Skessuhorn - 22.06.2016, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 201618
mjög spennandi og tilkomumik-
ið í senn enda aldrei hægt að vita
hvað skepnurnar gera. „Þeim gæti
dottið í hug að fara að leika sér að
bátnum og þá þyrfti ekki að spyrja
að leikslokum,“ segir hann. „Mað-
ur er bara nógu vitlaus til að róa
innan um þá,“ bætir hann við hlær.
Unnsteinn notar kajakinn mik-
ið en þá aðallega við veiðar á fugli
og sel. „Það er allt annað að veiða
á svona kajak en á bát með utan-
borðsmótor. Dýrin eru ekki nærri
eins stygg þegar maður er á svona
fleyi,“ segir hann en kajakinn hef-
ur reynst honum vel. „Maður nær
einhvern veginn að tengjast nátt-
úrunni meira svona,“ bætir hann
við.
1,6 tonn að þyngd
Hvalurinn Thunderstorm kem-
ur til Grundarfjarðar á hverju ári
en Marie Mrusczok leiðsögumað-
ur hjá Láki tours hefur fylgst með
og skrásett ferðir hans í nokkur
ár. Thunderstorm er nokkuð auð-
þekkjanlegur enda er hann með
nokkur ör og rispur ásamt því að
vera með auðþekkjanlegan ugga.
Marie, ásamt Mandy Nachbar
konu Unnsteins, aðstoðaði Unn-
stein við að mála og setja ör á hval-
inn enda mikill sérfræðingur um
háhyrninga. Thunderstorm kem-
ur úr níu dýra fjölskyldu en sá
nýjasti bættist við nú í febrúar á
þessu ári. Marie hefur séð þenn-
an einstakling yfir þrjátíu sinn-
um á þeim þremur vetrum sem
hún hefur starfað í Grundarfirði.
Styttan af Thunderstorm er nán-
ast í raunstærð en ugginn nær 180
cm upp í loftið en heildar hæðin
á verkinu er 260 cm og lengdin
320 cm. Unnsteinn hóf smíðina í
mars á þessu ári og lauk við hana
nú í júní. Alls vegur styttan 1.650
kg og voru það ófáar stundirnar
sem fóru í smíðina. „Já, þetta voru
í kringum 150 vinnustundir sem
fóru í verkið,“ segir Unnsteinn og
kvaðst alveg vera tilbúinn í svona
aftur ef einhver hefði áhuga á að
kaupa. „Já, ég myndi skoða það ef
einhver myndi falast eftir svona en
annars er þetta ekki á döfinni hjá
mér.“ Unnsteinn hefur mikið verið
að stoppa upp fugla og önnur dýr
en kvaðst vera orðinn þreyttur á
því. „Ég var orðinn svolítið þreytt-
ur á uppstoppun og ákvað að ráð-
ast í þetta verkefni.“
Hvalurinn er byggður upp á
krossviðsgrind sem er steypt með
járnagrind og járnamottum. „Þetta
er gríðarlega sterkt og ég er nokkuð
viss um að ekkert hefði komið fyr-
ir styttuna þó að við hefðum sturt-
að henni af vörubílspallinum,“ seg-
ir Unnsteinn brosandi. Styttan er
virkilega glæsileg og vel heppnuð og
setur fallegan svip á Paimpol garð-
inn í Grundarfirði þar sem hún fær
nú að njóta sín. tfk
Brákarhátíð verður haldin næst-
komandi laugardag í Borgarnesi. Að
sögn skipulagsaðila verður nóg um
að vera og höfðað til allra aldurs-
hópa. Að venju hefst hátíðin klukk-
an 9:00 að morgni á Brákarhlaupi,
frá Granastöðum niður að Land-
námssetri. Þess má geta að Þorgerð-
ur Brák hljóp á sínum tíma, með
Skallagrím á hælunum, frá Grana-
stöðum við Sandvík niður að Brák-
arsundi þar sem hún lét lífið. Í lok
hlaups býður kvenfélagið upp á dög-
urð á planinu við Landnámssetrið.
Eftir það tekur við ýmiskonar dag-
skrá. Fyrir hádegi verður boðið upp
á bátasiglingar og víkingaskart fyrir
börnin. Eftir hádegi verður skrúð-
ganga Michelle frá Eyjunni og upp
í Skallagrímsgarð, þar sem skátar
verða með kaffisölu og boðið verður
upp á fjölskyldudagskrá. „Þar verð-
ur hátíðarræða, spurningakeppni,
verðlaunaafhending, tískusýning
í boði Rauða krossins, tónlist og
fleira. Tuddinn frá Hálsi í Kjós verða
með hundrað prósent grasfóðrað
nautakjöt í heimsins bestu borgur-
um og Rauða kross búðin í Borgar-
nesi verður með pokadag í búðinni;“
segir Hlédís Sveinsdóttir verkefnis-
stjóri. Þá verður einnig víkinga-
markaður á Brákarhátíðinni milli kl.
14 og 17. Farin verður kvöldganga
frá Brákarhlíð að Englendinga-
vík klukkan 18, þar sem létt harm-
onikkutónlist verður spiluð á plani.
„En það byrja alls konar skemmti-
legheit fyrr. Til dæmis verða Svavar
Knútur og Kristjana á Landnáms-
setrinu á fimmtudaginn klukkan 21
og svo eru auðvitað götu- og hverf-
agrillin á föstudeginum. Bærinn
er skreyttur miklu fyrr og almennt
mikið stuð á fólki,“ segir Hlédís. Á
milli kl. 18:30 og 20 verður miðaft-
anvaka í Englendingavík. „Þar verð-
ur tengdasonur Borgarfjarðar, Jógv-
an Hansen, og Danni Tjokkó. Ef
Ísland kemst í 16 liða úrslit verður
leiknum varpað á tjald. Við endum
hátíðina svo á balli með hljómsveit-
inni Buffi í Hjálmakletti.“
Hverfin skreytt
Að venju verður Borgarbyggð skipt
upp í litasvæði; Borgarnes skiptist í
þrjú hverfi, Hvanneyri í eitt hverfi
og sveitin myndar tvö hverfi, „vestan
og austan Hvítár,“ eins og segir í til-
kynningu. Íbúar munu skreyta göt-
ur sínar í viðeigandi litum og dóm-
nefnd mun aka um Borgarnes og
Hvanneyri en sveitabæirnir senda
inn myndir í gegnum samskipta-
miðilinn Facebook. Að endingu
verða verðlaun veitt fyrir skemmti-
legasta hverfið, frumlegustu götu
ársins og flottasta sveitabæinn. Allur
undirbúningur hátíðarinnar er unn-
inn í sjálfboðavinnu með stuðningi
frá fyrirtækjum og sveitarfélaginu
Borgarbyggð. „Það er hann Eiríkur
Jóns sem ber hitann og þungann af
þessu, elsku drengurinn. Ég vil beina
því til fólks að vera nú huggulegt við
hann, lauma að honum eins og einu
knúsi eða allavega „high five“ fyrir
þetta. Hann á það inni,“ segir Hléd-
ís. „Konan hans Kristín er með hon-
um í þessu, sem og Rúnar Gísla. Ég
reyni svo að þvælast fyrir þeim bæði
á fundum og í fjarskiptum,“ segir
Hlédís að endingu.
grþ
Brákarhátíð verður um helgina
Skrúðgangan verður á sínum stað á Brákarhátíðinni í ár.
Unnsteini Guðmundssyni í Grund-
arfirði er margt til lista lagt en hann
starfar sem vélstjóri hjá G.Run hf
þegar hann er ekki að hanna vél-
ar eða smíða listaverk. Hann hann-
aði til að mynda sporðskerann sem
fjallað var um í Skessuhorni á síð-
asta ári. Unnsteinn hefur nýlokið
við smíði á stærðarinnar hvalsugga
sem prýðir nú Paimpol garðinn í
Grundarfirði. „Ég fékk þessa hug-
mynd í mars 2013 þegar ég var að
róa á kajak á Grundarfirði innan
um alla hvalina,“ segir Unnsteinn í
léttu spjalli við fréttaritara. „Ég sat
í kajaknum á spegilsléttum firðin-
um þegar þessi uggi kom upp rétt
fyrir framan mig.“
Unnsteinn smellti meðfylgj-
andi mynd af hvalnum Thunder-
storm. „Svo var það skömmu síðar
að ég sé þennan ugga koma synd-
andi að mér og rétt áður en hann
kemur að bátnum leggst hann á
hliðina og syndir undir mig. Við
horfumst í augu í eitt augnablik og
virðum hvorn annan fyrir okkur
áður en hann syndir áfram,“ segir
Unnsteinn og kvað það hafa verið
magnað augnablik enda mikilfeng-
leg skepna. „Vissulega fór aðeins
um mann þegar þeir voru að koma
upp svona rétt við okkur enda óút-
reiknanleg dýr,“ bætir Unnsteinn
við. Aðspurður um hræðslu seg-
ir Unnsteinn að þetta hafi verið
Smíðaði afsteypu af góðkunningja Grundarfjarðar
Hérna er mynd af Thunderstorm sem Unnsteinn tók af kayaknum sínum. Unnsteinn að koma listaverkinu fyrir á vörubílspalli fyrir flutninginn.
Unnsteinn við listaverkið í Paimpol garðinum.
Thunderstorm kominn á áfangastað.