Skessuhorn - 27.07.2016, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 201612
Hjónin og Skagamennirnir Krist-
ófer Oliversson og Svanfríður
Jónsdóttir komu til hafnar á Akra-
nesi miðvikudaginn 20. júlí eftir
tveggja ára siglingu um heimsins
höf á skútunni Hug frá Reykjavík.
Sigling þeirra hófst í Króatíu fyr-
ir fyrir tveimur árum síðan. Það-
an sigldu þau til Kanaríeyja, svo
Grænhöfðaeyja og þaðan til Santki
Lúsíu í austurhluta Karabíska hafs-
ins. „Þaðan förum við síðan hring-
inn í kringum hnöttinn, frá Sankti
Lúsíu til Sankti Lúsíu. Það er hið
eiginlega World Arc Rally sem við
tókum þátt í með góðum hópi,“
segir Kristófer.
Tók siglingin kringum hnött-
inn heila 15 mánuði. Að hringferð-
inni lokinni var haldið upp með
karabísku eyjunum til Bermúda,
þaðan upp með ameríkuströnd til
Nova Scotia í Kanada síðan Ný-
fundnalands, Grænlands og þaðan
til hafnar á Akranesi „Við höfum
verið í samfloti með þremur skút-
um á heimleiðinni. Við ætlum að
samstilla okkur og sigla saman frá
Akranesi til Reykjavíkur þar sem
ferðinni lýkur formlega á morgun
[21. júlí síðastliðinn: innsk. blaða-
manns],“ sögðu Kristófer og Svan-
fríður.
Stórkostleg upplifun
Aðspurð segja hjónin að heilt yfir
hafi gengið mjög vel á hnattsigl-
ingunni. „Það hefur enginn dáið
og enginn slasast alvarlega,“ seg-
ir Kristófer léttur í bragði. „Snorri
Tómasson kom með okkur einn
legg, frá Panama til Galapagos. Svo
tókum við sjóveikan þýskan blaða-
mann, frá fyrirtækinu sem skipu-
leggur þetta rallí, með okkur frá
Kanarí til Grænhöfðaeyja,“ bæt-
ir hann við. „Hann hélt sér frá sjó-
veikinni með því að standa við stýr-
ið. Þannig að hann stóð við stýrið
í næstum því 24 tíma, nema þegar
ég rak hann til þess að fara að sofa.
En þá varð hann bara veikur,“ seg-
ir Svanfríður og brosir við minn-
inguna.
„Þetta hefur verið stórkostlegt,“
sagði Svanfríður aðspurð um upp-
lifun sína af ferðalaginu mikla.
„Bæði lærdómsríkt og skemmti-
legt. Óskaplega skemmtilegur hóp-
ur sem við sigldum með. Við fórum
15 skútur, um 50-60 manns og vel
skipulagt. Alltaf gott partí í hverri
höfn og mikið gaman,“ bætir Krist-
ófer við. „En þetta var mjög mis-
munandi. Stundum vorum við í
höfnum en svo vorum við mánuð-
um saman í Kyrrahafinu þar sem
við komum hvergi til hafnar held-
ur vorum bara við ankeri og fórum í
land á gúmmíbátnum,“ segir hann.
Hugur hittir Þuru
En hvernig datt þeim í hug að leggja
upp í siglingu umhverfis jörðina?
„Hugmyndin kviknaði kannski
fyrst eftir að ég las bókina Í kjöl-
far kríunnar eftir Unni Jökulsdótt-
ur og Þorbjörn Magnússon,“ seg-
ir Svanfríður, en bókin fjallar ein-
mitt um fólk sem siglir um heims-
ins höf á lítilli seglskútu. „Svo lærð-
um við að sigla, keyptum Norn-
ina, sem við áttum ásamt fleirum
og lærðum að sigla á henni,“ bætir
hún við. Næsta skúta þeirra hjóna
var Hugur, 52 feta seglskúta, sem
þau keyptu gagngert til að leggja
upp í hnattsiglinguna. „Með fullri
virðingu fyrir Norninni þá er hún
minni og passar ekki fyrir úthaf-
ið,“ segir Kristófer. Því var Hugur
keyptur og úthöfin sigruð á honum.
En það er saga á bakvið nafnið. Við
gefum Kristófer orðið: „Kristófer
Oliversson, afi minn, gerði út Hug
í mörg ár. Konan hans hét Þuríður
Gísladóttir sem síðustu ár ævi sinn-
ar bjó á Skjaldbreið á Suðurgötu
hér á Akranesi. Það er Þura, sem
Steindór bróðir minn gerir út héð-
an frá Akranesi en annars voru þau
í Sandgerði. Þannig að þetta er í
fyrsta sinn sem Hugur hittir Þuru,“
segir Kristófer brosandi og bend-
ir yfir flotbryggjuna þar sem Þura
liggur við landfestar.
kgk
Komin heim eftir
tveggja ára siglingu
Svanfríður stendur við stýrið á meðan Kristófer kíkir til hafnar og veifar ættingjum og vinum sem safnast höfðu saman á
bryggjunni og biðu komu þeirra hjóna.
Svanfríður og Kristófer um borð í Hug í Akraneshöfn.
Steindór Oliversson, sjómaður á Akranesi og bróðir Kristófers, var meðal þeirra
sem tóku á móti hjónunum. Steindór gerir út á bátnum Þuru AK. „Þetta er í fyrsta
sinn sem Hugur hittir Þuru,“ sagði Kristófer.
Nýr veitingastaður var opnað-
ur á uppstigningardag 5. maí síð-
astliðinn í gömlu verslunar- og
pakkhúsunum í Englendingavík í
Borgarnesi. Staðurinn hefur feng-
ið nafnið Englendingavík og eru
það hjónin Einar Valdimarsson og
Áshildur Sveinsdóttir sem sjá um
reksturinn. Eigendur ásamt þeim
eru Guðbrandur Gunnar Garð-
arsson, Selma Rut Þorkelsdótt-
ir og Margrét Rósa Einarsdóttir.
Á nýja staðnum er fyrst og fremst
boðið upp á sjávarrétti og lamba-
og kálfakjöt. „Við erum mjög sterk
í fiski og komum alltaf til með
að bjóða upp á úrval sjávarrétta
en okkar stefna er að færa okkur
yfir í matvæli úr héraði. Við vilj-
um koma á samvinnu við sveitunga
og versla matvæli af bændum hér
í kring,“ segir Einar í samtali við
Skessuhorn.
Ætla sér að
fara rólega af stað
Einar er fæddur og uppalinn sunn-
lendingur en Áshildur kona hans
kemur frá Eskiholti í Borgarfirði.
Auk þess að sjá um reksturinn á
Englendingavík er Einar stunda-
kennari við Háskólann á Bifröst og
Landbúnaðarháskólann á Hvann-
eyri og starfandi fasteignasali hjá
Stakfell fasteignum. „Það stóð
ekki til að fara í veitingarekstur
en þegar ég heyrði af því að Mar-
grét Rósa hefði keypt þetta ákvað
ég að hafa samband við hana. Ég
lýsti áhuga mínum á að taka þátt
í þessu og hún tók mjög vel í það.
Í framhaldinu fór boltinn að rúlla.
Við ákváðum strax að fara rólega
af stað og ekki taka of stóran bita í
byrjun. Við verðum hér að minnsta
kosti næstu 15 árin svo við ætlum
að flýta okkur hægt í uppbyggingu
og vanda okkur,“ segir Einar og
brosir.
Bjóða einnig
upp á gistingu
Í Englendingavík er einnig boð-
ið upp á heimagistingu fyrir átta
manns en planið er að fjölga gisti-
plássum og mun aukningin von-
andi verða tekin í notkun strax
næsta vor. „Eins og staðan er núna
erum við með eitt af húsunum und-
ir heimagistinguna og við ætlum
okkur ekki að breyta því. Við vilj-
um síðan bæta við herbergjum í
gamla kaupfélagshúsið og hafa þar
meiri lúxusgistingu og er það í ferli
hjá Borgarbyggð. Það er líka uppi
sú hugmynd að opna hostel í pakk-
húsinu en það hefur ekki verið tek-
in ákvörðun um það. Pakkhúsið
er núna notað sem salur, t.d. fyrir
tónleika, og við vitum ekki hvort
við viljum fórna því enda erum
við með Margréti Rósu, sem rek-
ur Iðnó í Reykjavík, sem sértakan
viðburðarstjóra. Það væri þó mjög
gaman að geta boðið upp á gist-
ingu á hosteli, heimagistingu og
lúxusherbergi, allt á sama staðn-
um,“ segir Einar. „Eins og ég segi
förum við rólega af stað en höfum
þó margar hugmyndi um hvað við
viljum gera. Við höfum t.d. hugsað
okkur að reyna að gera meira fyrir
heimamenn, t.d. að halda hér pub-
quiz, spilakvöld og fleira í þeim dúr
og sem dæmi verðum við með um
verslunarmsnnshelgina markað og
sultukeppni og fleira skemmtilegt.
Við erum líka búin að setja upp
nestisborð hér fyrir utan og fyrir
neðan húsin svo fólk geti komið,
sest niður, slakað á og borðað nest-
ið sitt og notið Englendingavíkur-
með okkur. Hér viljum við hafa líf
og fjör,“ segir Einar að endingu.
arg
Veitingastaðurinn Englendingavík var opnaður í vor
Einar Valdimarsson veitingamaður í Englendingavík.
Horft niður í Englendingavík í Borgarnesi.