Skessuhorn


Skessuhorn - 22.06.2016, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 22.06.2016, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 201612 Laxveiðisumarið fram að þessu er með þeim fjörugri í manna minn- um. Veiðin gengur frábærlega og víða hefur sést til laxa í ám sem fram til þessa eru þekktar fyrir að vera síð- sumarsár. ,,Við vorum að koma af Strauma- svæðinu í Borgarfirði og var þetta frábær ferð. Mikið var af laxi,“ sagði Hilmar Ragnarsson sem var á árbakk- anum fyrir fáum dögum. „Við urðum varir við mikið af fiski, bæði eins og tveggja ára lax og settum í nokkra en náðum að landa þremur. Sá stærsti var tíu punda. Svæðið er skemmti- legt og gaman að veiða þarna,“ sagði Hilmar ennfremur. Ævintýraleg byrjun í Langá „Við vorum að byrja og það er mikið af fiski um alla á. Erum nú búnir að fá tvo laxa strax og setja í fleiri,“ sagði Jogvan Hansen söngvari á bökkum Langár á Mýrum í gærmorgun, en þar var þá að hefjast veiðin. Talsvert er um liðið síðan fyrstu laxarnir sáust í ánni og fyrir ofan teljara hafa aldrei gengið fleiri laxar á þessum tíma. „Þetta verður veisla ef svona held- ur áfram, fiskur er víða og mikið æti. Ætli maður setji ekki í fisk bráðum,“ sagði Jogvan hress í bragði og sérlega ánægður að vera kominn á árbakk- ann enn og aftur. Hann veiðir þarna með frændum sínum frá Færeyjum og fleirum góðum mönnum. Mikið af laxi hvarvetna í ánum Það var mikið fjör við Langá á Mýrum í gærmorgun og fyrstu laxarnir strax komnir á land. Hér eru færeysku veiðifélagar Jogvans Hansen, sem tók myndina. Hilmar Ragnarsson með tíu punda lax úr Straumunum í Borgarfirði. Vivica Anna Gardarsson kom frá Danmörku í febrúar og hefur ver- ið í starfsþjálfun hjá teiknistofunni Landlínum í Borgarnesi, en hún á ættir sínar að rekja í Borgarfjörð- inn. Vivica er að ljúka bachelor námi í landslagsarkitektúr við Há- skólann í Kaupmannahöfn. Sam- hliða starfsnáminu hefur hún ver- ið að vinna að lokaverkefni þar sem viðfangsefnið er göngustígur meðfram strandlengjunni í Borg- arnesi. „Mér finnst vanta fleiri göngustíga í Borgarnesi. Svona stígar eru um allt í Kaupmanna- höfn og þaðan kemur í raun hug- myndin,“ segir Vivica. „Umhverfið við Borgarnes er fallegt og bærinn er ríkur af sögu. Hér stoppa margir ferðamenn og umferð í gegnum bæinn er orð- in töluverð. Svona stígur gæti því verið góður bæði fyrir íbúa og ferðamenn,“ segir Vivica í sam- tali við Skessuhorn. Í verkefninu kemur einnig fram áhrif stígsins á lýðheilsu en bætt aðgengi að úti- vistarstíg gæti verið hvatning fyr- ir fólk til að hreyfa sig meira. Það myndi þá hafa jákvæð áhrif á heils- una. Hún segir þó ekki víst að stíg- urinn verði lagður enda hafi þetta fyrst og fremst verið skólaverkefni hjá henni. Hún bætir því þó við að möguleikinn sé vissulega fyr- ir hendi, en líklega verði fjármagn og framkvæmdavilji sveitarstjórn- arfólks að ráða því hvort ráðist verði í svona framkvæmdir. arg Hannaði göngustíg eftir strandlengju Borgarness Vivica Anna Gardarsson hefur verið að vinna að lokaverkefni í landslagsarki- tektúr við Háskólann í Kaupmannahöfn þar sem viðfangaefnið er göngustígur meðfram strandlengju Borgarness. Teikning af því hvernig göngustígur sem Vivica hannaði myndi liggja. Teikning af göngubrú. Teikning af göngustíg meðfram strandlengju Borgarness. Teikning af útsýnisbrú út frá göngustígnum. Opnað var fyrir sölu veiðileyfa á Arnarvatnsheiði 15. júní síðast- liðinn. Sama dag var talsverður straumur veiðimanna á heiðina enda höfðu margir beðið þess með óþreyju að komast af stað. Vegur- inn er í góðu ástandi allt frá Kal- manstungu og greiðfært í vötnin. Einungis vaðið á Norðlingafljóti hamlar því að annað en vel búnir jeppar eigi erindi á heiðina. Und- irritaður fór á þjóðhátíðardaginn í veiðiferð í Úlfsvatn. Þetta ann- að stærsta vatn heiðarinnar gaf talsvert af fiski í stykkjum talið en fiskurinn er áberandi smærri en venja er til. Það er hins vegar afar misjafnt milli vatna hvort fiskur- inn er stór eða lítill. Upplifunin var hins vegar góð. Þennan dag var mikil fluga sem angraði veiði- menn og algjörlega nauðsynlegt að hafa flugnanet með í ferð. Líkt og síðari ár eru veiðileyfi á Arnarvatnsheiði seld í söluskúrn- um við Hraunfossa. Pantanir eru á netfangið runas@hive.is og nán- ari upplýsingar að fá á arnarvatns- heidi.is mm/ Ljósm. gó. Góðir vegir og kyrrð sem fyrr á Arnarvatnsheiði Þorbjörn Heiðar Heiðarsson búinn að gera að aflanum úr Úlfsvatni. Fiskurinn var smár, en tók ágætlega. Á spúndrætti á Úlfsvatni. Bleikjutittur kominn á færið. Á spúndrætti á Úlfsvatni. Bleikjutittur kominn á færið. Í tilefni þjóðhátíðardagsins var þessi rammíslenski spúnn prófaður á Úlfs- vatni, reyndar með litlum árangri. Veiðimenn raða sér við bakkann við sunnanvert Úlfsvatn og veiða á flugu eða maðk. Margir höfðu þó báta og gátu siglt um vatnið eða látið ferjað sig á aðra staði við vatnið.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.