Skessuhorn - 06.04.2016, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 201616
Leiðir Daða Freys Guðjónssonar
í Borgarfirði og Mörtu Carrasco í
Mosfellsbæ lágu saman fyrir um ári
síðan. Þá hófu þau að æfa og keppa
saman í dansi, bæði Standard og
Latin dönsum og hafa síðan þá náð
frábærum árangri. Þau höfnuðu til
að mynda í öðru sæti á Íslands-
mótinu í tíu dönsum sem fram
fór fyrr í mánuðinum. Sömu helgi
kepptu þau í DSÍ Open Standard
og DSÍ Open Latin þar sem þau
gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í
Standard og hrepptu annað sætið
í Latin. Blaðamaður Skessuhorns
ræddi nýverið við dansparið Daða
og Mörtu. „Við byrjuðum að dansa
saman fyrir ári síðan, náum mjög
vel saman og stefnum að sama
markinu í dansinum,“ segja þau.
„Það gengur ekki að annað dansi
af hálfum hug, maður verður að
stefna að sama marki og dansfélag-
inn,“ segir Daði og Marta tekur
í sama streng. „Það gengur ekki
að annar dragi hinn niður,“ segir
hún.
Bæði stefna þau hátt og metnað-
urinn og ástríðan leynir sér ekki.
Þrátt fyrir að hafa aðeins dansað
saman í eitt ár eru þau annað besta
danspar landsins í tíu dönsum. Á
áðurnefndu Íslandsmóti urðu þau
að lúta í grasi fyrir aðal keppinaut-
um sínum. „Þetta eru tvö bestu
pör landsins í tíu dönsum, við og
þau. Það var mjög súrt að tapa fyr-
ir þeim á Íslandsmótinu,“ segir
Marta og þau brosa létt í bragði.
Blaðamaður opinberar fávisku sína
og fær þau til að útskýra í hvaða
tíu dönsum sé keppt í þess kon-
ar keppni. „Það eru semsagt bæði
Ballroom og Latin dansar. Ballro-
om dansarnir eru vals, tangó, Vín-
arvals, slow foxtrot og quickstep,“
segir Daði „og Latin dansarnir eru
samba, cha-cha, rúmba, pasadoble
og jive,“ bætir Marta við. Þau segja
að senn fari að líða að því að þau
velji annað hvort Ballroom eða
Latin dansa sem framtíðarkeppn-
isgreinar en þau muni þó keppa í
tíu dönsum að minnsta kosti næsta
árið. „En svo gæti alveg verið að
við förum ekkert í annað hvort
heldur höldum áfram að keppa í
tíu dönsum eftir það. Það er ein-
faldlega meiri samkeppni þegar
keppt er bara í Latin eða Ballrom
dönsum. Þá keppir maður við pör
sem gera slíkt hið sama og keppnin
verður sterkari,“ segir Marta.
Hafa bæði dansað lengi
Þrátt fyrir að Daði sé aðeins tvítug-
ur og Marta einungis 17 ára göm-
ul hafa þau bæði dansað lengi. „Ég
er búin að dansa í tíu ár. Mamma
neyddi mig í fyrsta danstímann
minn og mér fannst sko ekki gam-
an, ég vildi bara vera í fótbolta,“
segir Marta og hlær við. Eft-
ir nokkra danstíma snerist henni
þó hugur. „Skömmu síðar fékk ég
herra og síðan þá hefur mér fund-
ist þetta skemmtilegra en nokkuð
annað,“ bætir hún við. Aðspurður
kveðst Daði hafa sótt fyrsta dans-
tímann sinn á Kleppjárnsreykj-
um þegar hann var sjö ára gamall.
„Það var boðið upp á samkvæmis-
dans og mig langaði að prófa, mér
var ekkert ýtt út í dansinn,“ seg-
ir hann og brosir til Mörtu. „Ég
stundaði allar þær íþróttir sem
ég komst í og dansinn var ekk-
ert aðalatriði hjá mér,“ segir Daði
og viðurkennir að hann hafi ekki
skarað fram úr í yngri flokkunum
meðan hann lagði enn stund á aðr-
ar íþróttir. „En fljótlega síaðist allt
annað út og eftir stóð það sem mér
fannst skemmtilegast,“ bætir hann
við. Marta hefur hins vegar þótt
efnileg frá unga aldri. „Ég er búin
að vera í fremstu röð mjög lengi og
hef farið til útlanda og keppt síð-
an ég var níu ára gömul, enda varð
dansinn snemma mitt aðaláhuga-
mál og ég lagði mig alla fram þar,“
segir hún.
Dans er bæði
list og íþrótt
Aðspurð hvað þeim þyki skemmti-
legast við dansinn nefna þau að
hann sé í senn listform og íþrótt.
„Það er mikil tjáning í dansi og
dansspor við tónlist er listræn
túlkun í eðli sínu,“ segja þau. „En
á sama tíma er þetta keppni sem
reynir á líkamlega og maður þarf
að vera í griðarlega góðu formi,
bæði líkamlega og andlega og halda
góðri einbeitingu því dans byggist
rosalega mikið upp á tækni. Það á
kannski meira skylt við íþróttir en
allt tengist þetta saman í dansinum.
Það gengur ekki að vera þreytt-
ur í keppni því bæði dansar mað-
ur sporin ekki jafn vel heldur miss-
ir einbeitinguna líka og það hefur
áhrif á tjáninguna,“ segja þau.
Einnig þykir þeim gaman að
verða vör við framfarir og þau
bæta því einnig við að dansinn
geri þeim kleift að ferðast nokkuð
víða til að keppa og það þyki þeim
ánægjulegt. „Á ferðalögum kynn-
ist maður alls konar fólki og einnig
lærir maður ótrúlega mikið af því
að keppa við sterk danspör,“ seg-
ir Marta.
Dansa úti um
allan heim
Ferðalögum eru þau alls ekki ókunn,
hafa bæði keppt erlendis áður en það
eru mörg mót framundan. Frammi-
staða þeirra á mótum það sem af er
árinu hefur tryggt þeim keppnis-
rétt á bæði heims- og Evrópumeist-
aramótum og heims- og Evrópu-
bikarmeistaramótum Alþjóða dans-
íþróttasambandsins. Fyrsta mótið af
þeim er í maímánuði næstkomandi
þar sem þau munu keppa fyrir Ís-
lands hönd. „Svo erum við að fara
til Blackpool í eina sterkustu keppni
í heimi, þar sem öll flottustu pör-
in keppa og bestu dómararnir. Sú
keppni fer fram í Wintergardens,
sem er gamall Ballrom salur og það
verður lifandi undirleikur, hljóm-
sveit sem spilar undir á keppninni,“
segja þau. „Það er eitt það skemmti-
legasta við keppnina í Blackpo-
ol. Það er sérstök Blackpool-tónlist
sem er flutt lifandi,“ bæta þau við.
Á sumri komanda er förinni svo
heitið til Ítalíu á Evrópumeistara-
mótið í Latin dönsum og að því
loknu í æfingabúðir í Englandi. Þá
halda þau til Kína í september á
heimsmeistaramótið í Latin döns-
um, keppa í London í október og
á heimsmeistaramótinu í Ballro-
om dönsum í Danmörku í nóvem-
ber næstkomandi. „Það er reynd-
ar í sama mánuði og heimsmeist-
aramótið í tíu dönsum svo það er
ekki víst að við komumst á bæði,“
segja þau. Dagskráin er því væg-
ast sagt þétt og fjöldi landa verður
sóttur heim á komandi ári. Marta
segist hafa stefnt að þessu allan
sinn dansferil. „Þetta er það sem
ég sá fyrir mér, að keppa út um all-
an heim. Þetta er langskemmti-
legast af öllu sem ég geri. Það
er svo margt hægt að læra af því
að keppa um allan heim þar sem
pörin eru sterkari og samkeppn-
in meiri,“ segir hún. „Við komum
alltaf metnaðarfull heim og full
innblásturs eftir keppni erlendis,“
bætir Daði við.
Þeir verða bestir
sem æfa mest
Þau segjast hiklaust mæla með
dansi fyrir alla þá sem hafa áhuga.
„Þetta er rosalega gaman og margt
hægt að læra á þessu sem mað-
ur lærir kannski ekki af þátttöku
í öðrum íþróttum,“ segir Daði og
Marta nefnir í því samhengi að
dansinn hafi kennt henni mikinn
sjálfsaga, en einnig nokkurs konar
„samaga“ því pörin verði að vinna
saman. „Danspar er í raun bara
tveggja manna lið og þess vegna
er svo mikilvægt að báðir dansar-
arnir stefni að sama markinu,“ seg-
ir hún. „Ég held að það sé öllum
mjög hollt að læra að vinna með
einhverjum á þann hátt sem gert
er í dansinum,“ bætir Daði við.
Til að komast í hóp þeirra bestu
segja þau svo að það sama eigi við
í dansi og öðru. „Þetta snýst mik-
ið um viljastyrk og að vinna auka-
vinnuna. Þeir verða bestir sem æfa
mest aukalega,“ segir Marta.
kgk
Daði og Marta eru eitt fremsta danspar landsins:
„Við náum mjög vel saman og stefnum að sama markinu“
Daði Freyr Guðjónsson og Marta Carrasco.
Daði og Marta efst á verðlaunapalli eftir sigur á DSÍ Open Standard í síðasta
mánuði.
Í góðri sveiflu.
Ljósm. Örvar Moeller.
Dans er í senn listgrein og íþrótt. „Það er mikil tjáning í dansi,“ segir Daði og það
má glögglega sjá á myndinni. Ljósm. Kjartan Birgisson.