Skessuhorn - 20.04.2016, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2016 25
Snæfellsbær sendir íbúum Snæfellsbæjar og íbúum
Vesturlands ósk um gleðilegt sumar
Grundararðarbær óskar íbúum Grundararðar
og öðrum Vestlendingum gleðilegs sumars
Gleðileikarnir 2016 fóru fram í
Borgarnesi á þriðjudag og miðviku-
dag í liðinni viku. Var þetta í þriðja
sinn sem þeir eru haldnir en Gleði-
leikarnir voru nú sem áður skipu-
lagðir af Foreldrafélagi Grunnskól-
ans í Borgarnesi. Á leikunum keppa
nemendur í 7. til 10. bekk í þraut-
um af ýmsum toga á nokkrum stöð-
um í Borgarnesi. Alls tóku átta lið
þátt í keppninni í ár og var þeim
skipt eftir litum. Þrautirnar voru
einnig átta, skipulagðar í samstarfi
við grunnskólann sjálfan, Björgun-
arsveitina Brák, Landnámssetrið,
listakonuna Michelle Bird, UMSB,
Félagsmiðstöðina Óðal, Stéttafélag
Vesturlands og þá Sigurstein Sig-
urðsson og Geir Konráð Theó-
dórsson hjá Hugheimum. Mark-
mið leikanna er að efla unglingana
bæði sem einstaklinga og sem hóp
og að styrkja sjálfsmynd þeirra og
sjálfstæði en þrautirnar felast í sam-
vinnu, sjálfstæði og gleði. Gefin
voru stig fyrir þá þrjá þætti auk svo-
kallaðra „rokkstiga“. Meðal verk-
efna sem krakkarnir þurftu að leysa
á Gleðileikunum var að taka mynd
af ferðamönnum, leysa arkitektar-
þraut með Lego kubbum, ganga
eftir þrautabraut með sjúkrabörur
og gera stórt, sameiginlegt málverk
þar sem þau þurftu að mála ýmist
með bundið fyrir augu, með vinstri
hendi eða dansandi. Þá þurftu nem-
endur einnig að taka þátt í leiklist-
arspuna og útbúa launaseðla hjá
Stéttarfélagi Vesturlands, sem var
hugmynd frá einum nemanda í 10.
bekk skólans. Að þrautunum lokn-
um var boðið upp á pizzuveislu í
Hjálmakletti, þar sem tilkynnt var
um sigurvegara og hverjir skoruðu
flest stig í hverjum flokki.
Að sögn Ástu Kristínar Guð-
mundsdóttur verkefnisstjóra Gleði-
leikanna 2016 gekk allt smurt og
allir þátttakendur voru glaðir og
ánægðir með framtakið. „Okkur
langar að koma á framfæri þakklæti
til allra sem stóðu að baki þessu,
bæði til einstaklinga og fyrirtækja.
Maður er bara á bleiku skýi, þetta er
dæmi um frábæra samvinnu og sam-
takamátt, hvað hægt er að gera þeg-
ar allir leggjast á eitt. Hér eru ýms-
ir aðilar úti í samfélaginu sem láta
sig málefnið varða og það er ómet-
anlegt. Við hlökkum bara til þess
að takast á við þetta verkefni áfram,
okkur langar að þetta sé komið til
að vera,“ sagði Ásta Kristín.
grþ
Leystu ýmsar þrautir á Gleðileikunum
Græna liðinu gekk vel og fékk liðið hæsta skor í samvinnu, gleði og sjálfstæði. Mikil gleði einkenndi stöðina á vinnu-
stofu Michelle Bird, þar sem krakkarnir
unnu saman að gerð málverks.
Meðlimir appelsínugula liðsins voru sigurvegarar Gleðileikanna 2016.
Einbeittir liðsmenn gula liðsins að vinna að deiliskipulagsverkefni, þar sem þeir
fengu úthlutað lóð og þurftu að byggja hús úr Lego kubbum eftir ákveðnum for-
sendum.Í lokin fengu allir pizzu og gos í Hjálmakletti.
Bláa liðið sýnir samvinnu á einni
stöðinni.
Hópefli hjá appelsínugulum, áður en hafist var handa við spunaverk.Bleika liðið að leysa þraut björgunarsveitarinnar í Brákarey.