Skessuhorn - 22.06.2016, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 25. tbl. 19. árg. 22. júní 2016 - kr. 750 í lausasölu
Við viljum hafa
pláss fyrir allt
Þegar þörf er á brúar Arion bílafjármögnun
bilið í bílakaupunum.
Kynntu þér kjörin og ólíkar leiðir á arionbanki.is
Fæst án lyfseðils
LYFIS
25. JÚNÍ
BRÁKARHÁTÍÐ
BORGARNESI 2016
25. JÚNÍ
www.brakarhatid.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
7 dagar í
Írska og við
teljum niður...
Unnsteini Guðmundssyni í Grundarfirði er margt til lista lagt. Hann hefur nú nýlokið við smíði á stærðarinnar hvalsugga sem búið er að koma fyrir í Paimpol garðinum í
Grundarfirði. Um söguna á bakvið gerð listaverksins má lesa á bls. 18 í Skessuhorni vikunnar. Ljósm. tfk.
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar
hefur lýst yfir áhuga á að efna til
viðræðna um hugsanlega samein-
ingu fjögurra sveitarfélaga á Snæ-
fellsnesi. Um er að ræða sveitar-
félögin Stykkishólmsbæ, Helga-
fellssveit, Eyja- og Miklaholts-
hrepp og Grundarfjarðarbæ. Með
slíkri sameiningu yrði til sveit-
arfélag með um 2.200 íbúa. Að
sögn Sturlu Böðvarssonar bæjar-
stjóra Stykkishólmsbæjar hefur
síðustu misseri verið unnið skipu-
lega að því í Stykkishólmi að kort-
leggja þá kosti sem bærinn hefur
svo fjölga megi atvinnutækifærum,
íbúum og bæta búsetukosti í bæn-
um. Horft hafi verið til ýmissa at-
riða og efnt hafi verið til samkomu
sem kölluð var „hugarflugsfund-
ur.“ „Þar mættu til samráðs með
heimamönnum brottfluttir vild-
arvinir bæjarins og ráðgjafar. Ein
af forsendum fyrir tillögum hóps-
ins var að auka hagkvæmni í rekstri
sveitarfélagsins með því að sam-
eina þessi fjögur sveitarfélög. Með
þeirri sameiningu fengist um 2.200
íbúa sveitarfélag sem gæti orðið
mjög öflugt til sóknar og varnar í
þágu íbúa,“ segir Sturla.
Grundarfjörður
vill viðræður
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur
þegar fjallað um tillögurnar og sam-
þykkti að fela Sturlu að leita eftir við-
ræðum við allar sveitarstjórnirnar
þrjár um tillöguna um nýtt sveitar-
félag. „Í umræðum um sameiningu á
„Hugarflugsfundinum“ var það nefnt
að nýtt sameinað sveitarfélag gæti
borið vinnuheitið „Eyrbyggjabær,“
þar sem nágrannar okkar hafa náð
til sín Snæfellsnesnafnbótinni með
því að stofna Snæfellsbæ. Með sam-
einingu Staðarsveitar, Breiðuvíkur,
Neshrepps utan Ennis, Ólafsvíkur og
Fróðárhrepps náðist góður árangur
sem hefur orðið til þess með öðru að
hagræðið sem sameiningunni fylgdi
hefur leitt til þess að Snæfellsbær er
mjög öflugt sveitarfélag hvað efna-
hag og rekstur varðar. Með samein-
ingu hinna fjögurra sveitarfélaganna
á Snæfellsnesi gæti eins farið og orð-
ið til annað mjög öflugt samfélag í
öllu tilliti,“ segir meðal annars í bréfi
Sturlu sem sent var til sveitarstjór-
nanna þriggja. Þá óskaði hann eftir
því að oddvitar, forsetar bæjarstjórna
og bæjarstjórar komi saman til að fara
yfir hugmyndirnar og verði það gert í
tengslum við ársfund Héraðsnefndar
Snæfellinga sem boðað verður til inn-
an tíðar. Bæjarstjórn Grundarfjarðar
telur hugmyndir um viðræður sveit-
arfélaganna áhugaverðar og lýsir yfir
vilja til viðræðna. „Bæjarstjórn telur
þó nauðsynlegt að Snæfellsbæ verði
einnig boðið að slíkum viðræðum,
þar sem farið yrði yfir kosti og galla
þess að sameina öll fimm sveitarfé-
lögin á Snæfellsnesi,“ segir í fundar-
gerð bæjarstjórnar Grundarfjarðar
fyrr í mánuðinum. Ef af fyrrgreindri
sameiningu yrði, verða tvö sveitarfé-
lög á Snæfellsnesi; Snæfellsbær með
1.663 íbúa og „Eyrbyggjabær“ með
2.200. grþ
Áhugi fyrir sameiningu fjögurra
sveitarfélaga á Snæfellsnesi
Stykkishólmsbær hefur lýst yfir áhuga á að efna til viðræðna um hugsanlega sam-
einingu fjögurra sveitarfélaga á Snæfellsnesi með vinnuheitið „Eyrbyggjabær“.
Hann er þarna auðkenndur með bláum lit.