Skessuhorn - 22.06.2016, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2016 17
Starfsfólk óskast til
ræstinga á Akranesi
• Reykjavík
• Akureyri
• Selfoss
• Akranes
• Hveragerði Sími 554 6088 • hreint@hreint.is • www.hreint.is 433
.0
98
/1
0.
15
Skilyði fyrir ráðningu:
• Hreint sakavottorð
• Vera 20 ára eða eldri
• Góð kunnátta í ensku
eða íslensku
Upplýsingar eingöngu veittar hjá
Örnu Kristínu Harðardóttur, ráðningarstjóra,
með tölvupósti á arna@hreint.is
Áhugasamir eru beðnir um að leggja inn
umsókn á http://atvinna.hreint.is
bæði í dagvinnu og á kvöldin
Leitað er að starfsmanni sem er jákvæður, þjónustulundaður,
skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum.
Grundarfjarðarbær
Auglýsing um kjörfund vegna forsetakosninga
Kjörfundur vegna forsetakosninga í Grundarrði verður í
Samkomuhúsi Grundararðar laugardaginn 25. júní 2016.
Kjörfundur stendur yr frá kl. 09:00 til kl. 22:00.
Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum.
Kjörstjórn Grundararðar S
K
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Reykholtskirkja
Verið innilega velkomin í Reykholtskirkju
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
- L
jó
sm
. G
Ó
Fermingarmessa:
Sunnudaginn 26. júní klukkan 11:00
Aðalsafnaðarfundur:
Þriðjudag 28. júní klukkan 20:30
Venjuleg aðalfundarstörf
Sóknarprestur og sóknarkall
Snæfellsbær
Auglýsing um kjörfundi
vegna forsetakosninga
laugardaginn 25. júní 2016
Ólafsvíkurkjördeild:
Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum í Ólafsvík. Kosning hefst
kl. 10:00 og stendur til kl. 22:00
Hellissands- og Rifskjördeild:
Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Hellissandi. Kosning hefst
kl. 10:00 og stendur til kl. 22:00
Staðarsveitar- og Breiðuvíkurkjördeild:
Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Lýsuhóli. Kosning hefst
kl. 11:00 og stendur til kl. 20:00
Munið eftir persónuskilríkjum.
Yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Eigendur gistiheimilisins Egils Gu-
esthouse í Borgarnesi, hjónin Gunn-
ar Jónsson og Helga Halldórsdótt-
ir, festu kaup á „nýju“ húsi rétt fyrir
páska. Þar verður boðið upp á gist-
ingu fyrir 15 manns í tveimur hús-
um á lóðinni, auk þess sem opnað
verður kaffihús á neðri hæð húss-
ins að Brákarbraut 11, Kaffi Brák.
Húsið sem um ræðir er ekki bein-
línis nýtt en eflaust þekkja það flest-
ir Borgnesingar en um er að ræða
elsta íbúðarhús bæjarins, Kaupang.
Það var árið 1876 sem Jón Jónsson,
kallaður Akra-Jón, sótti um að fá út-
hlutaðri verslunarlóð við Brákarpoll
í Borgarnesi. Þann 18. júní sama
ár sigldi skip Jóns inn á Brákarpoll
hlaðið húsaviði frá Noregi og með
í för var norskur smiður, Ole Johan
Halldórsen, sem byggði íbúðarhúsið
Kaupang, sem nú fær nýtt hlutverk.
Áður reisti Ole verslunarhús þar
sem Landnámssetur Íslands er nú.
Eftir að Akra-Jón missti húsið vegna
skulda árið 1886 í hendur Lange
verslunarinnar var Thor Jenssen
ráðinn þar sem verslunarstjóri. Kona
Thors var Margrét Þorbjörg Krist-
jánsdóttir og fæddust fjögur elstu
börn þeirra hjóna í Borgarnesi, þar á
meðal Ólafur Thors fyrrum forsæt-
isráðherra. Jón Björnsson frá Bæ og
kona hans Helga María bjuggu síð-
an í um 40 ár í húsinu eftir að Jón
keypti reksturinn af Lange verslun-
inni. Blaðamaður Skessuhorns sett-
ist niður með Helgu og ræddi við
hana um húsið og áform þeirra með
Egils Guesthouse.
Tóku við húsinu í mjög
góðu ástandi
Gunnar er fæddur og uppalinn í
Borgarnesi en Helga ólst upp á
Snæfellsnesi en fluttist í Borgar-
nes árið 1981. Saman eiga þau þrjú
uppkomin börn. Þau hafa bæði ver-
ið í annarri vinnu samhliða rekstri
gistiheimilisins en Gunnar er bæði
smiður og múrari og rekur fyrirtæk-
ið Nesafl. Helga starfar hjá Ráðgjaf-
armiðstöð landbúnaðarins á Hvann-
eyri. Þá hefur Hafþór Ingi, elsti son-
ur þeirra, staðið vaktina við rekstur
gistiheimilisins síðustu tvö ár. End-
urbætur á húsinu hafa gengið vel
fyrir sig en að sögn Helgu var ekki
margt sem þurfti að gera. „Við þurft-
um að bæta við snyrtingum og upp-
færa þær sem fyrir voru en það hafði
verið svo vel hugsað um húsið af
fyrri eigendum svo það var lítið ann-
að sem þurfti að gera. Við ákváðum
líka að halda svolítið í sál hússins og
gera ekki miklar breytingar á því,“
segir Helga. „Eldhúsið er einstak-
lega fallegt og í góðu ástandi en þar
er innrétting sem væntanlega hefur
verið sett upp í kringum 1950. Hús-
ið hefur ekki tekið miklum breyting-
um frá því það var byggt, útidyrnar
hafa jú verið færðar og húsið hefur
verið klætt bárujárni. Undir klæðn-
ingunni má finna upprunalegu pa-
nilklæðninguna og væri mjög gam-
an að taka bárujárnið af einn daginn
og færa húsið í upprunalegt horf.
Það er þó ekki ljós hvenær við látum
verða af því.“
Kaffi Brák
Fyrir eru tvö hús í Borgarnesi sem
tilheyra Egils Guesthouse. Hús við
Egilsgötu 8 keyptu þau Gunnar
og Helga árið 2010 í samstarfi við
Finnboga Jónsson, bróðir Gunnars,
og konu hans, Kristínu Ósk Hall-
dórsdóttur. Áttu þeir bræður teng-
ingu við það hús en amma þeirra og
afi bjuggu þar í 20 ár. Húsið var gert
upp og opnað sem gistiheimili árið
2011 og tveimur árum síðar bættist
seinna húsið við, Egilsgata 6. Finn-
bogi og Kristín hafa nú dregið sig
út úr rekstrinum sökum anna í sinni
vinnu. Í húsunum á Egilsgötu hafa
gestir haft sitt eigið eldhús en ekki
hefur verið boðið upp á mat með
seldri gistingu. „Hér í Kaupangi
verðum við með sal og eldhús þar
sem við ætlum að bjóða upp á morg-
unverð fyrir alla okkar gesti, það er
ný viðbót við okkar þjónustu. Minn-
isvarðinn um Þorgerði Brák er í bak-
garðinum hjá okkur og því lá beinast
við að kaffihúsið bæri nafn hennar.
Yfir daginn verður því kaffihús hér
fyrir alla, Kaffi Brák, þar sem boð-
ið verður upp á kaffi, brauð, kökur,
öl og vín. Þetta verður þó ekki bar
og mest áhersla lögð á heimabakað
meðlæti og gott kaffi,“ segir Helga.
arg
Egils Guesthouse bætir við sig húsi
Elsta íbúðarhúsið í Borgarnesi fær nú nýtt hlutverk
Hafþór Ingi, Gunnar og Helga fyrir framan Kaupang í Borgarnesi.
Notalegt horn í Kaffi Brák. Þarna gæti verið gott að setjast niður með ilmandi kaffi
og líta í bók. Ljósm. Helga Halldórsdóttir.
Ljósmynd frá Safnahúsi Borgarfjarðar af húsunum við Brákarsund.