Skessuhorn


Skessuhorn - 22.06.2016, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 22.06.2016, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 20166 Á laugardaginn varð bilun í bún- aði til þess að sandsíló á athafna- svæði fyrrum Sementsverksmiðju á Akranesi yfirfylltist og sand- mökk lagði yfir nærliggjandi hús og garða. Gunnar H. Sigurðs- son, framkvæmdastjóri Sements- verksmiðjunnar, sagði í samtali við fréttastofu RUV að óhappið hafi orðið vegna mannlegra mis- taka þegar verið var að framleiða þurrkaðan og malaðan sand. Fyrir mistök yfirfylltist sandsíló þannig að talsvert magn af sandi þrýstist út. Rykmökkurinn var svo mikill að um tíma byrgði sýn í nágrenn- inu, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Þar sem nágrannar hafa áður orðið fyrir tjóni þegar sement hefur sloppið út óttuðst þeir hið versta í fyrstu. Þegar í ljós kom að einungis var um sand að ræða létt- ist heldur brúnin á fólki. Engu að síður lá þykkt lag af sandi yfir öllu. Slökkvilið Akraness var kallað út til að hreinsa svæðið umhverfis verk- smiðjuna. Fyrst var nágrenni verk- smiðjunnar hreinsað en íbúum við Mánabraut og Suðurgötu bauðst eftir helgina hreinsun á sandlaginu á kostnað verksmiðjunnar. mm Atvinnurekendur greiða nú meira LANDIÐ: Samkvæmt kjara- samningi aðildarfélaga ASÍ og Samtaka atvinnulífsins sem und- irritaður var 21. janúar síðast- liðinn hækkar mótframlag at- vinnurekenda í lífeyrissjóð um samtals 3,5% stig á samnings- tímanum. Hækkunin kemur til framkvæmda í þremur áföngum, 0,5% stig 1. júlí næstkomandi, 1,5% stig 1. júlí 2017 og um 1,5% stig 1. júlí 2018. Skylduið- gjald til lífeyrissjóðs samkvæmt samningi þessum verður þá samtals 15,5% frá 1. júlí 2018, sem skiptist í 4% iðgjald launa- manns og 11,5% mótframlag at- vinnurekanda. Hækkun fram- lags atvinnurekenda til lífeyris- sjóðs um 0,5% frá og með 1. júlí 2016 verður fyrst um sinn ráð- stafað í samtryggingu viðkom- andi lífeyrissjóðs þar til valrétt- urinn tekur gildi frá og með 1. júlí 2017. -mm 4G sambandi komið á STYKKISHÓLMUR: Síma- fyrirtækið Nova hefur nú sett upp 4G sendi í Stykkishólmi sem stórbætir þjónustu við- skiptavina fyrirtækisins á svæð- inu. „Við hlökkum til að geta þjónustað viðskiptavini okkar í þessum landshluta enn bet- ur,“ segir í tilkynningu. Nova er annað stærsta farsímafyrirtækið hér á landi og var fyrst íslenskra símafyrirtækja til þess að bjóða 4G/LTE þjónustu. „4G/3G þjónusta Nova nær til 96% landsmanna en sífellt er unn- ið að því að efla og þétta kerfið enn frekar.“ -mm Tæplega 600 hrað- akstursbrot VESTURLAND: Lög- reglumenn á Vesturlandi kærðu alls 37 ökumenn fyrir of hraðan akstur í lið- inni viku. Sá sem ók hrað- ast mældist á 128 km/klst. Þá mynduðu hraðamynda- vélar 550 hraðakstursbrot í vikunni. Upp kom eitt ölvunarakstursmál og alls urðu átta umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi en engin slys urðu á fólki. Einnig voru skráningarnúmer tekin af fimm ökutækjum vegna vanrækslu á skoðun og vegna trygginga. Á Akra- nesi var brotist inn í bát í Slippnum í liðinni viku. Þar voru hurðir brotnar upp til að komast að lyfja- skáp og lyfjum stolið úr honum. Lyfjum var einnig stolið í heimahúsi. Þá var lögregla kölluð til vegna ölvaðs manns á veitinga- stað. Leist gestunum eitt- hvað illa á að hann var að sýna hníf inni á staðnum. Ekki ógnaði hann þó nein- um að því er virðist. Lög- regla lagði hald á hnífinn. -grþ Tökur á sjón- varpsþáttaröð AKRANES: Í gær fóru fram tökur fyrir sjón- varpsþáttaröðina „Fang- ar“ á Sjúkrahúsinu á Akra- nesi. Þáttaröðin er fram- leidd af íslenska fram- leiðslufyrirtækinu Mystery sem framleiddi m.a. kvik- myndina Málmhaus sem Ragnar Bragason leikstýrði en hann leikstýrir einnig þessari þáttaröð. Þættirn- ir fara í sýningu á næsta ári en mikið er lagt í þá; þeir hafa fengið styrk bæði frá Kvikmyndamiðstöð Íslands sem og hjá Norræna kvik- mynda- og sjónvarpssjóðn- um. Allar ríkissjónvarps- stöðvar Norðurlandanna hafa tryggt sér réttinn á að sýna þá. 40 manns vinna við gerð þáttaraðarinn- ar í dag á sjúkrahúsinu en aðeins eru ráðgerðir tveir tökudagur á Akranesi áður en lokið verður við að taka upp þættina á höfuðborg- arsvæðinu. -bþb Mæðgurnar Fanney Guðbjörns- dóttir og Helga Stefánsdóttir komu færandi hendi á kvennadeild Heil- brigðisstofnunar Vesturlands í lið- inni viku. Færðu þær deildinni svo- kallaða uglupoka, sem eru hand- prjónaðir ungbarnapokar. Pokarn- ir voru fjórtán talsins en Fanney á fjórtán barnabörn og því var einn poki gefinn fyrir hvert barnabarn. Mæðgurnar prjónuðu uglupok- ana, ásamt Eyju Rós sem er yngst af ömmubörnum Fanneyjar. Á meðfylgjandi mynd má sjá Fanneyju, Helgu og Eyju Rós ásamt ljósmæðrunum Önnu Björnsdóttur og Valgerði Ólafsdóttur. grþ Færðu kvennadeildinni uglupoka Bilun orsakaði sandblástur yfir nærliggjandi hús Hér eru slökkviliðsmenn að hreinsa athafnasvæðið við verksmiðjuna. Þykkt sandský barst yfir nærliggjandi hús.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.