Skessuhorn - 22.06.2016, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 20168
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 11. júní – 17. júní
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 17 bátar.
Heildarlöndun: 35.445 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 15.020
kg í einni löndun.
Arnarstapi 7 bátar.
Heildarlöndun: 40.650 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
37.115 kg í fimm löndunum.
Grundarfjörður 22 bátar.
Heildarlöndun: 290.784 kg.
Mestur afli: Þórunn Sveins-
dóttir VE: 168.862 kg í tveim-
ur löndunum .
Ólafsvík 45 bátar.
Heildarlöndun: 208.277 kg.
Mestur afli: Guðmundur
Jensson SH: 28.913 kg í þrem-
ur löndunum.
Rif 29 bátar.
Heildarlöndun: 208.886 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
62.073 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 20 bátar.
Heildarlöndun: 73.030 kg.
Mestur afli: Fjóla SH: 7.903
kg í tveimur löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Þórunn Sveinsdóttir VE –
GRU: 106.908 kg. 13. júní.
2. Tjaldur SH – RIF:
62.073. kg. 15. júní.
3. Þórunn Sveinsdóttir VE –
GRU: 61.954 kg. 16. júní.
4. Rifsnes SH – RIF:
55.694 kg. 14. júní.
5. Hringur SH – RIF:
48.275 kg. 15. júní.
Eftirlit með
matjurtum til
sveitarfélaga
LANDIÐ: Um síðustu
mánaðamót tók gildi breyt-
ing á lögum um matvæli nr.
93/1995. Með breyting-
unni flyst eftirlit með fram-
leiðslu matjurta frá Mat-
vælastofnun til heilbrigðis-
nefnda (heilbrigðiseftirlits)
sveitarfélaga en framleiðsla
matjurta telst til frum-
framleiðslu. Breytingin er
gerð að ósk opinberra eft-
irlitsaðila. „Lagabreyting-
in mun einfalda aðstæður
fyrir framleiðendur mat-
jurta sem munu eingöngu
vera undir eftirliti eins að-
ila, þ.e. hlutaðeigandi heil-
brigðiseftirlits. Þetta er
jafnframt hagkvæmara fyrir
íslenska ríkið og í samræmi
við stefnu ríkisstjórnarinn-
ar um einfaldara og skil-
virkara regluverk fyrir at-
vinnulífið,“ segir í tilkynn-
ingu frá Matvælastofnun,
sem eftir sem áður verður
með eftirlit með allri frum-
framleiðslu matvæla ann-
arra en matjurta. -mm
Tónlistar-
skólafólk
langþreytt á
samningsleysi
LANDIÐ: Tónlistarkenn-
arar fjölmargra tónlistar-
skóla hafa síðustu daga sent
frá sér ályktanir og yfir-
lýsingar þar sem þeir lýsa
furðu yfir þeirri stöðu sem
upp er komin í samninga-
viðræðum þeirra við Sam-
band íslenskra sveitarfé-
laga. Tónlistarskólakenn-
arar innan Félags kenn-
ara og stjórnenda tónlist-
arskóla (FT) hafa nú verið
samningslausir í rúmt hálft
ár og engin lausn virðist í
sjónmáli í deilunni. Hin
ýmsu félög tónlistarskóla-
fólks hafa ályktað. Þar seg-
ir efnislega að á síðustu
árum hafi myndast launa-
bil milli kennara og stjórn-
enda í FT og sambærilegra
hópa í öðrum skólagerð-
um. „Þá þróun er nauðsyn-
legt að stöðva og leiðrétta,“
sagði meðal annars í álykt-
un kennara og stjórnenda
við Tónlistarskólann á Ak-
ureyri.
-mm
Slitnir strengir, sem áður hét Þjóð-
lagasveit Tónlistarskólans á Akra-
nesi, fékk á þjóðhátíðardaginn út-
nefningu sem bæjarlistamaður Akra-
ness árið 2016. Tók Skúli Ragnar
Skúlason stjórnandi og stofnandi
sveitarinnar á móti viðurkenning-
unni. Sveitin hefur verið starfrækt í
þeirri mynd sem hún er í dag allt frá
2001. Regína Ásvaldsdóttir bæjar-
stjóri sem afhenti viðurkenninguna
sagði að í rökstuðningi menningar-
og safnanefndar fyrir valinu kæmi
fram að þjóðlagasveitin hefði al-
gera sérstöðu á íslensku tónlistar-
sviði, með að samþætta í listsköpun
sinni ólík listform í heildrænu verki.
Hljóðfæraleikur, söngur, leiklist og
ljóð væru aðalsmerki sveitarinnar.
Hefur hljómsveitin vakið mikla at-
hygli fyrir nýstárlegan flutning.
Í Slitnum strengjum eru 19 fiðlu-
leikarar, allt konur á aldrinum 18-27
ára. Að auki hafa þrír meðleikarar
fylgt hópnum sem leika á slagverk,
bassa og píanó. Það eru þeir Birgir
Þórisson, Eiríkur Guðmundsson og
Sigurþór Þorgilsson. Fiðluleikarar
og flytjendur í sveitinni eru: Arna
Pétursdóttir, Ása Katrín Bjarnadótt-
ir, Gunnþórunn Valsdóttir, Halla
Jónsdóttir, Harpa Lind Gylfadóttir,
Helena Másdóttir, Helga Margrét
Aðalsteinsdóttir, Hjördís Tinna
Pálmadóttir, Hrefna Berg Péturs-
dóttir, Hlín Guðný Valgarðsdótt-
ir, Hulda Halldórsdóttir, Jóhanna
Gréta Hafsteinsdóttir, Karen Guð-
mundsdóttir, Kim Klara Ahlbrech,
Kristín Ragnarsdóttir, Lena Gunn-
laugsdóttir, Ólafía Laufey Stein-
grímsdóttir, Unnur Þorsteinsdóttir
og Ylfa Flosadóttir.
Þjóðlagasveitin Slitnir streng-
ir hefur haldið fjölmarga tónleika
hérlendis, meðal annars á stóra
og nýja sviði Borgarleikhússins
og síðastliðið vor í Norðurljósa-
sal Hörpu. Sveitin hefur og hald-
ið tónleika í Danmörku, Skotlandi,
Frakklandi og Þýskalandi. Sveit-
in hefur unnið með þekktum lista-
mönnum auk þess sem Sinfóníu-
hljómsveit Íslands hefur í tvígang
leitað eftir samstarfi um tónlistar-
flutning. Eins og nýverið kom fram
í viðtali við Skúla Ragnar í Skessu-
horni hefur sveitin unnið að upp-
tökum á nýjum geisladiski sem
hann áætlar að komi út með haust-
inu. Þeirri vinnu mun ljúka með
útgáfutónleikum.
mm/ Ljósm. Akraneskaupstaður
Slitnir strengir eru bæjarlistamenn Akraness 2016
Fulltrúar í menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar, bæjarstjóri, Ragnar Skúli, hljóðfærarleikarar og hluti bæjarlistamannanna í Slitnum strengjum.
Tveir grindhvalir syntu
upp í kletta við Elínarhöfða
á Akranesi seint á sunnu-
dagskvöldið. Magnús Ágúst
Sigurðsson íbúi á Akrnaesi
varð hvalanna vart og kall-
aði til félaga úr Björgunar-
félagi Akraness sem brugð-
ust skjótt við, fóru á staðinn
og ýttu hvölunum á flot aft-
ur. Að sögn Önnu Leif Elí-
dóttur, sem var á staðnum,
virtist sem að minnsta kosti
annar hvalurinn hafi verið
særður. Engu að síður náðist
að stugga við þeim báðum
og syntu þeir til hafs frels-
inu fegnir.
mm/ Ljósm. sóe.
Tveimur grindhvölum komið til bjargar
Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstri
hreyfingarinnar græns framboðs
í Norðvesturkjördæmi fór fram á
Hvanneyri 11. júní síðastliðinn. Þar
var samþykkt
að fram færi
forval vegna
komandi al-
þingiskosn-
inga. Kos-
ið verður um
sex efstu sæti
á framboðs-
l i s t a n u m .
Jafnframt var
kosin kjör-
stjórn til að
sjá um fram-
kvæmd for-
valsins og
gera tillögu
til kjördæmisráðs um uppröðun á
framboðslista.
Segja má að þessi ákvörðun
flokksmanna í NV kjördæmi sé stíl-
brot miðað við flest önnur kjör-
dæmisfélög flokksins. Í Reykja-
vík, Suðurkjördæmi og Norðaust-
urkjördæmi hefur nú þegar verið
ákveðið að uppröðun verði viðhöfð
við val á lista. Ekki liggur ljóst fyr-
ir hvað kjördæmisráðið í Kragan-
um hyggst gera. Samkvæmt heim-
ildum Skessuhorns er hópur flokks-
manna VG sem vildi knýja fram
forval og vitað að fleiri munu bjóða
sig fram gegn núverandi forystu.
Þingmaður VG í Norðvesturkjör-
dæmi er Lilja Rafney Magnúsdóttir
og fyrsti varaþingmaður Lárus Ást-
mar Hannesson. Á aðalfundi kjör-
dæmisráðs var einnig kosin stjórn
en hana skipa Steinunn Rósa Guð-
mundsdóttir, formaður, Bjarki Þór
Grönfeldt og Rún Halldórsdóttir.
mm
Vinstri grænir ákveða
forval í NV kjördæmi