Skessuhorn - 20.04.2016, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 20168
Nöfn þeirra
sem létust
HOLTAV.H: Tvö banaslys
urðu á Vesturlandi laugardag-
inn 9. apríl síðastliðinn. Ung-
ur maður lést í kjölfar bílveltu
á Holtavörðuheiði. Hann
hét Ingi Þór Magnússon, var
17 ára og búsettur að Hör-
pulundi 4 í Garðabæ. Um
kvöldið fór bifreið í höfnina í
Stykkishólmi og lést ökumað-
ur hennar. Hann hét Hinrik
Rúnar Halldórsson, búsettur
á Tjarnarási 4 í Stykkishólmi.
Hinrik Rúnar lætur eftir sig
eiginkonu og þrjú börn. Út-
för hans fer fram frá Stykk-
ishólmskirkju í dag, mið-
vikudaginn 20. apríl klukk-
an 14. Lionsklúbbur Stykk-
ishólms hefur stofnað styrkt-
arsjóð fyrir fjölskyldu Hin-
riks Rúnars. Bankanúmer er:
0309-13-110224 og kennitala:
610180-0949. -mm
Heldur tónleika
í Akranesvita
AKRANES: Argentínska far-
andsöngkonan Nigrita er nú í
stuttri tónleikaferð um landið.
Einn af viðkomustöðum henn-
ar er Akranesviti og mun Nig-
rita syngja þar föstudaginn 22.
apríl næstkomandi. Með henni
spilar kontrabassaleikarinn
Haraldur Ægir Guðmunds-
son. Á tónleikunum mun Nig-
rita syngja um ástand heimsins
í soul, folk og reggea stíl en hún
leikur einnig á píanó og gítar.
Nigrita er búsett í Austurríki
og hefur gefið út eina plötu en
er nú að vinna að sinni annarri
og stefnir á að hefja upptökur
fyrir hana hér á landi nú í apríl.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20 og er aðgangseyrir 2.000
krónur. -grþ
Samið um að
veiða átta
þúsund tonn
RÚSSLAND: Fulltrúar ís-
lenskra og rússneskra stjórn-
valda hafa skrifað undir samn-
ing um veiðar íslenskra skipa
á árinu 2016 í rússneskri lög-
sögu. Munu Íslendingar sam-
kvæmt honum geta veitt allt
að 8.158 tonn af þorski í rúss-
neskri landhelgi. Þar ef eru
5.098 tonnum úthlutað beint
en eftir er að semja um verð
vegna 3.060 tonna sem ís-
lenskar útgerðir hafa rétt til að
kaupa af Rússum. Samningur-
inn byggir á þríhliða samn-
ingi Íslands, Noregs og Rúss-
lands frá árinu 1999 um veið-
ar á þorski í Smugunni. Ísland
og Rússland semja árlega um
veiðar hvers árs en á fundi í
desember í fyrra náðist ekki
að landa samningi.
-mm
Rannsaka
folaldadauða
LANDIÐ: Á vegum Til-
raunastöðvarinnar á Keldum
og Matvælastofnunar (MAST)
er nú að fara af stað rannsókn á
tíðni og orsökum folaldadauða
hér á landi. Efniviðurinn verð-
ur einnig nýttur til rannsókna
á sviði líffæra- og þroskunar-
fræði. „Rannsóknin byggir á
krufningu folalda sem drepast
eða eru aflífuð fyrir 6 mánaða
aldur og spurningalistum sem
verða lagðir fyrir eigendur.
Rannsóknin er hrossaeigend-
um að kostnaðarlausu að öðru
leyti en því að þeir greiða sjálf-
ir flutningskostnað. Afar mikil-
vægt er að sem flest þeirra fol-
alda sem drepast í vor og fram
á haust komi til krufningar svo
fljótt sem auðið er. Eigend-
ur eru beðnir um að láta Til-
raunastöðina á Keldum vita af
sendingunni í síma 585-5100
(Einar Jörundsson eða Ólöf G.
Sigurðardóttir) og/eða í tölvu-
pósti (meinas@listar.hi.is eða
syni@keldur.is).“ -fréttatilk.
Aflatölur
fyrir Vesturland
9. - 15. apríl
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 13 bátar.
Heildarlöndun: 111.536 kg.
Mestur afli: Hannes Andrés-
son SH: 35.123 kg í sex lönd-
unum.
Arnarstapi 6 bátar.
Heildarlöndun: 45.333 kg.
Mestur afli: Stakkhamar SH:
18.708 kg í tveimur löndun-
um.
Grundarfjörður 5 bátar.
Heildarlöndun: 203.212 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
68.129 kg í einni löndun.
Ólafsvík 10 bátar.
Heildarlöndun: 47.667 kg.
Mestur afli: Kristinn SH:
14.109 kg í þremur löndun-
um.
Rif 8 bátar.
Heildarlöndun: 265.529 kg.
Mestur afli: Örvar SH: 69.580
kg í tveimur löndunum.
Stykkishólmur 5 bátar.
Heildarlöndun: 126.265 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
119.042 kg í þremur löndun-
um.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Þórsnes SH - STY:
71.826 kg. 15. apríl.
2. Hringur SH - GRU:
68.129 kg. 12. apríl.
3. Helgi SH - GRU:
46.453 kg. 11. apríl.
4. Rifsnes SH - RIF:
44.957 kg. 12. apríl.
5. Örvar SH - RIF:
44.676 kg. 11. apríl
Í sumar verður ný aðveitustöð raf-
magns á Akranesi tengd við raf-
dreifikerfi Veitna í bænum. Spennu-
stöðvarnar í bænum verða tengd-
ar hver á eftir annarri og rafmagns-
laust verður í 30 - 120 mínútur hjá
hverjum notanda meðan á tengingu
stendur. Nákvæmari upplýsingar
verða veittar þegar nær dregur, segir
í tilkynningu frá fyrirtækinu. Starfs-
fólk Veitna bendir viðskiptavinum á
að hentugt getur verið að hafa far-
símanúmer sitt á skrá á „Mínum síð-
um“ á vef Veitna þannig að þeir fái
smáskilaboð um væntanlegt straum-
leysi þegar þar að kemur.
Aukin flutningsgeta –
aukið öryggi
Byggð hefur verið ný aðveitustöð
rafmagns á Smiðjuvöllum 24 á Akra-
nesi og leysir hún af hólmi stöðina
við Þjóðbraut 44. Þessa dagana er
verið að leggja lokahönd á uppsetn-
ingu rafbúnaðar í stöðinni. Áform-
að er að tengja háspennudreifikerfið
á Akranesi við nýju stöðina í sumar.
Í háspennudreifikerfi Veitna á Akra-
nesi eru 55 háspennustrengir og
45 spennustöðvar. Stöðvarnar eru
nú tengdar gömlu aðveitustöðinni.
Áætlanir gera ráð fyrir að tengingar
taki 10 virka daga. Tengd verður ein
spennustöð í einu við nýju aðveitu-
stöðina og þannig koll af kolli þang-
að til allar 45 spennustöðvar bæjar-
ins hafa verið tengdar nýju stöðinni.
Notendur sem tengjast viðkom-
andi spennistöð verða án rafmagns á
meðan tengingu hennar við nýju að-
veitustöðina stendur. „Gera má ráð
fyrir að straumleysið vari frá hálfri
klukkustund til tveggja klukku-
stunda komi ekkert óvænt upp á.
Um leið og háspennudreifkerfi bæj-
arins verður tengt við nýja aðveitu-
stöð verður rekstraspennu dreifi-
kerfisins breytt úr 6 í 11 kílóvolt og
með þeirri breytingu eykst flutn-
ingsgeta dreifikerfisins. Starfsfólk
Veitna vonast til að truflanir vegna
rafmagnsleysis verði sem minnst-
ar og að Akurnesingar sýni þessu
skilning. Nánari upplýsingar um
tímasetningu verða veittar þeg-
ar nær dregur, meðal annars með
skilaboðum til íbúa. Á Mínum síð-
um á vef Veitna geta íbúar gengið úr
skugga um hvort rétt farsímanúmer
er skráð,“ segir í tilkynningu.
mm
Eins og Skagamönnum og fleirum
er kunnugt heldur Club 71 árlega
Þorrablót Skagamanna á Akranesi.
Frá upphafi hefur hópurinn lát-
ið gott af sér leiða með því að láta
ágóðann af blótinu renna til íþrótta-
og félagsstarfs á Akranesi. Íþrótta-
félög senda félagsmenn sína til að
starfa á blótinu og við undirbúning
þess og styrkjum er síðan úthlutað
í hlutfalli við unnar vinnustundir.
Að þessu sinni nam heildarágóðinn
rúmum 3,1 milljón króna og skipt-
ist á milli sex félaga sem áttu starfs-
fólk á blótinu; Knattspyrnufélags
ÍA, Sundfélags Akraness, Björgun-
arfélags Akraness, Golfklúbbsins
Leynis, Fimleikafélags Akraness og
Þjóts, íþróttafélags fatlaðra.
Athöfnin fór fram í útibúi Ís-
landsbanka við Dalbraut á Akra-
nesi í liðinni viku. Sævar Freyr Þrá-
insson hélt stutta tölu fyrir hönd
Club 71 og gerði grein fyrir afkom-
unni. Sagði hann ánægjulegt hve
vel hefði gengið og félagsskapurinn
hefði ánægju af því að láta gott af
sér leiða. Frá upphafi hefur Club 71
styrkt félagsstarf á Akranesi um rétt
tæplega 12,5 milljónir með afkomu
af blótinu.
Fulltrúar íþróttafélaganna og
björgunarfélagsins þökkuðu feng-
inn styrk og voru sammála um hve
gott framtakið væri. Styrkir sem
þessir hefðu mikil og jákvæð áhrif
á allt starf félaganna og væru gott
samfélagsverkefni.
kgk
Ágóðinn af Þorrablóti Skagamanna
rennur til samfélagsins
Nýja aðveitustöðin á
Akranesi tengd í sumar
Nýja aðveitustöðin er við Smiðjuvelli
24. Hér er verið að flytja búnað í húsið.
Félagar í Club 71 ásamt fulltúrum íþróttafélaganna sem veittu styrkjunum viðtöku.
Bjarnarbr. 4-6, Borgarnesi, www.safnahus.is, 433 7200
Refir og menn
Sigurjón Einarsson ljósmyndari
Sýningin stendur til 11. nóv.
Opið er til 18.00 opnunardag.
Síðan 13.00-18.00 virka daga.
Maí til ágúst (báðir meðtaldir)
alla daga 13.00-17.00.
Verkefnið er styrkt af
Uppbyggingarsjóði Vesturlands
Verið velkomin á opnun sýningarinnar
Refir og menn
fimmtud. 21. apríl kl. 15.00.
Sigurjón Einarsson hefur getið sér gott orð fyrir myndir úr íslenskri
náttúru. Í samstarfi við Safnahús sýnir hann nú ljósmyndir af
refaskyttum við vetrarveiði. Sýningin byggir á ákvæði
menningarstefnu Borgarbyggðar um mikilvægi listsköpunar og miðlun
menningararfs. Við sama tækifæri verða tónleikar í samstarfi við
Tónlistarskóla Borgarfjarðar þar sem nemendur skólans flytja
frumsamin verk við ljóð Snorra Hjartarsonar. - Allir velkomnir.