Skessuhorn - 22.06.2016, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2016 13
Faðir: Steðji frá Skipaskaga
(aðaleink. 8,45)
Móðir: Skynjun frá
Skipaskaga (aðaleink.8,29)
Meitill tekur á móti
hryssum á Litlu-Fellsöxl í
sumar.
Hann vann sér rétt til
þátttöku á Landsmóti Hesta-
manna á Hólum í sumar
í flokki 4. vetra stóðhesta,
en við höfum ákveðið að láta
gott heita með hann í bili og
mæta ekki með hann þar.
Hann á framtíðina fyrir sér og
mætir vonandi þeim mun betri
á LM 2018!
Verð á folatolli er 50 þúsund +
25 þúsund fyrir hagagjald og
eina sónarskoðun = Samtals
75.000 kr. + virðisaukaskattur.
Upplýsingar:
Jón Árnason s: 899-7440
Sigurveig s: 848-7839
skipaskagi@gmail.com
Meitill frá Skipaskaga
IS2012101046
Sköpulag: 8,13 Kostir: 8,31 Aðaleinkunn: 8,24
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Eins og kunngut er verður Ung-
lingalandsmóti UMFÍ haldið í
Borgarnesi um verslunarmanna-
helgina, dagana 28. til 31. júlí.
Ungmennasamband Borgarfjarð-
ar sér um undirbúning og skipulag
í samvinnu við starfsmenn UMFÍ.
Ráðinn hefur verið verkefnisstjóri
landsmóts og sinnir Eva Hlín Al-
freðsdóttir því starfi. Þá er sér-
stök mótsnefnd UMSB að störf-
um. Unglingalandsmótið var síð-
ast haldið í Borgarnesi árið 2010.
Þar sem stutt er um liðið eru
mannvirki til staðar og þekking
að halda slíkt stórmót. Búist er við
1650 keppendum og að um 13.000
manns sæki Borgarnes heim um
verslunarmannahelgina, eða svip-
aður fjöldi og fyrir sex árum.
Mótssvæðið í Borgarnesi verð-
ur að mestu við íþróttamiðstöðina,
en einnig verður keppni á golf-
vellinum að Hamri, á svæði hesta-
mannafélagsins Skugga, í grunn-
skólanum í Borgarnesi, Mennta-
skóla Borgarfjarðar, húsnæði Skot-
Vest í Brákarey og á Akrabraut,
motocrosssvæðinu á Akranesi.
Tjaldbúðir verða í landi Kárastaða
ofan við iðnaðarsvæðið á Sólbakka
í Borgarnesi. Kapp verður lagt á
að tjaldsvæðisgestir þurfi ekki að
fara á einkabílnum á milli tjald-
búða og keppnisstaða og verða því
tíðar rútuferðir í upphafi og lok
keppnisdaga en með reglubundn-
um hætti þess á milli.
mm
Búist við þrettán þúsund gestum á
Unglingalandsmót í Borgarnesi
Svipmynd frá ULM í Borgarnesi árið 2010. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Hollvinasamtök Borgarness gerðu
fyrstu atlögu að lúpínu á Búðarkletti
í Borgarnesi síðastliðinn miðviku-
dag. Í tilkynningu frá hópnum sagði
að verkefnið væri hugsað sem til-
raunaverkefni til 5-7 ára og að þetta
væri fyrsta sóknin gegn plöntunni á
óæskilegum stöðum. „Borgarbyggð
og Hollvinasamtökin sóttu um styrk
úr Framkvæmdasjóði ferðamanna-
staða fyrir endurbætur á svoköll-
uðum Söguhring, sem m.a. liggur
hjá Búðarkletti,“ sagði Hrafnhild-
ur Tryggvadóttir verkefnastjóri hjá
Borgarbyggð í samtali við Skessu-
horn. „Styrkurinn er ætlaður til að
bæta aðgengi ferðamanna að fjöl-
sóttum ferðamannastöðum í neðri
bænum í Borgarnesi svo sem að
minnismerkinu á Búðarkletti og
draga úr álagi á viðkvæman gróður.
Hluti af verkefninu er umhverfisá-
tak á Búðarkletti þar sem markmið-
ið er að hefta útbreiðslu ágengra teg-
unda svo sem lúpínunnar. Við vilj-
um halda í þau einkenni sem holtin
í Borgarnesi hafa svo sem klappir og
lággróður á þessu holti. Mótframlag
Borgarbyggðar og Hollvinasamtak-
anna er vinna við verkefnið, verk-
efnastjórn, stígagerð og umhverfisá-
tak á Búðarkletti,“ segir Hrafnhildur
Ráðist gegn lúpínu í fegrun Búðarkletts
og bætir því við að eingöngu sé um
að ræða þetta afmarkaða holt og að
ekki væru áform um að ráðast gegn
lúpínunni á svo skipulagðan hátt á
fleiri holtum í Borgarnesi.
arg
Þær voru mættar á miðvikudaginn til að hreinsa til á Búðarkletti.
SEPT O AID eru þurrfrystar örverur tilbúnar til
að brjóta niður allan lífrænan úrgang í rotþróm.
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
KOMDU ROTÞRÓNNI
Í LAG MEÐ
SEPT-O-AID
UMHVER
FISVÆN
VARA F
RÁ KEM
I
Samsetning 13 mismunandi örvera hjálpar til að vinna á og minnka fastan úrgang
og breyta í fljótandi form ásamt því að eyða allri ólykt frá rotþrónni. Einfalt í notkun;
sett í klósett skálina og beðið í 20 mínútur, því næst er efninu skolað niður.
Snorrastofa í Reykholti
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Sunnudagur 26. júní 2016, kl. 15
Gengið um
sögustaðinn Reykholt
Boðið verður til gönguferðar
um Reykholt með nokkrum
áningum. Þar verður rakin saga
mannlífs og mannvirkja um
aldir undir leiðsögn sr. Geirs
Waage og Óskars Guðmunds-
sonar rithöfundar.
Allir velkomnir
Gangan tekur um klukkustund
og hefst við inngang
Snorrastofu við neðra bílaplan