Skessuhorn - 06.04.2016, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2016 5
veitur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
6-
10
96
Eingöngu er tekið á móti umsóknum starf.or.is/veitur/
Nánari upplýsingar
starf@veitur.is.
Umsóknarfrestur
Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um
Við leitum að
starfskrafti sem er:
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Næstkomandi laugardag verður
blásið til Mýraeldahátíðar í Faxa-
borg í Borgarnesi. Er það Búnaðar-
félag Mýrarmanna sem stendur fyrir
hátíðinni, sem haldin er annað hvert
ár og fer hún núna fram í fimmta
skipti. Að sögn Sigurjóns Helgason-
ar á Mel, formanns búnaðarfélagsins
og eins skipuleggjenda, verður há-
tíðin einkar vegleg að þessu sinni, en
bændur á Mýrum minnast þess í ár
að áratugur er liðinn síðan eldarnir
loguðu.
„Við ætlum að halda stóra og
mikla hátíð í ár vegna tíu ára afmæl-
isins. Ákváðum við að flytja hana í
Faxaborgina í Borgarnesi því við eig-
um von á að hún verði vel sótt,“ seg-
ir Sigurjón í samtali við Skessuhorn.
Hann bætir því við að hátíðin hafi
þegar verið um það bil að sprengja
Lyngbrekku utan af sér, en þar hefur
hún verið haldin fram að þessu. Þar
sem hátíðin er einkar stór í ár hafi
þeir talið ráðlegt að flytja dagskrána
að hluta í stærra húsnæði. Kvöldvaka
hátíðarinnar með dansleik mun engu
að síður fara fram í Lyngbrekku og
hefst hún klukkan 21.
Í Faxaborg lofar Sigurjón lifandi
dagskrá allan daginn frá klukkan 13
til 17:30. Meðal annars munu fé-
lagar úr Félagi ungra bænda verða
með sprell og Karlakórinn Söng-
bræður ætlar að taka lagið. „Svanur
í Dalsmynni verður með sýningu á
smalahundum og ég á von á félögum
úr Fornbílafjelagi Borgarfjarð-
ar, svo hægt verður að skoða gamla
bíla. Einnig verður markaður, grill-
að nautakjöt og smakk og Jóhanna
á Háafelli mun kynna geitaafurðir,
svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Sigurjón,
en áhugasömum er bent á að dag-
skrá hátíðarinnar er auglýst í Skessu-
horni vikunnar. „Við í búnaðarfélag-
inu hvetjum alla til að mæta og gera
sér glaðan dag með okkur. Til þess
er hátíðin gerð. Við viljum gera eitt-
hvað skemmtilegt saman og kynna
landbúnaðinn í leiðinni. „Hafa gam-
an saman,“ eins og stundum er sagt,“
segir Sigurjón að lokum.
kgk
Stærsta hátíðin til þessa á tíu ár
afmæli Mýraeldanna
Meðal þess sem í boði verður á hátíðinni er ródeó, þar sem gestum verður gefinn kostur á að kljást við Mýranautið.
Mynd úr safni.
Húsafell Resort ehf. er dótturfyr-
irtæki Ferðaþjónustunnar á Húsa-
felli og fram til þessa verið í eigu
hjónanna Bergþórs Kristleifssonar
og Hrefnu Sigmarsdóttur. Félagið
hefur nú gengið frá 1.100 milljóna
króna fjármögnun til áframhald-
andi uppbyggingar í ferðatengdri
þjónustu á Húsafelli. Jafnframt
hafa hjónin fengið nýjan hóp hlut-
hafa með sér að félaginu. Það rek-
ur nú eitt glæsilegasta hótel lands-
ins, veitingastaði, sundlaug, golf-
völl, tjaldsvæði og sumarhúsa-
byggð í rómaðri náttúrfegurð á
Húsafelli. Nú er unnið að stækk-
un Hótel Húsafells auk þess sem
sett verður á laggirnar afþreying-
armiðstöð sem veitir öðrum fyrir-
tækjum bætta aðstöðu til að bjóða
upp á afþreyingu og aukna þjón-
ustu á Húsafelli.
Fyrirtækjaráðgjöf Kviku var ráð-
gjafi eigenda Húsafells í viðskipt-
unum. Fjármögnunin var í formi
hlutafjáraukningar auk langtíma-
fjármögnunar sem Landsbanki
Íslands veitir. „Eftir viðskipt-
in hafa eigendur Húsafell Resort
ehf., þau Bergþór Kristleifsson og
Hrefna Sigmarsdóttir, fengið fé-
lög í eigu Ómars Benediktssonar,
Finns Reyrs Stefánssonar, Tómas-
ar Kristjánssonar og Jóns Diðriks
Jónssonar til liðs við sig sem 50%
hluthafa,“ segir í tilkynningu frá
Húsafell Resort ehf.
mm
Uppbygging gæða-
áfangastaðar í Húsafelli
Nýir hluthafar og endurfjármögnun
til að treysta stoðir ferðaþjónustunnar
Horft yfir skóginn og í átt að Hótel Húsafelli sem nú verður stækkað auk þess sem
byggð verður ný afþreyingarmiðstöð.