Skessuhorn - 20.04.2016, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 20166
Stefna á
aðalfund Pírata
VESTURLAND: Aðal-
fundur Pírata á Vesturlandi
verður haldin laugardag-
inn 21. maí næstkomandi
kl. 13:00 til 19:00 í Sögu-
miðstöðinni í Grundar-
firði. Á dagskrá er kosning
stjórnar og almenn fundar-
störf. Dagskrá fundar Pírata
á Vesturlandi má að öðru
leyti nálgast á Fésbókarsíðu
samtakanna.
-fréttatilk.
Skeifudagurinn
í sextugasta
skipti
HVANNEYRI: Það verð-
ur líf og fjör í Landbúnað-
arháskóla Íslands á Sumar-
daginn fyrsta. Annars veg-
ar verður Skeifudagurinn,
keppni í reiðmennsku og
tamningum hjá nemendum
LbhÍ, haldin á Mið-Fossum
en nú í ár fer keppnin fram
í sextugasta skipti. Vegna af-
mælisins hefur öllum fyrri
skeifuhöfum (verðlauna-
höfum fyrir reiðmennsku
og tamningar) verið boðið á
hátíðina. Hestamannafélag-
ið Grani heldur utan um
skipulag og dagskrá. Hins
vegar er opið hús í Garð-
yrkjuskóla LbhÍ á Reykjum
Ölfusi þar sem fjölbreytt
dagskrá fer fram innan um
blómstrandi plöntur og
brakandi ferskt grænmeti.
-mm
Annir í umferðar-
tengdum málum
VESTURLAND: Fimm um-
ferðaróhöpp urðu í umdæmi
Lögreglunnar á Vesturlandi í lið-
inni viku. Þar af voru tvö þar sem
ökumenn eru grunaðir um að
hafa verið undir áhrifum áfeng-
is eða vímuefna. Ökumaður bíls
sem fór útaf og valt á Snæfellsnes-
vegi við Hítará var meðvitundar-
laus þegar að var komið og var
fluttur á sjúkrahús, en talið var að
meiðsl hans væru ekki alvarleg.
Erlendir ferðamenn voru aðstoð-
aðir víða í umdæminu í vikunni,
ef þeir voru ekki fastir í snjó, þá
voru þeir fastir í aurbleytu. Þjón-
ustuaðilar voru kallaðir út til að
aðstoða ferðamennina. Þá sekt-
aði lögregla fimm ökumenn fyr-
ir rangstöður í Borgarnesi í lið-
inni viku. Skráningarnúmer voru
klippt af nokkrum bílum sem
ekki höfðu verið færðir til aðal-
skoðunar og aðrir boðaðir í skoð-
un. Gerðar voru athugasemdir
við ljósabúnað nokkurra stórra
flutningabíla og skífur úr ökurita
skoðaðar vel hjá öðrum, með til-
liti til aksturs og hvíldartíma öku-
manns. Sjálfvirku hraðamynda-
vélarnar skiluðu alls 571 mynd-
um af ökumönnum sem að óku
of hratt, víðs vegar um landið en
í umdæmi LVL voru 53 myndað-
ir fyrir of hraðan akstur við Fiski-
læk sunnan Hafnarfjalls. Þá tóku
lögreglumenn sjálfir 28 ökumenn
fyrir hraðakstur í vikunni. -mm
Harmleikur
AKRANES: Sá hörmulegi at-
burður átti sér stað á Akranesi
aðfararnótt síðastliðins mið-
vikudags að maður á sjötugsaldri
varð konu sinni að bana með
skotvopni og tók síðan eigið líf.
Atburðirnir gerðust á heimili
hjónanna í fjölbýlishúsi á Akra-
nesi og var lögregla fengin til
að fara inn í húsið þegar grunur
vaknaði um að eitthvað væri að.
Hin látnu hétu Nadezda Edda
Tarasova, 54 ára, og Guðmund-
ur Valur Óskarsson. Hann var
fæddur árið 1952 og lætur eft-
ir sig fjögur uppkomin börn en
missti árið 2008 son í bílslysi.
Nadezda var fædd í Rússlandi
en hefur búið hér á landi um
árabil. Hún lætur eftir sig upp-
komna dóttur sem býr í heima-
landi sínu. Nadezda var starfs-
maður Grundaskóla á Akranesi.
Málið er til rannsóknar hjá lög-
reglunni á Vesturlandi. -mm
Ófærð í vetrarlok
HOLTAV.H: Norðan stórhríð
og rok gekk yfir norðan- og
austanvert landið á sunnudags-
kvöldið. Veðrið náði að teygja
anga sína í landshlutann og færð
spilltist meðal annars á Holta-
vörðuheiði. Veginum þar var
lokað um kvöldið vegna skaf-
rennings og blindu. í Að sögn
lögreglu varð árekstur í Hæð-
arsteinsbrekkunni, án meiðsla á
fólki. Þar var um tíma afar slæmt
veður. Koma þurfti ökumönn-
um margra bifreiða til hjálpar á
heiðinni og enn fleiri biðu af sér
veðrið í Staðarskála og Hreða-
vatnsskála. -mm
Viðhaldsáætlun Hvalfjarðarsveitar
fyrir árið 2016 var afgreidd á fundi
sveitarstjórnar þriðjudaginn 12.
apríl. Hljóðar áætlunin samtals upp
á tæplega 39 milljónir króna sem
varið verður á þessu ári til viðhalds
á fasteignum sveitarfélagsins. Með-
al einstakra þátta í áætluninni má
nefna að rúmlega 5,1 milljón verð-
ur varið til viðhalds á leikskólanum
Skýjaborg. Þar stendur til að end-
urnýja ofn og sinna öðru viðhaldi í
eldhúsi, sem og að endurbæta að-
stöðu starfsmanna. Einnig má nefna
að rúmar 2,4 milljónum verður varið
í viðhald Heiðarborgar, rúmum 2,6
í viðhald Heiðarskóla og rúmri 1,6
milljón til félagsheimilisins Fanna-
hlíðar. Í síðarnefndu atriðunum er
um að ræða reglubundið viðhald.
En langstærstum hluta þess fjár sem
gert er ráð fyrir í viðhald fasteigna,
eða rúmum 22 milljónum króna, á
að verja til umfangsmikils viðhalds
sundlaugarinnar á Hlöðum á Hval-
fjarðarströnd.
Skiptar skoðanir
Ljóst er að sveitarstjórnarmenn
voru ekki sammála um málið þegar
viðhaldsáætlun var afgreidd. Á fundi
sveitarstjórnar lagði Ása Helgadótt-
ir fram breytingartillögu þess efnis
að því fé sem áætlað hafði verið að
verja til viðhalds sundlaugarinnar að
Hlöðum yrði nýtt í frekara viðhald
á öðrum fasteignum sveitarfélags-
ins. Breytingartillagan var felld með
fjórum atkvæðum gegn þremur.
Upphaflega tillagan var síðan sam-
þykkt með sama mun atkvæða. Aðr-
ir liðir viðhaldsáætlunar voru sam-
þykktir samhljóða.
Sundlaugin að Hlöðum þarfn-
ast mikils viðhalds; endurnýja þarf
dúk hennar og ráðast í endurbætur á
lagnakerfinu. Umfang þeirra endur-
bóta er óvíst því ástand lagna kemur
ekki að fullu í ljós fyrr en grafið hef-
ur verið frá þeim. Heita potta þarf
að færa til og endurnýja auk þess
sem gera þarf ráð fyrir hellulögn og
öðru tilfallandi.
Skúli Þórðarson sveitarstjóri seg-
ir að strax verði hafist handa við að
undirbúa viðhaldsframkvæmdirn-
ar. „Fyrirliggjandi viðhaldsáætl-
un var samþykkt og næsta verk-
efni okkar sem vinnum í stjórnsýsl-
unni er að koma henni í gang,“ seg-
ir hann. „Viðhald sundlaugarinnar
á Hlöðum er stórt verkefni og von-
andi geta framkvæmdir hafist fljótt
svo hægt verði að opna laugina sem
fyrst, en það liggur ekki fyrir á þess-
ari stundu hvenær það verður hægt,“
segir Skúli.
kgk
Ráðast þarf í verulegar endurbætur
á sundlauginni á Hlöðum