Skessuhorn - 20.04.2016, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2016 31
Frá því Félag aldraðra í Borgarfjarð-
ardölum var stofnað árið 1991, hafa
ferðalög félagsmanna verið ríkur
þáttur í starfseminni. Allt frá dags-
ferðalögum til fimm nátta ferðalaga.
Árið 2015 var engin undantekn-
ing þar á. Snemma í maí var haldið
til Reykjavíkur. Fyrsti áningarstað-
ur var Hannesarholt Grundarstíg
10. Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra
Íslands, lét byggja húsið og flutti í
það fyrir réttum eitt hundrað árum.
Núverandi eigendur keyptu hús-
ið árið 2007 með það að markmiði
að stunda þar ýmsa menningarstarf-
semi. Eftir gagngerar endurbætur
var húsið vígt til núverandi starfsemi
árið 2013. Með starfseminni hyggj-
ast eigendur „efla jákvæða, gagn-
rýna hugsun í íslensku samfélagi,
auka skilning á gildi sögunnar fyrir
samtímann og framtíðina og hvetja
til uppbyggilegrar umræðu og sam-
veru“. Við vorum leidd um allt hús-
ið, sem er á fjórum hæðum, og kynnt
starfsemin. Að endingu var snæddur
léttur hádegisverður. Næst lá leiðin í
Alþingishúsið við Kirkjustræti. Þar
tók á móti okkur þingmaður Norð-
vesturkjördæmis, Guðbjartur Hann-
esson frá Akranesi. Hann sýndi okk-
ur þetta virðulega hús, þá hluta þess
sem almenningi er leyft að stíga fæti.
Okkur undraði það hve öryggisvarsla
er ströng og sýnileg. Það er veru-
leg breyting frá fyrri tíð, þegar fólk
gat gengið hindrunarlaust á þing-
palla. Er við kvöddum Guðbjart,
með þökkum fyrir leiðsögnina, ór-
aði ekkert okkar fyrir því að við vær-
um að kveðja þann góða dreng í síð-
asta skipti.
Næsti áfangastaður var í göngu-
færi, Iðnó við Tjörnina. Þar ræð-
ur nú ríkjum Margrét Rósa Gríms-
dóttir. Hún leiddi hópinn um hús-
ið og skýrði frá þeirri starfsemi, sem
nú fer fram í hinu sögufræga húsi,
sem reist var árið 1896. Nú er rek-
in þar veisluþjónusta af ýmsu tagi,
ásamt því að enn eru þar færð leik-
verk á svið. Til að lengja heimferð-
ina var ekinn Hvalfjörður, Geldinga-
dragi og Hestháls og hringnum lok-
að við Brún í Bæjarsveit.
Sumarferð um Vestfirði
Sumarferðin hófst að morgni
þjóðhátíðardagsins 17. júní. Fyr-
ir höndum var þriggja daga reisa
um Vestfirði. Fararstjórinn Hjört-
ur Þórarinsson gerði liðskönn-
un, tuttugu og fimm töldust mætt-
ir í sæti. Ekið var í rólegheitum
(„ það eru bestu heitin,“ segir Bjarni
Har. á Sauðárkróki) upp Borgar-
fjörð og um Bröttubrekku í Dali.
Ekkert bar til tíðinda, augu glödd-
ust við græn tún, sællegar kýr úti á
túni og tvílembur í haganum, auk
alls annars. Brátt vorum við kom-
in yfir Gilsfjörð og þar með í gamla
Vestfjarðakjördæmi. Hjörtur farar-
stjóri og fyrrverandi skólastjóri hef-
ur margt borið við á langri og far-
sælli ævi. Í Geiradalnum benti hann
okkur á gamla veginn yfir Trölla-
tunguheiði. Hann vann við þá vega-
gerð fyrir langalöngu, sem vörubíl-
stjóri á Gamlaford. Nú er sá veg-
ur aflagður fyrir nokkrum árum
og ekinn nýr vegur um Þröskulda,
litlu vestar. Að þessu sinni var ekið
hjá garði á Hólmavík, þeim snyrti-
lega bæ. Ekið um Fellabök og Stað-
ardal og lagt á Steimgrímsfjarðar-
heiði. Sú vegalagning lenti á mörk-
um tveggja tímabila hjá Vegagerð-
inni. Fyrstu áfangarnir voru unn-
ir eftir skipulagi sem tíðkast hafði
áratugum saman, safnað var saman
öllum verkfærum jarðýtum af stóru
svæði, og þeim beitt í verkið. Þegar
best lét mátti sjá tólf slíkar, lúsiðnar,
af ýmsum stærðum að starfi. Seinni
áfangarnir, vestar á heiðinni, niður
Miðdal og Lágadal voru unnir eftir
útboðsaðferðinni. Þá fækkaði vélun-
um. Stærstu áfangana á þessari leið
unnu þeir félagar Gísli Jósepsson
frá Fjarðarhorni og Kristján Guð-
mundsson frá Stakkanesi, vopnaðir
Caterpillar og Komatsu jarðýtum.
Ekið var nú sem leið lá fyrir Ísafjörð
og áð í Reykjanesi. Þar beið á borð-
um léttur hádegisverður, sem hóp-
urinn gerði sér gott af.
Næsti áfangi var stuttur, að hinu
forna höfðingjasetri og kirkjustað,
Vatnsfirði. Þar sat síðastur í langri
röð presta, sr. Baldur Vilhelmsson.
Um hann spunnust þjóðsögur sann-
ar og ýktar. Látum hér með eina af
sannari tegundinni. Eitt sinn síðla
kvölds mættust þeir á göngum Hót-
el Sögu, Guðmundur Hallgrímsson
staðarráðsmaður á Hvanneyri og sr.
Baldur sóknarprestur í Vatnsfirði.
Báðir góðglaðir, hafði presturinn
fengið sér í staupinu, en ráðsmaður-
inn af lífsgleði einni saman. Hvorug-
ur þekkti hinn, en það hindraði ekki
innihaldsríkar samræður. Þar kemur
ræðu prests að hann segir: „Nei þetta
gengur ekki góði, ég þarf að fara að
koma mér í háttinn. Ég á að vera
mættur uppí Hvalfjörð á morgun að
gifta“. Segir þá Guðmundur: „Nú,
hafa þeir ekki mann í því, prestinn í
Saurbæ?“ „Þar er nú einmitt verkur-
inn,“ segir sr. Baldur. „Ég á að fara
að gifta prestinn, góði. Hann er bú-
inn að lifa í synd í mörg ár. Nú verð-
ur ráðin bót á því!“ Nú var eng-
inn sr. Baldur eða frú Ólafía í hlaði
að fagna gestum. Flestir gengu að
gamla bæjarstæðinu, þar sem fund-
ist hafa merkar fornminjar. Eftir að
hafa kvatt Vatnsfjörð var ekið í ein-
um áfanga til Ísafjarðar. Á leiðinni
tók Rúnar á Þverfelli við hljóðnem-
anum. Lýsti hann því sem fyrir augu
bar með sjónum heimamanns. Rún-
ar er Djúpmaður í húð og hár.
Á Ísafirði var ekið rakleitt að veit-
ingastofu einni. Þar beið okkar kær-
komið kaffi og meðlæti. Þá kom til
leiks Sigurður Pétursson, sagnfræð-
ingur frá Ísafirði. Flutti hann okkur
ágrip af merkri sögu Ísafjarðarkaup-
staðar. Undir leiðsögn Sigurðar var
ekið um bæinn þveran og endilang-
an. Sumar gömlu göturnar eru ekki
ætlaðar stórum bílum, en voru samt
eknar. Sigurður hafði orð á því að
það léku ekki allir rútubílstjórar eft-
ir. Voru ferðafélagarnir því býsna
ánægðir með sinn mann. Lokaáfangi
þessa dags var í náttstað á Núpi í
Dýrafirði. Þangað var gott að koma.
Nokkrir úr hópnum höfðu setið þar á
skólabekk fyrir löngu, og einn, Guð-
mundur á Skálpastöðum, kenndi
þar einn vetur fyrir rúmum fimm-
tíu árum. Eftir góðan kvöldverð var
gengið um staðinn við leiðsögn stað-
arhaldarans, Ásvaldar Guðmunds-
sonar, nokkrir gengu lengra, stutt-
an spöl að lystigarðinum Skrúði, sem
enn er á sínum stað í góðri hirðu.
Hinn næsti dagur var tekinn hóf-
lega snemma, enda lá ekkert á. Næsti
náttstaður Breiðavík í gamla Rauða-
sandshreppi, með miðdagsstoppi á
Tálknafirði. Þykk þoka lá á Hrafn-
seyrar- og Dynjandisheiðum, svo vart
sá handa skil. Stórfenglegt útsýnið af
þessum heiðum fór því framhjá okk-
ur í þetta skiptið. Í niðadimmri þok-
unni var ekið um Helluskarð niður
í Trostansfjörð, þaðan um Reykjar-
fjörð og Fossfjörð til Bíldudals, sem
er einn veðursælasti staður Vest-
fjarða. Ekki var stansað þar í þetta
sinn, ekið var rakleiðis um Hálf-
dán til Tálknafjarðar. Í veitingastof-
unni Hópið beið okkar hádegisverð-
ur, og Pálína Kristín Hermannsdótt-
ir, sem kynnti okkur bæinn Tálkna-
fjörð, sem er yngsti þéttbýlisstaður
Vestfjarða.
Eftir góða áningu á Tálknafirði,
var förinni beint um Mikladal áleið-
is til Patreksfjarðar. Ekki var stansað
þar þetta sinnið en ekið um bæinn og
hafnarsvæðið. Á leiðinni inn Rakna-
dalshlíð var ákveðið að taka lykkju á
leiðina, aka Skersfjall og Bjarngötu-
dal til Rauðasands. Skammt frá bæn-
um Hvalskeri er lagt á fjallið, sem er
lægra en flestir aðrir vestfirskir fjall-
vegir u.þ.b. 340 m. Víða meðfram
núverandi vegi má sjá gamla hand-
lagða veginn frá miðjum fjórða ára-
tugnum. Verkstjóri við þá vegagerð
var Lýður Jónsson, sem lengi síð-
ar stýrði vegamálum á Vestfjörðum.
Ekið var á vegarenda innst og yst á
Rauðasandi og litast um til lands og
sjávar. Heilsað var upp á Þorstein
Tryggvason bónda á ysta bænum,
Lambavatni. Hann býr þar mynd-
arlegu kúabúi ásamt foreldrum sín-
um. Viðdvöl var höfð á bakaleið-
inni við Franska kaffihúsið í Kirkju-
hvammi. Fer vel á því að ferðamönn-
um sé þar veittur beini, fyrri búend-
ur, systkinin Ívar og Jóna voru kunn
að gestrisni um sína daga. Eftir að
hafa kvatt Rauðasand að þessu sinni,
var ekið til baka og út með Patreks-
firði sunnanverðum, framhjá bæjun-
um Hvalskeri, Sauðlauksdal, Kvíg-
indisdal og Vatnsdal. Í hinum hrika-
lega Hafnarmúla var áð um stund og
rifjuð upp örlagasaga togarans Sar-
gon GY 858, sem strandaði und-
ir Múlanum í desember 1948. Enn
sjást leifar af flakinu í stórgrýttri fjör-
unni. Nú blasti við byggðarlagið Ör-
lygshöfn og Hafnarvaðall, sem lið-
ast um dalbotninn. Innst í daln-
um er lagt á brattann, upp Vörðu-
brekku og Hafnarfjall. Handan
fjallsins, í Breiðavík, hafa hjónin Ker-
an Ólason og Birna Mjöll Atladótt-
ir byggt upp myndarlega ferðaþjón-
ustu í húsakynnum gamla vistheim-
ilisins, sem þar var rekið um árabil.
Þau hjón ásamt sínu fólki, tóku vel á
móti rosknum Borgfirðingum. Ker-
an á reyndar rætur á þeim slóðum,
Ingvar Ásgeirsson, föðurafi hans var
Borgfirðingur í báðar ættir. Í Breiða-
vík átti hópurinn gott kvöld og góða
nótt.
Heimferðardagurinn reis, bjartur
og fagur. Víð áttum pantað far með
Baldri frá Brjánslæk kl 13:00. Á leið-
inni inn Barðaströnd rifjaði Hjört-
ur fararstjóri upp gömul kynni sín af
sveitarhöfðingjanum Hákoni í Haga,
þegar hann ungur að árum stóð fyr-
ir sundnámskeiði á Barðaströnd fyr-
ir mörgum áratugum. Baldur beið
við festar við bryggjuna á Brjánslæk.
Vel gekk að koma bíl og farþegum
um borð. Ekki er annað vitað en all-
ir hafi átt góða heimkomu eftir far-
sælt ferðalag.
Haustferð á heimaslóðum
Haustferðin var farin á björtum degi
í október. Ekinn var hringur með
útúrdúrum um Stafholtstungur,
Norðurárdal og Þverárhlíð, bæði
troðnar og minna troðnar slóð-
ir. Meðal annars var ekið að Hvítá
við Neðra Nes. Þar sem áður stóð
hið forna Þverárþing er nú farvegur
Hvítár, eftir þau umbrot er urðu á
vatnasviðinu á sextándu öldinni. Að
lokum ferðar buðu hjónin á Hamri í
Þverárhlíð, Jóhannes og Anna upp
á veitingar á heimili sínu. Dvaldi
hópurinn þar góða stund í góðu yf-
irlæti.
Þegar þessar ferðir eru nú rifjaðar
upp, er skrásetjara efst í huga þakkir
til samferðafólks og fararstjóra fyrir
velheppnaðar og skemmtilegar ferð-
ir, sem gott er að minnast. Sérstak-
ar þakkir fær Sæmundur Sigmunds-
son, sem enn sem fyrr lagði til far-
kostina, og ók þeim sjálfur styrkri og
öruggri hendi.
Texti og myndir:
Haukur Júlíusson.
Á faraldsfæti með heldri Borgfirðingum
Hús gömlu skólastjórahjónanna á Núpi; Sigtryggs og Hjaltlínu. Nokkrir ferðafélagar staddir við gosbrunninn í Skrúði. Hjörtur fararstjóri lengst til
hægri.
Þessi gamla ýta hefur staðið vaktina í Fossfirði um árabil og er vinsælt myndefni.
Áður lagði hún vegi um klungur og kletta í Barðastrandarsýslu, kom ný um 1962.
Sæmundarrúta stödd á hlaðinu í Breiðavík. Sæmundur sjálfur undir stýri sem oftar í
þessum ferðum Borgfirðinga.
Glatt á hjalla í haustferð. Jóhannes á Hamri slær hér á létta strengi.