Skessuhorn - 04.05.2016, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016 25
Vorið 1946 luku 29 piltar búfræði-
prófi frá Bændaskólanum á Hvann-
eyri. Nú eru fjórir þeirra á lífi, þrír
yfir nírætt og sá fjórði 88 ára. Af
þessum árgangi 29 búfræðinga luku
þrír að auki búfræðikandídatsprófi.
Það voru þeir Aðalbjörn Benedikts-
son frá Aðalbóli í Miðfirði, Grím-
ur Jónsson frá Ærlækjarseli í Öxar-
firði og Ólafur Guðmundsson frá
Hvanneyri. Þessi fjórir sem enn lifa
úr hópnum komu nýverið saman
ásamt ekkjum nokkurra til viðbót-
ar og áttu góða stund. Einn þeirra
er Þorsteinn Þorsteinsson frá Húsa-
felli. Gefum Þorsteini orðið um
skólafélaga sína:
„Jón Bergþórsson frá Fljótstungu
í Hvítársíðu fæddist 12. september
1924. Hann hefur eflaust ætlað að
verða bóndi eins og við flestir en ör-
lögin gerðu hann að sendibílstjóra,
síðan að stöðvarstjóra bílastöðvar-
innar. Enginn var frárri á fæti en
hann, enginn mælskari og hagorð-
ari. Hann kvæntist Kristínu Njarð-
vík og áttu þau sex börn og er ætt-
bálkur frá þeim runninn.
Sigurður Þorsteinsson fæddist
24. september 1924. Var hann mik-
ill vinnuþjarkur. Hann var skepnu-
hirðir með afbrigðum og sem nem-
andi á Hvanneyri varð hann yfirmað-
ur í fjósinu sumarið 1945 og vann
þar á við tvo. Að loknu búfræðinám-
inu hélt hann til heimahaga, stað-
festi ráð sitt, kvæntist Ólöfu Brynj-
ólfsdóttur og átti fjögur börn. Þau
stofnuðu nýbýlið Heiði út úr höf-
uðbólinu Vatnsleysu þar sem hann
var borinn og barnfæddur. Sigurður
hefur alla tíð verið sómi sinnar stétt-
ar og fer enn í fjós og sinnir kindum
þótt kominn sé á tíræðis aldur.
Trausti Eyjólfsson fæddist 19.
febrúar 1928, yngstur nemenda í
þesssum árgangi. Hann staðfesti ráð
sitt, kvæntist Jakobínu Jónasdótt-
ur, og stundaði búskap í Skaftafells-
ssýslu og Vestmannaeyjum en gerð-
ist síðar kennari á Hvanneyri og
sinnti þar ýmsum trúnaðarstörfum.
Þau eignaðist sjö börn.“
Þorsteinn Þorsteinsson lauk stúd-
entsprófi árið 1950 og prófi í líf-
efnafræði frá Hafnarháskóla 1956.
Hann vann mest af sínum starfsaldri
fyrir landbúnaðinn. Hann kvæntist
Eddu Emilsdóttur og eiga þau fjög-
ur börn. Eitt barna þeirra, Björn, er
nú rektor Landbúnaðarháskóla Ís-
lands á Hvanneyri.
mm
Tökum að okkur jarðvegsvinnu
t.d. húsgrunna, drenun, niðursetningu rotþróa, múrbrot,
niðurrif, garðavinnu og vegavinnu.
Við erum með kranabíl, gámabíla, traktorsgröfu, 16t hjólagröfu, 2t og 6t beltavélar, vatnstank.
Hafið samband í síma 862-1717
Stauraborun fyrir sumarhús og sólpalla.
Erum með vatnstank fyrir
heitt/kalt vatn og rykbindingu.
Bíla-/vélaflutningar og kranavinna.
Gámaleiga.
Fellum tré og fjarlægum.
Útvegum mold og möl.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Fögnuðu 70 ára búfræðiprófi frá Hvanneyri
Efri röð f.v. Trausti Eyjólfsson, Kristín Guðmundsdóttir, ekkja Ólafs Sigurjónssonar bónda á Stórólfshvoli m.m., Þorsteinn Þor-
steinsson og Edda Emilsdóttir. Neðri röð f.v. Edda Magnúsdóttir, ekkja Páls Jónssonar byggingameistara frá Bjarnastöðum
í Hvítársíðu, Jón Bergþórsson, Sigurður Þorsteinsson og Ástríður Þorsteinsdóttir frá Húsafelli, systir Þorsteins og ekkja Guð-
mundar Pálssonar frá Hjálmsstöðum, sem var bóndi á Húsafelli. Ljósm. Edda Björnsdóttir.