Skessuhorn - 27.07.2016, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 30. tbl. 19. árg. 27. júlí 2016 - kr. 750 í lausasölu
Gjaldeyrir.is er
tímasparnaður fyrir alla
Viðskiptavinir allra banka geta gripið með sér
ferðagjaldeyrinn á Keflavíkurflugvelli
Fæst án lyfseðils
LYFIS
ÚTSALA
1Kalmansvöllum
Auka
afsláttur
Nú 50%
ATH! LOKAÐ
LAUGARDAGINN
30. JÚLÍ
Byggingafyrirtækið Límtré Vírnet í
Borgarnesi hefur samið við dóttur-
félag Icelandair um að reisa nýtt flug-
skýli sem hýsa á flugvélar Icelandair á
Keflavíkurflugvelli. Samningar náð-
ust föstudaginn 8. júlí síðastliðinn og
að sögn Stefáns Loga Haraldssonar,
framkvæmdastjóra Límtrés Vírnets,
er um risasamning að ræða. „Samn-
ingar af þessari stærð hafa ekki ver-
ið gerðir hjá félaginu áður, það er
að segja einstakir samningar,“ segir
Stefán í samtali við Skessuhorn.
Um er að ræða viðbyggingu við
hlið núverandi flugskýlis sem tekið
var í notkun árið 1992. Nýja skýlið
verður 27 metrar á hæð, grunnflöt-
ur þess verður um 10.500 fermetrar
og heildarflatarmál um 13.600 fer-
metrar. Byggingin verður því gríð-
arstór og um margt sérhæfð að sögn
Stefáns, enda á þar að verða hægt
að koma fyrir tveimur flugvélum af
gerðinni Boeing 757 hlið við hlið.
„Hurð flugskýlisins verður til dæm-
is 90 metra breið og opnast mest
um 65 metra,“ segir hann.
Fyrsta skóflustungan var tek-
in að flugskýlinu í byrjun júnímán-
aðar. Framkvæmdatíminn er áætlað-
ur um 12 til 13 mánuðir. Stefnt er að
því að taka flugskýlið í notkun seint á
næsta ári. „Hönnun er komin í gang
og annað slíkt og áætlað er að upp-
setning fari af stað fyrir áramót,“ seg-
ir Stefán. kgk
Mannvirkin á Keflavíkurflugvelli. Tölvuteikningu af nýja flugskýlinu sem reist
verður af Límtré Vírneti hefur verið skeytt inn á myndina við hlið núverandi flug-
skýlis. Ljósm. icelandair.is.
Límtré Vírnet landaði risasamningi
Bæjarhátíðin Á Góðri stund var haldin með pompi og prakt í Grundarfirði um síðustu helgi. Fór hátíðin að sögn aðstandenda vel fram og allir skemmtu sér vel. Eins og
venja er skipa Grundfirðingar sér í fylkingar og skreyta hverfi sín hvert í sínum einkennislit. Síðan fylkja íbúar og gestir hvers hverfis liði, ganga um götur bæjarins áður
en hverfin mætast á gatnamótum Grundargötu og Hrannarstígs. Hér má sjá gulhverfinginn Hjalta Allan Sverrisson stjórna gulu skrúðgöngunni af mikilli innlifun. Fleiri
myndir af hátíðinni má sjá á bls. 16 í Skessuhorni vikunnar. Ljósm. Tómas Freyr Kristjánsson.
Fyrsta Druslu-
ganga Vesturlands
Alma Mjöll Ólafsdóttir leiddi
fyrstu Druslugönguna í Stykkis-
hólmi síðasta laugardag. Er það
fyrsta Druslugangan sem far-
in er á Vesturlandi öllu. Mark-
mið Druslugöngunar er að færa
ábyrgð kynferðisglæpa frá þol-
endum yfir á gerendur og und-
irstrika það að þolendur þessa
glæpa eigi hvorki sökina né
skömmina. Nánar á bls. 11.
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna