Skessuhorn


Skessuhorn - 20.04.2016, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 20.04.2016, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 201628 Súkkulaðikökur eru viðeigandi við nánast öll tækifæri. Þær eru líklega vinsælustu kökur sem hægt er að bera á borð og eru til ótal marg- ar uppskriftir af ólíkum súkkulaði- kökum. Sumir vilja klassíska súkk- ulaðiköku með súkkulaði smjör- kremi, aðrir vilja dökka Djöfla- tertu og enn aðrir eru hrifnastir af blautum, frönskum súkkulaðikök- um. Uppskriftin sem við birtum hér er frá mæðgunum sem halda úti vefsíðunni mömmur.is. Þar birta þær ýmsar fjölbreyttar upp- skriftir af fallega skreyttum kökum og kræsingum. Þá halda þær einn- ig úti Facebook síðu með sama nafni og eru komnar með aðgang á samskiptaforritið Snapchat, þar sem fylgjast má með þeim, nánast í beinni útsendingu, við að baka og skreyta. Súkkulaðikakan sem hér um ræðir er frekar fín, blaut og ómótstæðilega góð. Kakan er góð í hvers kyns veislur og hent- ar vel til að skreyta þær. Það má skera hana út og skreyta listavel með kremi eða sykurmassa eins og sést hér á meðfylgjandi mynd. Hér hafa mömmur.is gert sannkallað sykurmassa listaverk úr kökunni og breytt henni í Lamborghini bíl í tilefni af tökum á kvikmyndinni Fast-8 en sem fóru fram á Akra- nesi undanfarna viku. Afmælissúkka í ofnskúffustærð Þurrefnin saman í eina skál: 500 g hveiti 200 g sykur 200 g púðursykur 10 msk kakó 2 tsk matarsódi 2 tsk lyftiduft 1 tsk salt Vökvinn settur í aðra skál: 4 egg 1 1/2 bolli nýmjólk 1 bolli súrmjólk 250 g brætt smjör, kælt aðeins. Einnig hægt að nota olíu í staðinn fyrir smjörið. 3 tsk vanilludropar Ofninn hitaður í 175 gráður. Aðferð: Blandið þurrefnunum saman í skál. Vökvanum ásamt eggjunum í aðra skál. Hrærið með pískara þar til allt hefur blandast vel saman. Smyrjið ofnskúffu og hellið deig- inu í skúffuna. Bakið í 25 - 30 mín- útur eða þar til deigið er bakað í gegn. Smjörkrem: 500 g smjör 400 g flórsykur 2 msk kakó 1 stk eggjarauða 1 tsk vanilludropar 1 msk síróp Aðferð: Þeytið saman smjöri og flórsykri þar til það verður létt og ljóst, bætið kakói útí og hrærið síðan eggjarauðunni saman við. Að lok- um eru vanilludropar og síróp sett út í. Hrært vel saman í 1 – 2 mín. Súkkulaðikaka við öll tilefni - líka fyrir Lamborghini aðdáendur Freisting vikunnar Undanfarnar helgar hefur Sjöfn Sæmundsdóttir haldið reiðnám- skeið fyrir unga og upprennandi knapa í reiðhöllinni í Búðardal. Á föstudaginn var boðið til sýningar þar sem nemendur sýndu listir sín- ar. sm Héldu sýningu í reiðhöllinni í Búðardal Tara Ösp Tjörvadóttir frumsýndi nýlega myndband þar sem sjá má ljósmyndir af 100 Íslendingum sem þjást af þunglyndi. Mynd- bandið er unnið úr ljósmynda- verkefninu Faces of Depress- ion, sem Tara Ösp stofnaði til að vekja samkennd fyrir þunglyndi auk þess að vera vettvangur fyr- ir fólk til að opinbera veikindi sín. Í myndbandinu má meðal annars sjá andlit þjóðþekktra Íslendinga á borð við rapparann Kött Grá Pjé og söngvarann Einar Ágúst Víði- sson. „Eftir að hafa verið í gíslingu eigin fordóma opnaði ég mig op- inberlega um veikindi mín í lok síðasta árs, eftir ellefu ára baráttu. Þá fann ég að byrðin af því að fela þunglyndið hafði verið þyngri en sjúkdómurinn sjálfur, sem er átak- anleg staðreynd hjá mörgum sem glíma við andlega sjúkdóma,“ seg- ir Tara Ösp í grein um söguna á bakvið verkefnið. Hún segir eigin fordóma hindra fólk í að sækja sér hjálp. „Þeir hindra okkur í að tala um baráttu okkar en það er ekki fyrr en við förum að tala um veik- indin sem okkur fer að batna.“ All- ar ljósmyndirnar 100 í einu mynd- bandi má finna á samfélagsmiðlin- um Youtube undir heitinu 100 Fa- ces Of Depression. Ljósmynda- verkefni Töru Aspar má finna í heild sinni á vefsíðunni www.fodp- roject.com. Baráttan heldur áfram Tara er ein af stofnendum #ég- erekkitabú byltingarinnar og vann ein að þessu verkefni í kjölfar bylt- ingarinnar frá því í október 2015. Hún segir að í framhaldi af frels- un sinni hafi tugir manna haft sam- band við hana sem voru fangar eig- in fordóma og hún vildi hjálpa þeim að stíga fram. Tara Ösp segir bar- áttuna við fordóma þó halda áfram og biðlar til almennings um aðstoð við næsta verkefni. „Næsta verk- efni mitt er fræðslu- og heimildar- myndin Depressed Nation, þar sem ég mun taka viðtöl við fólk víðsveg- ar um landið sem hefur reynslu af þunglyndi og blanda því saman við fræðsluefni. Myndin mun fræði þig bæði um þunglyndi, áhrifin sem for- dómar hafa og hvað við getum gert til að gera samfélagið okkar að virk- ari, samstæðari og heilbrigðari stað til að búa á. Ég þarf á ykkar hjálp að halda bæði við að kosta verkefnið og einnig vantar mig viðmælendur fyr- ir myndina.“ Styrkja má verkefnið með því að fara á vefsíðuna http:// igg.me/at/dn en þar má einnig finna allar upplýsingar um verkefnið. Þunglyndi er ekki tabú Meðaltími frá því að þunglynd- ur einstaklingur veikist og þar til hann leitar sér hjálpar eru tíu ár og bendir Tara Ösp á að þung- lyndi geti versnað með tíman- um, rétt eins og aðrir sjúkdómar. „Við þurfum að grípa inn í áður en það er um seinan. Við þurfum að fræða börnin og unglingana okk- ar um andlega sjúkdóma til að fyr- irbyggja eftir bestu getu langvar- andi andleg veikindi. Við þurfum að kenna samfélaginu að tala um andlega sjúkdóma og brýna mik- ilvægi þess að tala um þá. Verum stolt af baráttum okkar og annarra við andleg veikindi og styðjum hvort annað, því við erum langt frá því að vera ein,“ segir Tara Ösp. „Þunglyndi er sjúkdómur sem 20% mannvera mun veikjast af einhvern tíma á lífsleiðinni og það er í okkar höndum að stuðla að op- inni umræðu um geðsjúkdóma, til að fyrirbyggja eftir fremsta megni langvarandi veikindi. Þunglyndi er ekki tabú.“ grþ Myndaði andlit 100 þunglyndra Íslendinga Í myndbandinu má sjá andlit 100 Íslendinga sem glímt hafa við þunglyndi. Tara Ösp Tjörvadóttir barðist sjálf við eigin fordóma í ellefu ár.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.