Skessuhorn - 22.06.2016, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 201622
Vísnahorn
Mönnum hefur orðið tíð-
rætt um forsetaembættið
að undanförnu sem eðli-
legt er og ekki úr vegi að helga því svosem einn
þátt eða allavega part af þætti. Skömmu eftir að
Sveinn Björnsson var kjörinn fyrsti forseti Ís-
lands sátu þeir saman í bakherbergi apóteksins
á Húsavík Egill Jónasson og Helgi Hálfdanar-
son, sem þá var þar apótekari. Þeir voru að tala
um hve orðið forseti væri gott og næði vel yfir
það sem þyrfti. Helgi sagði að það væri verra
með forsetafrúna, það vantaði titil á hana. Eg-
ill sagði eftir stutta umhugsun að það mætti vel
kalla hana forsetningu. Í því kom viðskiptavin-
ur inn í apótekið og Helgi varð að sinna hon-
um en sagði um leið og hann fór fram: „Þú yrk-
ir um þetta Egill á meðan ég er frammi.“ Kona
Sveins Björnssonar var dönsk og Egill orti:
Íslensk tunga þykir mikið þing
en þó er stundum vafi á hinu rétta,
fyrst að okkar aðal forsetning
er eiginlega bara dönskusletta.
Ásgeir Ásgeirsson var búinn að vera á þingi
um skeið og fyrir nokkra flokka áður en hann
fór í framboð til forseta. Hann var maður sát-
ta og samstarfs en undirgefni við flokksa-
ga takmörkuð. Kosningu átti hann þó jafnan
vísa til Alþingis hvað sem flokkurinn hét enda
maðurinn vinsæll en oft þótti hann loðinn í
svörum. Um hann var kveðið í þingvísu fyrr
á árum:
Hann er að brölta í bárunum
bólar á nokkra lokka.
Hann er að fara úr hárunum.
Hann er á milli flokka.
Ef ég man rétt tilheyrði Ásgeir fyrst Fram-
sóknarflokknum en gekk síðar í Alþýðuflok-
kinn. Töldu sumir að hann væri tækifæris-
sinni en réttara mun að maðurinn hafði sínar
skoðanir og var trúrri sannfæringu sinni en
flokksaganum. Um þetta orti Karl Ísfeld:
Seint mun þrjóta Són og Boðn,
seint munu Danir vinna Hveðn.
Ekki minnkar Ásgeirs loðn,
olíublettir sjást á Héðn.
Ásgeir fór í sinni forsetatíð í heimsóknir út
um land eins og títt hefur verið og að sjálf-
sögðu var gert viðvart um þær fyrirfram. Nú
heimsótti Ásgeir Suðurland eitt sinn og þót-
ti þá Hvergerðingum og Ölfusingum við hæfi
að koma til móts við hann á Kambabrún og
hafa þar stuttan mannfögnuð og jafnvel flyt-
ja forsetanum drápu. Fóru þeir þess á leit við
séra Helga Sveinsson að hann tæki að sér yrk-
ingarnar og tók hann því allvel. Kom hann
stuttu síðar til þeirra sem hugmyndina áttu og
kvaðst hafa lokið við fyrstu vísuna og vildi láta
þá heyra:
Hér er bjart á heiðarbrún.
Heilsa þér í löngum röðum
loðin engi, loðin tún.
Loðingeir á Bessastöðum.
Líklega er þarflaust að láta þess sérstakle-
ga getið, að móttökunefndin falaðist ekki eft-
ir því að hann yki drápuna.
Kristján Eldjárn var maður prýðilega hag-
mæltur en óvíst hvernig honum féll í raun
lífið sem þjóðhöfðingi og þær skorður sem
embættið setti honum. Einhvern tímann kvað
hann:
Það er erfitt orðið mér
að una gerfilífi,
taugakerfið orðið er
eins og herfi í þýfi.
Kristján orti á æskuárum sínum allfrægan
brag um skólabróður sinn og vin sem þótti
nokkuð upp á kvenhöndina. Við andlát sama
manns orti hann hinsvegar:
Sefur bróðir síðsta blund.
Syrgir þjóð að vonum.
Áttu góða ögurstund
ótal fljóð með honum.
Flestum byggðarlögum þykir það nokkur
upphefð að geta tengt sig við forsetann ef þörf
er á. Horfði allvel í vor fyrir Lunddælingum
sem gátu um tíma tengt sig við þrjá framb-
jóðendur og óvíst hvort aðrir hreppar hefðu
staðið sig betur. Ólafur Ragnar á sömuleiðis
tengingar aftur í bæði Lundarreykjadal og
Skorradal enda var eftirfarandi limra ort í
orðastað oddvita Skorradalshrepps sem gjar-
nan vildi halda uppi íbúatölunni:
,,Svo Bakkakot Ólaf fékk alið“
Ekki var það nú svo galið.
Ég ætti að geta
vorn elsku forseta
innfært í íbúatalið.
Meðan Ólafur var enn í pólitíkinni tók hann
eitt sinn þátt í kappræðuþætti í sjónvarpinu og
varð það tilefni þessarar vísu eftir Birgi Hart-
mannsson:
Ýtar magna orðaskak,
– andinn fagnar rímsvon.
Aldrei þagnar andartak
Ólafur Ragnar Grímsson.
Vigdís okkar Finnbogadóttir hafði held ég
óskoraða virðingu allra sem henni kynntust
eitthvað meðan hún gegndi forsetastarfi. Þó
slapp hún ekki frekar en aðrir við gagnrýni og
þegar hún skrifaði undir EES samninginn á
sínum tíma kvað Jakob Jónsson:
Á fullveldið er dregið dánarlín
því Davíð má ei hræða eða trufla.
Það sést best að þú ert stúlka mín
þægileg og bara falleg mubla.
Um líkt leiti lýsti sami maður einum af
núverandi forsetaframbjóðendum með þe-
sum orðum:
Íslendingar Davíð dá
og dyggðir mannsins prísa.
-Þetta er eins og allir sjá
öfugmælavísa.
Ritstjórar landsins hafa löngum búið við
nokkuð misjafnt umtal manna á milli sem og
reyndar vísnaþáttaritarar og fleiri stéttir. Séra
Tryggvi Kvaran afgreiddi ritstjórana með þes-
sari vísu:
„Þú mátt eiga þetta lið
það mun við þig stjana,“
sagði drottinn Satan við
og sendi honum ritstjórana.
Við Borgfirðingar höfum lengst af slop-
pið nokkuð vel við drauga og ekki þurft að
hafa stórar áhyggjur af þeim. Líklega hefur þó
Hvítárvalla Skotta orðið hvað verklegust í sí-
num tiltektum meðan hún var og hét. Þó ým-
sir telji allt slíkt tóma vitleysu verður því var-
la mótmælt að sumir menn virtust hafa tilh-
neygingu til að sækja illa að og jafnvel eins og
slíkt fylgdi ættum eða bæjum. Eitt sinn gisti
Sauðamaður frá Hvítárvöllum í fjárhúsunum
einhverra hluta vegna. Hvort sem ráðið hefur
bylur eða vatnsflóð veit ég ekki en um kvöldið
þegar hann er að búa sig til svefns segir hann
út um rifu á hurðinni:
Búið er um beðinn minn
bráðum fer að skyggja.
Kalt er úti komdu inn
Hvítárvalla Skotta.
Eitthvað virðast nú rímorðin hafa skolast til
þarna en við skulum vona að einhver lesenda
minna kannist við þessa sögu og geti frætt ok-
kur betur um söguna og vísuna. Síðan mun
hafa fylgt svarvísa frá Skottu sem byrjar: ,,Fáir
viku vel að mér“ en meira hef ég ekki hey-
rt eða minnsta kosti man ekki. Allavega var í
þeirri vísu falin sú ósk að viðkomandi yrði gæ-
fumaður og var sagt að það hefði gengið eft-
ir. Mikið væri nú gaman ef einhver kannaðist
við þessa sögu og gæti hjálpað til að rifja hana
upp.
En svo vikið sé að öðru þá var ég fyrir stuttu
að spyrjast fyrir um um erindi sem mér þót-
ti athyglisvert en hef nú komist að því að það
birtist fyrst árið 1967 í riti Sögufélags Aus-
turlands – Múlaþing. Er eftir Braga Sigurðs-
son frá Seyðisfirði og ber titilinn ,,Við andlát
Steins Steinars“.
Í byggingu vorri er brostinn sá steinn,
sem bjartur og fagur glóði.
Hann stóð alltaf út úr stakur og einn,
sterkur í smáu ljóði.
Sá tónn, er hann söng, var tær og hreinn
eins og tár, sem er grátið í hljóði.
Þessi Bragi Sigurðsson mun hafa ver-
ið sveitarstjóri í Ólafsvík um tíma og einnig
blaðamaður á Alþýðublaðinu. Veit ég reyn-
dar lítið um manninn en eitthvað fleira he-
fur hann ort, hvort sem það hefur verið gert
opinbert, og væri reyndar gaman ef einhver
lumaði á kveðskap eftir þennan mann.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Ýtar magna orðaskak – andinn fagnar rímsvon
Á eyðibýlinu Stálpastöðum í
Skorradal stendur nú yfir ljós-
myndasýning. Hún er samvinnu-
verkefni Kristínar Jónsdóttur,
ljósmyndara á Hálsum, og Huldu
Guðmundsdóttur á Fitjum. Sýn-
ingin var opnuð við hátíðlega at-
höfn laugardaginn 11. júní síðast-
liðinn og mun standa fram í ágúst.
Á sýningunni gefur að líta tuttugu
ljósmyndir í lit sem Kristín hefur
unnið að með nokkrum hléum frá
árinu 2014. Myndirnar eru allar
af eyðibýlum í Skorradal og tekn-
ar á mismunandi árstíðum. Ljós-
myndirnar utandyra eru prentað-
ar á álplötur sem þola bæði veður
og vinda.
Kristín segir marga hafa lagt
hönd á plóg við uppsetningu sýn-
ingarinnar, enda sé töluvert um-
stang að setja upp sýningu af þessu
tagi. Hulda á Fitjum hafi ver-
ið helsti drifkrafturinn við und-
irbúning sýningarinnar; séð um
alla pappírsvinnu, styrkumsókn-
ir, snyrtingu svæðisins og þvíum-
líkt. Tryggvi á Hálsum á og rekur
gröfufyrirtæki og gróf hann nið-
ur staura til að halda myndunum á
sínum stað. Fleiri styrktu uppsetn-
ingu sýningarinnar, meðal ann-
ars Skorradalshreppur, Uppbygg-
ingarsjóður Vesturlands og Skóg-
ræktin.
Fyrir þá sem vilja sjá sýninguna á
Stálpastöðum þá er hún 150 metra
upp með gamla vegarslóðanum
heim að bænum. Gott er mæta í
þokkalegum gönguskóm því svæð-
ið getur verið misblautt og ekki er
verra að vera með flugnanet þar
sem oft er mikið af flugu á þess-
um slóðum.
Ljósmyndirnar á sýningunni eru
til sölu og eru upplýsingar um verð
í sýningarskrá á staðnum.
mm/ Ljósm. Þórunn Reykdal.
Ævintýraleg ljósmyndasýning
á Stálpastöðum
Snorrastofa býður til útivistar í
Reykholti sunnudaginn 26. júní
næstkomandi kl. 15 þar sem geng-
ið verður um staðinn með nokkr-
um áningum. Það eru þeir sr. Geir
Waage og Óskar Guðmundsson
rithöfundur sem leiða gönguna og
rekja sögu mannlífs og mannvirkja
um aldir. Að undanförnu hefur að
margra mati verið lyft Grettistaki
í hirðu og uppbyggingu staðar-
ins í Reykholti og því tímabært að
heimamenn bjóði gestum og gang-
andi að njóta staðarins og sögu
hans. Þess má geta að á nýliðnum
þjóðhátíðardegi veitti Forseti Ís-
lands Hr. Ólafur Ragnar Gríms-
son séra Geir Waage fálkaorð-
una fyrir störf sín að uppbyggingu
og skógrækt í Reykholti. Allir eru
hjartanlega velkomnir að vera með
í göngunni, sem hefst við inngang
Snorrastofu á neðra bílaplani og
stendur í um klukkustund.
-fréttatilkynning
Heimamenn fararstjórar í göngu-
för um Reykholt á sunnudaginn