafi frá erlendu
skúffufyrirtæki.
Í kjölfar sýningar á þáttun-
um hér heima og erlendis má
segja að fjölmiðlar hafi logað og
brátt varð ljóst að stjórnarsam-
starf Framsóknar- og Sjálfstæðis-
flokks væri í uppnámi og að téðar
upplýsingar myndu reyna á lang-
lundargeð þegna þessa lands. Á
mánudag var svo boðað til eins
fjölmennasta útifundar frá upp-
hafi á Austurvelli í Reykjavík, þar
sem krafist var afsagnar forsæt-
isráðherra og ríkisstjórnarinn-
ar í heild. Í gær, þriðjudag, sagði
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
formaður Framsóknarflokks af
sér sem forsætisráðherra. Afsögn
Júlíusar Vífils Ingvarssonar borg-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins lá
þá einnig fyrir. Síðdegis í gær
þegar Skessuhorn fór í prentun
stóð til að láta reyna á í viðræð-
um hvort ríkisstjórnin héldi velli
með því að munstra Sigurð Inga
Jóhannsson atvinnuvegaráðherra
í forsætisráðuneytið. Engan veg-
inn var þó orðið skýrt hvort af því
yrði eða hvort samstarfsflokkur-
inn í ríkisstjórn samþykkti þá
málaleitan. Stjórnarandstaðan
var í það minnsta ekki sátt. Þessi
atburðarás öll hefur sýnt að vika
getur verið löng í pólitík. Mik-
il ólga er í íslensku samfélagi og
fullkomlega óvíst hvernig lyktir í
þessum málum öllum verða.
mm
Forsætisráðherra sagði af sér
Sérblað um Tæknimessu 2016
Það var ekki bara mannfólkið
sem lét það eftir sér að taka gott
páskafrí að þessu sinni. Haninn á
bænum Hvítadal í Dölum lét sig
ekki muna um minna en vikufrí frá
hænsnakofanum nú um páskana.
Ragnheiður Pálsdóttir bóndi í
Hvítadal taldi hanann horfinn fyr-
ir fullt og allt og höfðu þau hjón-
in grunað hvolpinn á bænum um
græsku, enda hafði sést til hans
með fiður í munnvikum um það
leyti sem haninn hvarf að heim-
an. Það kom því Ragnheiði mjög
á óvart þegar hún fylgdist með
hananum vappa rösklega heim af-
leggjarann og alveg heim að dyr-
um á fimmtudaginn í síðustu viku.
Það var ekki að sjá annað en að
haninn kæmi hinn hressasti heim
úr fríinu og þurfti meira að segja
nokkrar tilraunir til að ná honum
á ný inn í hænsnakofann sinn, en
það tókst þó að lokum. Engum
sögum fer hins vegar af hvar han-
inn dvaldi í fríinu.
sm
Haninn fór í páskafrí
Haninn kominn heim.
Ljósm. Ragnheiður Pálsdóttir.