Skessuhorn - 20.04.2016, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 201612
Í síðustu viku hófust á Akranesi tök-
ur á amerísku stórmyndinni Fast-8,
sem er áttunda myndin í Fast and the
Furious seríunni. Gríðarlega mikið
tilstand var vegna verkefnisins, tug-
ir tækja og mikill búnaður var flutt-
ur á staðinn og margir sem komu að
undirbúningi og framkvæmd. Marg-
ir fylgdust síðan með úr fjarska þeg-
ar atriði voru tekin upp í nágrenni
hafnarinnar og við Sementsreitinn.
Leitað var til heimafólks við ýmis-
legt sem að tökunum kom. Bæjar-
yfirvöld, iðnaðarmenn, verslunar-
og þjónustuaðilar, björgunarsveit
og fjölmargir aðrir tengdust verk-
efninu með beinum eða óbeinum
hætti. Regína Ásvaldsdóttir bæjar-
stjóri segir verkefni af þessari stærð-
argráðu hafa mikið að segja í samfé-
laginu en hátt í 400 manns komu að
því með ýmsum hætti.
„Verkefnið Fast-8 hefur haft
mikla þýðingu fyrir Akranes,“ seg-
ir Regína. „Á milli 300 og 400
manns koma að verkefninu og hef-
ur það hingað til gengið mjög vel
fyrir sig,“ sagði hún þegar rætt var
við hana á mánudaginn í þessari
viku. Regína hefur verið í reglu-
legu sambandi við stjórnendur hjá
True North, sem stýrir tökunum á
Akranesi, og segir að forsvarsmenn
fyrirtækisins hafi haft sérstaklega á
orði hvað bæjarbúar hafa verið lið-
legir og átt allir sem einn gott sam-
starf við þá. „Sementsverksmiðj-
an ehf. leigir skrifstofur á Mána-
braut til fyrirtækisins og Akranes-
kaupstaður leigir svokallaða Gulu
skemmu við höfnina, efnisgeymsl-
una og sementsþróna. Slökkviliðið
er einnig með verkefni í tengslum
við tökurnar og björgunarsveitirn-
ar hafa staðið vaktina allan tímann.
Einnig hafa fjölmargir verktakar
fengið vinnu við undirbúning.“
Regína fékk að vera viðstödd tök-
ur ásamt bæjarfulltrúunum Rakel
Óskarsdóttur og Ingibjörgu Valdi-
marsdóttur og syni Rakelar og
segir hún að það hafi verið mjög
skemmtileg reynsla. Búið hafi ver-
ið að koma upp þorpi í efnisgeymsl-
unni og sú sjón hafi verið tilkomu-
mikil. „Ekki er hægt að opna efnis-
geymsluna og vera með sýningu eft-
ir að tökuliðið fer, sem hefði verið
skemmtilegt, þar sem það ríkir trún-
aður um leikmyndir þar til myndin
verður frumsýnd. Hins vegar hafa
forsvarsmenn fyrirtækisins lofað að
taka góðar myndir, sem Akranes-
kaupstaður geti þá sýnt opinberlega
eftir frumsýninguna eða í tengslum
við hana, en myndin sjálf verður
frumsýnd í apríl á næsta ári.“ Ein-
hver umræða hefur skapast um það
hversu margar mínútur verði sýndar
frá Akranesi og Mývatni í myndinni
og segist Regína hafa spurt um það
sérstaklega og það verði hugsanlega
um 10 mínútur. mm
Samfélagið tók vel á móti kvikmyndagerðarfólkinu
Nokkrir fulltrúar bæjaryfirvalda fengu að vera viðstaddir tökur á atriði í
myndinni. F.v. Óskar Gísli Búason með Rakel Óskarsdóttur móður sinni, Rafnar
Hermannsson, Regína Ásvaldsdóttir og Ingibjörg Valdimarsdóttir.
Meðfylgjandi myndir voru teknar fyrir síðustu helgi þegar tökur stóðu yfir á Akranesi.
Ljósm. Magnús Magnússon og Finnur Andrésson.
©Finnur Andrésson
©Finnur Andrésson
©Finnur Andrésson
©Finnur Andrésson