Skessuhorn


Skessuhorn - 20.04.2016, Blaðsíða 32

Skessuhorn - 20.04.2016, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 201632 Það var á árinu 1907 að þeir félagar og jafnaldrar Loftur Loftsson og Þórður Ásmundsson hefja undirbún- ing að félagsstofnun sinni um verslun og útgerð á Akranesi. Þeir voru þá 23 ára að aldri, en ári áður höfðu þeir félagar ásamt fleiri ungum mönnum á Akranesi keypt fyrsta dekkvélbát- inn sem nefndur var Fram. Loftur tók að sér að útvega lóð undir versl- unina á góðum stað, eins og hann sagði í bréfi til Þórðar; „fyrir framan hús Gríms í Götu“ (þ.e. Hallgríms á Grímsstöðum) og töldu þeir félagar þennan stað heppilegan fyrir versl- unarhús á Skaganum; „því þar hljóta flestir aðkomumenn eða plássfólk að fara um“. Í dag er lóð þessi nr. 48 við Vesturgötu. Þórður hins vegar fékk föður sinn Ásmund á Háteigi til að útvega veð fyrir láni sem þeir fé- lagar tóku vegna væntanlegra fram- kvæmda. Stofnféð til þessa verslun- arreksturs var 4.000 krónur og voru þær fengnar að láni hjá Gísla Daní- elssyni í Kárabæ, en Gísli var mikill fjáraflamaður og vel stæður. Lánaði hann fé til atvinnureksturs og stuðl- aði með því að koma fótum undir ýmsa starfsemi á Skaganum um sína daga. Gamla búðin Verslunarhúsið sem þeir félagar reistu við Vesturgötuna árið 1908 var stórt timburhús á þess tíma mæli- kvarða, upp á eina hæð á steyptum eða hlöðnum grunni og á því var lágt ris. Þarna voru seldar allar venjuleg- ar verslunarvörur. Blómgaðist versl- un þeirra vel og færðu þeir jafnt og þétt út kvíarnar. Þeir félagar voru hinir fyrstu sem hér settu á fót sér- staka vefnaðarvörudeild, líklega árið 1910. Hún var í norðurenda hússins, með tveimur allstórum gluggum að götunni. Gluggarnir voru meira ætl- aðir til að gefa gangandi fólki inn- sýn í búðina, en til beinna vörusýn- inga, en þó voru þeir eitthvað not- aðir til þess. Bjarnfríður Ásmunds- dóttir, systir Þórðar, var fyrsta versl- unarmærin í þessari deild og var það um nokkur ár. Verslunin varð vin- sæl, ekki síst meðal bænda uppi um allt hérað, enda fluttu þeir félagar um mörg ár vörur til þeirra. Sjóleiðis til Seleyrar í Borgarfirði og á marga staði í Hvalfirði. Þeir keyptu einn- ig allar innlendar afurðir af bændum eftir því sem hægt var. Útgerð og fiskverkun Samhliða versluninni snúa þeir sér fljótlega að útgerð. Þeir kaupa Fram af félögum sínum um 1910-1911. Einnig kaupa þeir bátinn Hafrenn- ing árið 1910, ásamt Halldóri Jóns- syni í Aðalbóli, bróður Lofts og mágs Þórðar. Árið 1912 láta þeir Þórð- ur og Loftur smíða bátana Eldingu og Svan, fyrstu vélbátana sem smíð- aðir voru á Akranesi, en þeir voru fyrstu bátarnir sem fóru til viðlegu í Sandgerði. Yfirsmiður var Otti Guð- mundsson. Árið 1912 reisa þeir fé- lagar hús niður við Steinsvör sem kallað var „Neðsta fiskhúsið“ og stóð þar í nokkra áratugi. Árið 1915 kaupa þeir Krosshús ásamt meðfylgjandi lóð af Bjarna Jónssyni faktor í Ed- inborgarverslun á 4.500 krónur, en þeir létu rífa húsið og byggja upp úr því á sömu lóð íshús og er það ann- að íshúsið sem hér var reist. Suðaust- anvert við húsið gerðu þeir allstóra tjörn til ístöku því þá þekktust hér enn ekki vélar til slíkra hluta. Árið 1917 kaupa þeir svo jörðina Heima- skaga af áðurnefndum Gísla Daní- elssyni, en í kringum húsið, sem og á Krosshúsalóðinni og á neðsta hluta túnsins gerðu þeir allmikla fiskreiti sem notaðir voru til verkunar á salt- fiski. Sandgerðisárin Í árslok 1913 kaupa þeir Loftur og Þórður mikla útgerðarstöð í Sand- gerði í Miðneshreppi fyrir 65 þúsund krónur með 5000 kr. árlegri afborg- un auk vaxta. Þetta var verslun og vörubirgðir, mótorbátar með veið- arfærum og öllu tilheyrandi. Stöð- ina keyptu þeir af Matthíasi Þórð- arsyni frá Móum, skipstjóra og síðar ritstjóra Ægis um mörg ár. Upphaf framkvæmdanna í Sandgerði, m.a. við höfnina, má rekja til umsvifa Ís- land-Færeyjarfélagsins árið 1908, en félagið réð Matthías til þess að koma upp útgerðarstöðinni á svonefndum „Hamri“. Voru reistar miklar bygg- ingar og þar fyrir framan var byggð steinbryggja í höfninni. Var einnig komið fyrir 250 faðma langri keðju með bólfærum. Útgerð þessa erlenda félags misheppnaðist algjörlega, en mannvirkin stóðu hinsvegar áfram og nýttust vel útgerð þeirra Lofts og Þórðar, en eins og áður kom fram keyptu þeir stöðina í árslok 1913. Bátarnir sem fylgdu í kaupunum voru með goðanöfnum: Óðinn, Þór, Freyr og Baldur, en síðar bættust fleiri við. Árið 1917 kaupa þeir bát- inn Heru og sama ár kaupa þeir frá Danmörku bátana Ingólf og Kjartan Ólafsson. Öldum saman hafði ver- ið stunduð sjósókn frá Sandgerði á opnum bátum, enda stutt á fengsæl mið. Með tilkomu vélbátanna í byrj- un tuttugustu aldar, tók byggðin við Sandgerðisvíkina að stækka. Vegna legu víkurinnar og bæjarskerseyrar- innar var þar skjólgott afdrep fyrir vélbáta sem fóru til fiskveiða. Í Sand- gerði fór nú í hönd mikill uppgangs- tími. Meðal annars gerðu ýmsir Ak- urnesingar þar út fjölda vélbáta, auk þess sem fjölmargir aðkomubátar voru í viðskiptum við þá. Loftur Loftsson Loftur Loftsson var fæddur í Götu á Akranesi 15. febrúar 1884, son- ur Lofts Jónssonar en hann drukkn- aði í Hoffmannsveðrinu 1884. Kona hans og móðir Lofts var Valgerð- ar Eyjólfsdóttur. Hún giftist aftur árið 1888 Jóni Benediktssyni bónda og útgerðarmanni í Neðrigötu, síð- ar Aðalbóli. Loftur Loftsson var bú- settur í Aðalbóli ásamt móður sinni, fóstra og hálfsystkinum frá árinu 1900, en systkini hans voru Guðjón Kristinn sem drukknaði af Ingvari í apríl 1906, Halldór, sem síðar kvænt- ist Bjarnfríði Ásmundsdóttur á Há- teigi og Eyborg sem giftist Ólafi A. Guðmundssyni frá Eyri í Ingólfsfirði. Loftur stundaði aldrei sjó, heldur fór hann 14 ára að aldri til Thomsens- verslunar og gerðist afgreiðslumaður, en var þar ekki nema í tvö ár, þ.e. frá 1898 til 1900. Það ár hóf hann störf í verslun Vilhjálms Þorvaldssonar og vann hann þar til 1907, er hann tók sjálfur að hugsa til verslunar. Eftir að Loftur og Þórður hófu útgerð sína og verslun í Sandgerði árið 1913, þá flutti Loftur frá Akranesi og var hann ekki búsettur þar eftir það. Árið 1919 skipta þeir félagar fyrirtæki sínu upp, þannig að Þórður eignast Akra- neshlutann ásamt fjórum bátum, en Loftur Sandgerðiseignirnar ásamt því sem þeim fylgdu, húseignum og bátum. Eftir það rak Loftur útgerð og fiskverkun í Sandgerði til 1936. Á þeim tíma rak hann einnig um skeið útgerð, fiskverkun, fiskverslun og út- flutningsverslun með fisk frá Reykja- vík. Eftir 1936 rak hann útgerð og fiskverkun í Keflavík til æviloka. Árið 1920 kvæntist Loftur Ingveldi Ólafsdóttur og eignuðust þau hjón sex börn. Loftur lést í Reykjavík 24. nóvember 1960. Þórður Ásmundsson Þórður Ásmundsson fæddist á Há- teigi á Akranesi 7. júní 1884, sonur Ásmundar Þórðarsonar útvegsbónda þar, ættuðum úr Elínarhöfða og Ólínu Bjarnadóttur frá Kjaransstöð- um, en þau býli eru bæði á Akranesi. Eins og Loftur vann Þórður einnig sem unglingur við Thomsensverzlun í nokkurn tíma, en stundaði einnig sjó sem ungur maður. Fyrst á kútter- um, en síðar á v.b. Fram. Hann hafði m.a. ásamt fleiri ungum mönnum á Akranesi verið háseti á kútter Haraldi með þeim góðkunna skipstjóra Geir Sigurðssyni, sem gerði sjálfan sig, skipið og Akranes frægt með sinni landsfrægu vísu „Kátir voru karlar á kútter Haraldi“. Árið 1907 hvarf Þórður frá sjómennskunni og stofn- aði verslun og vélbátaútgerð á Akra- nesi ásamt Lofti. Hann tók gagn- fræðapróf frá Flensborg í Hafnarfirði vorið 1906. Haustið 1919 lét Þórður setja upp litla rafstöð í verslunarhús- unum á Akranesi og leiddi frá henni í fimm næstu hús. Þetta var önnur fyrsta rafstöðin á Akranesi. Nokkru síðar hætti Þórður beinum verzlun- arrekstri um mörg ár, en verslunin við héraðsmenn hafði minnkað eft- ir að kaupfélögin komu til sögunnar, er samgöngur bötnuðu við Borgar- nes og farið var að flytja allar vörur í Hvalfjörð af kaupfélaginu þar. Leigði Þórður öðrum aðilum verslunarhús- ið í nokkur ár, en 1938 hóf hann verzlun á ný í sömu húsum. Árið 1920 leigir Þórður Kaupfélagi Akraness verslunina, en Kaupfélag- ið var stofnað 30. júní 1919. Leig- an var 200 krónur um mánuðinn, en auk þess keyptu þeir af honum vöru- leifar verslunarinnar fyrir 2000 krón- ur. Vorið 1925 leigir Jón Sigmunds- son húsnæðið fyrir verslun sína, en á árunum 1927-1930 leigja þeir bræð- ur Sigurður og Daníel Vigfússynir húsnæðið fyrir verslun sína, Bræðra- borg. Hinn 29. maí 1931 er stofnað Pöntunarfélag Akraness. Starfsem- in er hafin í verslunarhúsi Þórðar við Vesturgötu. Upphaflega var þarna pöntunarfélag án sölubúðar, en árið 1934 opnar Pöntunarfélagið sölubúð í húsinu. Líklega er Pöntunarfélag- ið til húsa við Vesturgötuna til vors 1936 að starfsemi þeirra flyst í kaup- félagshúsið við Óðinsgötu 11 (nú Kirkjubraut). Árið 1938 hefur Þórð- ur verslunarrekstur á nýjan leik, eins og áður sagði. Verslun Þórðar Ásmundssonar Árið 1941-42 byggir Þórður svo sitt stóra verzlunarhús við Vesturgötu 48, á sama stað og gamla verslunar- húsið hafði staðið í 33 ár, en eldra húsið var fært og stóð sem viðbygg- ing sunnanvert við hið nýja hús. Flutningur gamla hússins fór þann- ig fram að komið var fyrir sliskj- um undir húsinu og það dregið eftir þeim til þess staðar sem því var ætl- aður til frambúðar, eða sem syðsti hluti hinnar nýju byggingar. Þessi eldri hluti var síðar, fyrir árið 2000, rifinn niður. Nýja verslunarhúsið var langstærsta og veglegasta bygging, sem þá hafði verið reist á Akranesi. Í Byggingasögu húsa á Akranesi seg- ir að Óskar Sveinsson byggingafræð- ingur hafi teiknað húsið. Óskar var afkastamikill hönnuður húsa á Akra- nesi. M.a. teiknaði hann Bíóhöll- ina, Hraðfrystihúsið Heimaskaga, Bjarnalaug og ýmis einbýlishús. Auk þess gerði hann á árinu 1946 til- löguuppdrætti að stóru félagsheim- ili og fundahúsi á Akranesi, en mik- il þörf var þá, og er enn, fyrir slíkt hús. Fyrst þegar sótt var um leyfi fyr- ir þetta verslunarhús á Vesturgötu 48 átti það að vera upp á eina hæð en var þá gerð afturreka vegan tæknilegs galla. Næst þegar málið var tekið fyr- ir var búið að ákveða af eigendum að það yrði upp á tvær hæðir og þannig var húsið reist. Nokkuð hátt ris var yfir efri hæðinni og myndaðist þar ágætt geymslurými. Það var svo ekki fyrr en mörgum árum síðar að þak- inu var lyft og útbúinn þar salur og önnur aðstaða til fundahalda og var það verk unnið af félögunum í Kiw- anisklúbbnum Þyrli hér á Skaga, sem voru þar með sína aðstöðu um mörg ár. Eins og venja var á þessum árum var steypan í húsið hrærð á hönd- um, sett í fötur, og þær hífðar upp með taugum, tengdum blökkum eða talíum. Þá var steypunni ekið með hjólbörum og hellt í mótin. Steypu- Firma Þórðar Ásmundssonar og Lofts Loftssonar á Akranesi og í Sandgerði Hér sést verslunarhús það sem félagarnir Loftur og Þórður reistu árið 1908 við Vesturgötu 48. Myndin er tekin milli 1927-30 en þá leigði verslunin Bræðraborg húsið. Til hægri er íbúðarhús Þórðar Ásmundssonar og fjölskyldu, en það var byggt árið 1913. Hluti mannvirkja Þórðar og Lofts í Sandgerði árið 1914. Sandgerði var ein stærsta verstöð landsins á sínum tíma. Akurnesingar sögðust vera að fara í „Gloríuna“ þegar þeir fóru í verið til Sandgerðis á árunum milli 1914 og 1928. Frá vinstri: Loftur Loftsson, Haraldur Böðvarsson, sem einnig gerði út frá Sandgerði, og Magnús Magnússon á Söndum. Myndina tók Magnús Ólafsson árið 1904 í garð- inum við Böðvarshús á Akranesi. Til vinstri er Hraðfrystihús Heimaskaga h.f., reist á árunum 1943-45 í landi fyrsta býlisins á Skaga, sem einnig bar nafnið Heimaskagi. Þá er lágreist síldarsöltunarhús með fimm móttökuopum. Fyrir miðri mynd er gamla íshúsið sem reist var á Krosshúsalóðinni. Handan Suðurgötunnar er Axelsbúð þar sem áður var verslunar- og vörugeymsluhús Bjarna Ólafssonar & Co.(BOCO). Lengst til hægri sést í enda H.B. húsanna. Mynd: Ragnheiður Þórðardóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.