Skessuhorn - 20.04.2016, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2016 39
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Körfuknattleikslið Grundarfjarðar
komst í úrslitakeppni þriðju deildar
með því að tryggja sér fjórða sætið í
deildinni. Með því tryggðu þeir sér
heimaleik á móti Patrek sem sat sæti
neðar fyrir úrslitakeppnina. Leikur-
inn fór fram í íþróttahúsi Grundar-
fjarðar 10. apríl og endaði með sigri
heimamanna 77-64 þannig að Pat-
reksmenn voru komnir í sumarfrí.
Grundarfjörður tryggði sér því sæti
í fjórðungsúrslitum þar sem þeirra
beið erfitt verkefni á móti Laug-
dælum á útivelli en Laugdælir voru
efstir í deildinni, töpuðu aðeins
einum leik í vetur og það var ein-
mitt á móti Grundarfirði. Leikur-
inn í fjórðungsúrslitunum fór fram
föstudaginn 15. apríl og sáu Grund-
firðingar aldrei til sólar í þeim leik.
Laugdælir náðu að hefna fyrir tapið
í Grundarfirði og sigruðu með yfir-
burðum 96-60 og tryggðu sér sæti í
2. deild að ári. Lið Grundarfjarðar
er því komið í sumarfrí og mæta ef-
laust tvíefldir til leiks í 3. deildinni
næsta vetur.
tfk
Grundfirðingar komnir
í frí í körfunni
Um þessar mundir stendur yfir úr-
slitaviðureign Domino‘s deildar
kvenna í körfuknattleik. Þar eigast
við tvöfaldir Íslandsmeistarar Snæ-
fells og Haukar. Hafnarfjarðarliðið
vann fyrsta leikinn með einu stigi
og leiddi því viðureignina þegar
liðin mættust aftur í Stykkishólmi
á mánudagskvöld. Þar gerðu Snæ-
fellskonur sér lítið fyrir og jöfnuðu
viðureignina með öruggum sigri,
69-54.
Jafnt var á með liðunum fram-
an af leik og aðeins munaði tveim-
ur stigum eftir fyrsta leikhluta. Eft-
ir það skelltu Snæfellskonur í lás og
héldu Haukum stigalausum í heilar
sjö mínútur með frábærum varnar-
leik. Á meðan bættu Snæfellskon-
ur stigunum við hægt og rólega og
höfðu afgerandi forskot í hálfleik,
32-16.
Þegar lið leiðir með svo afgerandi
hætti er alltaf hætt við því að leik-
menn verði værukærir. Í upphafi
þriðja leikhluta virtist sem Snæ-
fellskonur ætluðu að falla í þá gryfju
og gefa ákveðnum Haukakonum
smá von á ný. En eftir að gestirn-
ir söxuðu fjögur stig af forystunni
náðu Snæfellskonur fullri einbeit-
ingu á nýjan leik. Þær juku forskot
sitt í 20 stig fyrir lokafjórðunginn
og héldu gestunum í öruggri fjar-
lægð til leiksloka. Það var ekki fyrr
en á lokamínútunum að Haukar
náðu aðeins að klóra í bakkann en
sigur Snæfells var aldrei í nokkurri
hættu. Lokatölur í Stykkishólmi
69-54 og Snæfell búið að jafna við-
ureignina.
Haiden Palmer átti frábæran leik
fyrir Snæfell. Hún skoraði 25 stig,
tók átta fráköst, gaf sjö stoðsend-
ingar og stal boltanum sex sinnum.
Berglind Gunnarsdóttir skoraði 14
stig og tók sjö fráköst og Bryndís
Guðmundsdóttir var með níu stig,
átta fráköst og sex stoðsendingar.
Eins og áður segir er staðan jöfn í
úrslitaviðureign Snæfells og Hauka,
hvort lið hefur einn sigur. Þriðji
leikur liðanna fer fram í Hafnar-
firði á morgun, fimmtudaginn 21.
apríl. Sigri Snæfellskonur þann leik
fá þær gullið tækifæri til að tryggja
sér þriðja Íslandsmeistaratitilinn í
röð á heimavelli þegar liðin mætast
fjórða sinni sunnudaginn 24. apríl
næstkomandi.
kgk
Snæfell sigraði annan
leikinn örugglega
Berglind Gunnarsdóttir í mikilli
baráttu í leik Snæfells og Hauka síðast-
liðinn mánudag. Ljósm. sá.
Skallagrímur etur um þessar mund-
ir kappi við Fjölni í úrslitaviður-
eign 1. deildar karla í körfuknatt-
leik. Eftir góðan sigur í fyrsta leik
var komið að Skallagrímsmönn-
um að taka að sér hlutverk gest-
gjafanna þegar liðin mættust öðru
sinni í Borgarnesi á sunnudags-
kvöld. Heimamenn voru kannski
heldur gestrisnir í það skiptið, þeir
sendu Fjölnismenn heim sadda og
sæla með sex stiga sigur í fartesk-
inu. Viðureignin er því jöfn, hvort
lið með einn sigur. Leikurinn fór
fjörlega af stað, bæði lið léku hrað-
an sóknarleik og nokkuð sterkan
varnarleik. J.R. Cadot fór mikinn í
fyrsta leikhluta og dró vagninn fyr-
ir Skallagrím. Fjölnir var þó aldrei
langt undan. Þeir jöfnuðu um miðj-
an annan fjórðunginn en það voru
Borgnesingar sem leiddu í hálfleik,
44-43.
Gestirnir komu ákveðnir til leiks
eftir hléið. Vörn Skallagríms var
aðeins farin að gefa eftir en Fjölnis-
menn létu boltann ganga. Leikmenn
Skallagríms létu þó ekki stinga sig
af á heimavelli og spyrntu við fót-
um. En þeir höfðu ekki erindi sem
erfiði. Eftir spennuþrungnar mín-
útur náði Fjölnir sjö stiga forystu
undir lokin og reyndist það Skalla-
grími um megn. Lokatölur í Borg-
arnesi voru 85-91, Fjölni í vil.
Áðurnefndur J.R. Cadot átti stór-
leik fyrir Skallagrím og daðraði við
þrennuna. Hann skoraði 35 stig,
tók 11 fráköst og gaf sjö stoðsend-
ingar. Kristófer Gíslason skoraði
13 stig og tók sjö fráköst, Davíð Ás-
geirsson skoraði ellefu stig og Sig-
tryggur Arnar Björnsson var með
tíu stig og sjö stoðsendingar.
Fyrir Fjölni var Collin Pryor at-
kvæðamestur. Hann setti upp sann-
kallaða tröllatvennu, skoraði 27 stig
og tók 25 fráköst.
Viðureign Skallagríms og Fjölnis
er sem fyrr segir jöfn, bæði lið hafa
sigrað einn leik. Þriðji leikur lið-
anna fer fram í Grafarvogi í kvöld,
miðvikudaginn 20. apríl.
kgk
Jafnt í viðureign Skallagríms og Fjölnis
J.R. Cadot verst Collin Pryor síðastlið-
inn sunnudag. Báðir fóru þeir mikinn
í leiknum.
Ljósm. fengin af facebook-
síðu Fjölnis.
Íslandsmót Félags áhugafólks um
íþróttir aldraðra (FÁÍA 60+) í
boccía var haldið á Akranesi síð-
astliðinn laugardag. Úrslit urðu
þau að í fyrsta sæti varð Gjábakki
í Kópavogi. Keppendur voru Mar-
grét Hjálmarsdóttir, Freyr Bjart-
marz og Páll Þorsteinsson. Í öðru
sæti varð Neisti í Garðabæ en liðið
skipuðu Baldur Hjörleifsson, Guð-
björg Ágústsdóttir og Jóhann Ingi
Jóhannsson. Í þriðja sæti var svo lið
úr Borgarbyggð, FEBBN/FAB en
það skipuðu þeir Meinhard Berg,
Jóhannes Gestsson og Þórhallur
Teitsson.
Það var Þórey S. Guðmundsdótt-
ir formaður FÁÍA sem setti mót-
ið og sleit því. Þakkaði hún heima-
mönnum fyrir góða vinnu sem og
stjórnarmönnum sínum. Alls mættu
30 lið til keppninnar frá ellefu fé-
lögum og var keppt á átta völlum.
Mótið var samstarfsverkefni FEB-
AN, Félags eldri borgara á Akranesi
og nágrenni, og stjórnar FÁÍA. All-
ur undirbúningur og framkvæmd
gekk að óskum, enda létu keppend-
ur ánægju sína vel í ljós. Aðstaða í
Íþróttahúsinu við Vesturgötu er
ein sú besta sem völ er á bæði til
keppni og veitinga. Viðurgjörn-
ingur var frá Galíto; súpa, brauð,
smjör og pestó, en FEBAN sá um
kaffi, te og drykki ásamt dýrindis
kleinum. Auk verðlaunapeninga er
keppt um faranbikar sem næsta árið
verður geymdur í Kópavogi, en var
áður hjá Garðbæingum. Íslandsmót
FÁÍA 2017 verður svo í Siglufirði
að ári.
Við lok móts varpaði Hjörtur
Þórarinsson fyrrverandi skólastjóri
fram eftirfarandi vísu:
Farsæld við óskum á ferðinni
heim.
Frábært á keppni var lag.
Við samfögnum öllum, en sam-
úð með þeim
sem sigruðu lítið í dag.
mm/fj
Íslandsmót eldri borgara í
boccia fór fram á Akranesi
Sigursveitirnar stilltu sér upp að lokinni verðlaunaafhendingu. Ljósm. sk.
Það voru þrettán hressir krakkar úr
Víkingi/Reyni sem kepptu í blaki
um síðustu helgi. Mótið sem þau
fóru á var haldið í Kórnum í Kópa-
vogi á vegum Blakdeildar HK. Þrjú
lið kepptu á vegum Víkings/Reyn-
is og unnu öll til verðlauna. Tvö lið
kepptu í 4. deild, 5. flokki blönd-
uðum og varð Víkingur/Reynir í
fyrsta sæti og Víkingur/Reynir B
í öðru sæti. Þriðja liðið keppti svo
í 3. deld, 4. flokki stúlkna og varð
í öðru sæti. Þetta er glæsilegur ár-
angur hjá þessum ungu blökurum
en lið frá sjö félögum tóku þátt í
mótinu. Þessir krakkar hafa æft af
krafti í vetur hjá þjálfaranum sín-
um Katrínu Söru Reyes. Hún er nú
að flytja norður og sárvantar krakk-
ana þjálfara fram á vor ef það eru
einhverjir áhugasamir. Þetta eru
áhugasamir og flottir krakkar sem
stóðu sig frábærlega. Ætlar Katrín
Sara því að fara með þau á Íslands-
mót sem haldið verður í Mosfellsbæ
29. apríl til 1. maí næstkomandi.
þa
Sigursælt blaklið vantar nú þjálfara