Skessuhorn


Skessuhorn - 20.04.2016, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 20.04.2016, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2016 15 ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI Eiríkur J. Ingólfsson ehf. S ke ss uh or n 20 13 Okkur vantar starfsfólk í ræstingar ISS leitar að starfsfólki í ræstingar eftir kl. 16. Um hlutastarf er að ræða. Áhugsamir hafi samband við Ásu í síma 696 4919 eða sendið inn umsókn á vef ISS. www.iss.is SK ES SU H O R N 2 01 6 1233. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 26. apríl kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0. Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir: Sjálfstæðisflokkurinn í Golfskálanum, • laugardaginn 23. apríl kl. 10.30 F• rjálsir með Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32, kjallara, gengið inn frá palli, mánudaginn 25. apríl kl. 20.00 Björ• t framtíð í Vitakaffi, Stillholti 16-18, mánudaginn 25. apríl kl. 20.00 S• amfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, laugardaginn 23. apríl kl. 11.00 Bæjarstjórnarfundur Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is Bjarnarbr. 4-6, Borgarnesi, www.safnahus.is, 433 7200 Sumarbragur Safnahús Borgarfjarðar Tónlistarskóli Borgarfjarðar Uppskeruhátíðin okkar Sumarbragur verður haldin í Safnahúsi fimmtud. 21. apríl kl. 15.00. Um er að ræða tónleika þar sem nemendur Tónlistarskólans flytja verk sem þeir hafa verið að semja á undanförnum mánuðum við ljóð borgfirska skáldsins Snorra Hjartarsonar. Við sama tækifæri verður opnuð sýning á ljósmyndum Sigurjóns Einarssonar, Refir og menn Allir velkomnir Sumarbragur er heiti á verkefni þar sem markmiðið er að hvetja ungt fólk til tónsköpunar á grundvelli texta. Þetta er frumkvöðlaverkefni sem felur í sér þverfaglega nýtingu mannauðs og hugmynda. Verkefnið er styrkt af samfélagssjóði Verkfræðistofunnar Eflu. Frá uppskerutónleikunum árið 2015 Miðvikudaginn 4. maí verður hald- in á Hvanneyri ráðstefna um staðar- anda Vesturlands. Ber hún yfirskrift- ina „Blásið til sóknar: Staðarandi Vesturlands - innviðir - ímynd og sóknarfæri.“ Er hún haldin á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og umhverfisskipulagsbrautar Land- búnaðarháskóla Íslands, með stuðn- ingi frá sóknaráætlun. Ráðstefn- unni er ætlað að leiða Vestlendinga til samtals um sérkenni sveitarfélaga og hvernig þau geta nýst sem sókn í ímyndarvinnu og atvinnutækifær- um. Halldór Halldórsson formað- ur Sambands íslenskra sveitarfélaga setur ráðstefnuna en að henni kem- ur fjöldi fyrirlesara, svo sem Björg Ágústsdóttir frá Alta, Vífill Karlsson, Daði Guðjónsson frá Íslandsstofu, Sævar Freyr Sigurðsson frá Saga Travel, Bryndís Geirsdóttir frá Hinu blómlega búi og Edda Ívarsdóttir frá LbhÍ. „Einnig hafa nemendur um- hverfisskipulagsbrautar unnið mörg greiningar- og hönnunarverkefni á Vesturlandi sem verða til kynningar á ráðstefnunni. Þá verður opnuð vef- síða og mörg verkefnanna gerð að- gengileg. Sveitastjórnarfólk, ferða- þjónustuaðilar og allt áhugafólk um betri byggð er hvatt til að taka dag- inn frá því svo sannarlega eru sókn- arfæri svæðisins mörg,“ segir í til- kynningu um ráðstefnuna. Þörf fyrir hið einstaka „Hver staður er einstakur og hefur sína sál eða anda sem greinir hann frá öðrum. Á tímum hnattvæðingar þegar hvers kyns straumar og stefn- ur æða heimshorna á milli á auga- bragði steðjar ákveðin hætta að anda staðanna. Stöðluð uppbygg- ing samgöngumannvirkja, bygg- inga og opinna svæða gerir það að verkum að ólíkum stöðum svip- ar sífellt meira til hvors annars. Á sama tíma eykst þörfin á hinu ein- staka, sem ekki finnst annars staðar. Sú þörf er jafnt hjá þeim sem heim- sækja staðina sem ferðamenn, þeim íbúum sem vilja laða til sín ný at- vinnutækifæri og þeim sem leita eftir þráðum sem tengja samfélagið sam- an. Í þessu samhengi er staðarvitund mjög mikilvægt hugtak og mun vægi þess aukast hérlendis á komandi árum fylgi Ísland þeirri bylgju sem farið hefur um nágrannalönd okkar,“ segja Helena Guttormsdóttir, lektor og brautarstjóri LbhÍ og Hrafnkell Proppé, svæðisskipulagsstjóri höf- uðborgarsvæðisins, í tilkynningunni. Enn fremur útskýra þau hvað stað- arvitund er: „Góð staðarvitund felst í því að geta greint þau fjölmörgu atriði sem staðarandinn byggir á, skilja samspilið á milli þeirra, meta þá þætti sem draga úr sérkennum og þá þætti sem styrkja þau. Þessi atriði geta átt sér stað í náttúrulegri um- gjörð, byggingasögulegri arfleifð og í mannlífinu sjálfu fyrr og nú. Sem dæmi um birtingaform þessa þátta má nefna litasamspil sem má finna bæði í náttúrulegri umgjörð og mannvirkjum, Endurtekningu for- ma, lykt og viðmót svo eitthvað sé nefnt.“ kgk/ Meðf. myndir eru unnar af nemendum umhverfisskipulagsbraut- ar LbhÍ. Ráðstefna um staðaranda Vesturlands verður í byrjun maí Fiskilækur í Leirársveit. Fitjar í Skorradal. Beituskúrinn við Reitarveg í Stykkishólmi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.