Skessuhorn - 04.05.2016, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 20168
Vindmyllusmíði, efnafræði, vís-
indaheimspeki, stjörnufræði og
japanska er meðal þeirra námskeiða
sem í boði verða í eldri bekkjum
Auðarskóla í Dölum og Grunn-
skólans á Reykhólum þegar Há-
skólalestin heimsækir Búðardal
dagana 6. og 7. maí. Einnig verð-
ur öllum heimamönnum boðið í
fjöruga Vísindaveislu í félagsheim-
ilinu Dalabúð. Háskólalestin sæk-
ir heim þrjá áfangastaði til viðbót-
ar í maímánuði, Blönduós og Voga
á Vatnsleysuströnd en verður auk
þess í Stykkishólmi dagana 20.-21.
maí.
Þetta er sjötta árið í röð sem
Háskólalest HÍ brunar um land-
ið með fjör og fræði fyrir alla ald-
urshópa en hún hefur fengið fá-
dæma góðar viðtökur á þeim 26
stöðum sem sóttir hafa verið heim
frá árinu 2011. Fyrsti áfangastað-
ur Háskólalestarinnar í ár er sem
fyrr segir Búðardalur en þar munu
kennarar og nemendur úr Háskóla
Íslands taka að sér kennslu í eldri
bekkjum í Auðarskóla og Grunn-
skóla Reykhóla föstudaginn 6. maí.
Í boði verða valin námskeið úr Há-
skóla unga fólksins. Daginn eftir,
laugardaginn 7. maí, verður slegið
upp veglegri vísindaveislu í Dala-
búð fyrir heimamenn á öllum aldri.
Þar verða alls kyns tilraunir, þraut-
ir og tæki sem gestir geta kynnst og
prófað, stjörnutjald, efnafræðisýn-
ing Sprengju-Kötu og fjölmargt
fleira. Aðgangur er ókeypis og all-
ir velkomnir.
Meðfylgjandi myndir voru tekn-
ar í fyrri háskólalestum, en auk þess
er hægt að fylgjast með verkefninu
á: http://haskolalestin.hi.is/.
mm
Það markar ákveðin tímamót vor
hvert þegar að eldrauður vagn
er togaður upp Hrannarstíginn í
Grundarfirði og inn á planið á móti
Sögumiðstöðinni. Þar er á ferð
Meistarinn sjálfur með sínar marg-
frægu pylsur og báta. Baldur Orri
Rafnsson var hinn kátasti fyrsta
opnunardaginn og nokkuð bjart-
sýnn fyrir sumarið. Þokkaleg traf-
fík var í vagninn enda langt síðan
Grundfirðingar gátu gætt sér á ein-
um heitum Henrik sem er langvin-
sælasti rétturinn á matseðlinum.
tfk
Spurt í þaula
SNÆFELLSBÆR: Fyrra und-
anúrslitakvöld í spurningakeppni
Snæfellsbæjar fór fram í Röst
á Hellissandi síðasta föstudags-
kvöld. Að venju voru það Lions-
konur í Þernunni sem stóðu fyr-
ir kvöldinu. Fjögur lið af sex
sem komust í undanúrslit tóku
þátt, lið Valafells keppti á móti
liði GSNB Ólafsvík og lið Átt-
hagastofu keppti á móti GSNB
Hellissandi – skvísur. Búið var
að gera smávægilegar breytingar
á keppninni en í staðinn fyrir að
fá vísbendingar um hvaða hlut-
ur væri í kassanum var kominn
liðurinn „svaraðu rangt,“ en þar
fengu keppendur já og nei spurn-
ingar sem þau áttu að svara rangt
til að fá stig. Keppnin var hin
skemmtilegasta og áttu þeir sem
mættu á kvöldið góða stund. Það
voru lið Grunnskóla Snæfellsbæj-
ar sem vann og er því komið í úr-
slit. Síðustu tvö liðin í undanúr-
slitum verða Saumaklúbburinn
Preggý og HH. -þa
Mega veiða 820
tonn af rækju
SNÆFELLSNES: Nýlegur
rannsóknarleiðangur Hafrann-
sóknastofnunar sýnir sterka stöðu
rækjustofnsins við Snæfellsnes og
mældist stofnvísitalan yfir með-
allagi, segir í tilkynningu frá at-
vinnuvegaráðuneytinu. Í ljósi
þessa hefur heildarafli á rækju
verið ákveðinn 820 tonn á kom-
andi vertíð sem hófst 1. maí og er
það í samræmi við ráðgjöf Haf-
rannsóknastofnunar. -mm
Atvinnuleysi er
tæp 4 prósent
LANDIÐ: Samkvæmt Vinnu-
markaðsrannsókn Hagstofu Ís-
lands voru að jafnaði 191.000
manns á aldrinum 16-74 ára á
vinnumarkaði í mars 2016, sem
jafngildir 81,8% atvinnuþátttöku.
Af þeim voru 188.800 starfandi
og 7.200 án vinnu og í atvinnu-
leit. Hlutfall starfandi af mann-
fjölda var 78,7% og hlutfall at-
vinnulausra af vinnuafli var 3,8%.
Samanburður mælinga fyrir mars
2015 og 2016 sýnir að atvinnu-
þátttakan minnkaði lítillega eða
um 0,2 prósentustig. Fjöldi starf-
andi jókst um 1.400 en hlutfall-
ið af mannfjölda stóð hins vegar í
stað. Atvinnulausum fækkaði um
sem nemur 500 manns og hlutfall
þeirra af vinnuaflinu lækkaði um
0,3 stig. -mm
Opinn dagur á
Bifröst 5. maí
BORGARFJ: Á Uppstigningar-
dag, fimmtudaginn 5. maí, klukk-
an 14 - 17, verður nóg um að vera
í háskólaþorpinu á Bifröst. Þá
verður haldinn opinn dagur sem
hefur í áratugi verið árlegur við-
burður hjá Háskólanum. Gefst
með honum einstakt tækifæri til
að skoða háskólaþorpið þar sem
að nemendur fara með gesti í
gönguferðir um svæðið og sýna
þeim t.a.m. húsnæði nemenda,
bókasafn, líkamsræktarstöðina
og fleiri vistaverur á svæðinu. Þá
kynna nemendur, kennarar og
starfsfólk einnig námið við skól-
ann. -mm
Opna
Arionbankamótið
um helgina
BORGARNES: Um næstu
helgi verður Opna Arionbanka-
mót Faxa og Skugga í hesta-
íþróttum haldið á félagssvæði
Skugga í Borgarnesi. Mót-
ið hefst kl. 10 á laugardeg-
inum með keppni í fjórgangi
V2. Keppt verður í eftirfarandi
flokkum og greinum: Polla-
flokkur: Pollatölt, Barnaflokk-
ur: Fjórgangur V2 – Tölt T3,
Unglingaflokkur: Fjórgangur
V2 – Tölt T3, Ungmennaflokk-
ur: Fjórgangur V2 – Tölt T1 –
Tölt T4 – Fimmgangur F2 –
Gæðingaskeið PP1, 2. flokkur:
Fjórgangur V2 – Tölt T3 og
Opinn flokkur: Fjórgangur V2
– Tölt T1 – Tölt T4 – Fimm-
gangur F2 – Gæðingaskeið PP1
– 100 m. skeið P2. -mm
Mæðradags-
ganga Göngum
saman
BORGARNES: Hin árlega
mæðradagsganga styrktarfélags-
ins Göngum saman verður nú
gengin á tæplega 20 stöðum á
landinu og hefst hún klukkan
11 sunnudaginn 8. maí. Í Borg-
arnesi verður gengið frá íþrótta-
miðstöðinni, eftir íþróttavell-
inum, út með Englendinga-
vík, komið við í Brákarey og
loks haldið í átt að Geirabakar-
íi þar sem göngu lýkur. Göngu-
fólk með kerrur eða aðrir sem
af einhverjum ástæðum gætu
átt erfitt með þessa leið getur
valið aðra greiðfærari og sam-
einast hópnum t.d. þegar hann
kemur úr Brákarey. „Megin-
hlutverk Göngum saman er að
afla fjár til grunnrannsókna á
brjóstakrabbameini og styrkja
unga vísindamenn í því skyni.
Landssamband bakarameist-
ara styrkir Göngum saman
með því að selja brjóstabollur í
tengslum við gönguna og gefa
hluta ágóðans til félagsins. Fyr-
ir göngu verður seldur ýmiss
varningur til styrktar félaginu í
íþróttamiðstöðinni. Um er að
ræða boli, höfuðklúta, fjölnota
innkaupapoka, tækifæriskort
o.fl. Þeir sem vilja styrkja fé-
lagið með því að kaupa varning
eru beðnir um að hafa með sér
reiðufé. Gangan tekur um það
bil klukkustund og hentar allri
fjölskyldunni,“ segir í fréttatil-
kynningu. -mm
Ný stjórn HB
Granda
RVK: Halda þurfti fram-
haldsaðalfund í HB Granda
hf. og fór hann fram síðast-
liðinn fimmtudag. Eitt mál
var á dagskrá en það var kosn-
ing stjórnar félagsins. Á fyrri
fundinum náðist ekki sam-
staða um tilhögun stjórnar-
kjörs en nú var beitt hlutfalls-
kosningu og knúðu þannig líf-
eyrissjóðir sem eiga hlut í fyrir-
tækinu fram kosningu um full-
trúa sinn í stjórn. Eftirtaldir
voru kjörnir í stjórn félagsins:
Anna G. Sverrisdóttir, Halldór
Teitsson, Hanna Ásgeirsdóttir,
Kristján Loftsson og Rannveig
Rist. Ný stjórn hélt í framhald-
in stjórnarfund og skipti með
sér verkum. Kristján Loftsson
var kjörinn formaður stjórnar
og Rannveig Rist varaformað-
ur.
-mm
Næstkomandi laugardag er kom-
ið að hinni árlegu stórsýningu Bif-
hjólafélagsins Raftanna og Fornbí-
lafjelags Borgarfjarðar í Brákarey í
Borgarnesi. Sýningin stendur yfir
frá klukkan 13 til 17 og verður engu
til sparað í sýningu á tækjum, hjól-
um, bílum og því sem tengist starf-
semi þessara ört vaxandi félaga.
Stöðugt stærra húsrými í Brákarey
fer undir tómstundastarf. Þannig
frumsýna Raftarnir nú í fyrsta sinn
sal á annarri hæð hússins en þeir
hafa komið sér fyrir ofan við bíla-
safnið. Þennan dag mun svo Skot-
félag Vesturlands og Golfklúbbur
Borgarness verða með opið hús í
æfingasölum sínum sem einnig eru
í sama húsi. Auk þess er von á heim-
sókn ýmissa hjóla- og bílaklúbba.
Meðal annars munu Skuggar á
Akranesi kynna starfsemi sína og þá
er von á félögum úr eðalbílaklúbb-
um, svo sem Mustan klúbbsins og
Cadillac félagsins.
Í porti milli húsa verða bílar
og önnur ökutæki til sýnis, fyrir-
tæki verða með kynningar inni í
gömlu sláturhússréttinni og á safn-
inu verða gullmolar félagsmanna til
sýnis auk þess sem rómuð vöfflusala
fer þar fram. Þá mun trúbador laða
fram létta tóna. Að sögn Jakobs
Guðmundssonar kynningarstjóra
hjá Röftunum er búið að leggja
drög að góðu veðri eins og venjan
er og búist við miklum mannfjölda
í Brákarey. mm
Búist er við fjölmenni og
skemmtilegri sýningu í Brákarey
Meistarinn mættur á planið og Henrik kominn í sölu
Háskólalestin brunar í Búðardal á föstudaginn
Eins og fram kom í Skessuhorni
í síðustu viku hefur Landsbjörg í
samráði við Vegagerðina og Sjóvá
ákveðið að standa að uppsetningu
og kynningu björgunarlykkju, svo-
kölluðu Björgvinsbelti, við áfanga-
staði þar sem hætta getur verið á
drukknun, svo sem við sjó, vötn og
ár. Í fyrsta áfanga verða björgun-
arlykkjur settar upp á 100 stöðum
víðsvegar um landið í sumar. Áður
hafi vinnuhópur áhættugreint og
forgangsraðað stöðum við þjóð-
vegi landsins með tilliti til drukkn-
unarhættu. Þessir 100 staðir, sem
fjölsóttir eru af íbúum og erlendu
sem innlendu ferðafólki, voru sett-
ir í fyrsta forgang og er byrjað að
setja upp björgunarlykkjur á þeim.
Einnig er í bígerð að gefa búnað
í lögreglubifreiðar og til slökkvi-
liða.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbjörgu, vegna fyrirspurn-
ar Skessuhorns, verða settar upp
björgunarlykkjur á níu stöðum á
Vesturlandi. Það er við Borgar-
fjarðarbrú, Kolgrafafjörð, Haf-
fjarðará, við Hraunfossa, á Djúpa-
lónssandi, Skarðsvík, Búðum,
Hellnum og Arnarstapa. Fleiri
staðir gætu átt eftir að bætast við,
að sögn Jónasar Guðmundssonar
hjá Landsbjörgu. mm
Björgunarlykkjur settar upp níu stöðum á Vesturlandi