Skessuhorn


Skessuhorn - 27.07.2016, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 27.07.2016, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016 23 Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Kári sigraði KFS Á laugardaginn síðastlið- inn fór fram leikur KFS og Kára í tíundu umferð þriðju deildar karla á Helgafells- velli í Vestmannaeyjum. Káramenn sem höfðu tap- að síðustu tveimur leikjum unnu KFS með tveimur mörkum gegn einu. KFS komst yfir á áttundu mín- útu með marki Óskars Elí- asar Zoega Óskarssonar. Á 59. mínútu minnkaði Kári muninn með frábæru marki Ragnars Más Lárusson- ar og á 75. mínútu tryggði Jón Björgvin Kristjánsson Kára 2-1 sigur. Kári komst með sigrinum upp í fjórða sæti. Kári spilar næst gegn liði Reynis frá Sandgerði í Akraneshöllinni í kvöld klukkan 20:00. -bþb Víkingur Ó. enn í toppbar- áttunni Miðvikudaginn 20. júlí síð- astliðinn lék Víkingur gegn liði Hvíta Riddarans í ní- undu umferð A- riðilins í fyrstu deild kvenna. Leik- urinn endaði 3-2 fyrir Vík- ingi frá Ólafsvík. Nagela Oliveira De Andrade skor- aði tvö mörk fyrir Víking og Samira Suleman eitt. Víkingur er eftir leikinn í þriðja sæti með 21 stig eða þremur stigum frá topp- sætinu. -bþb Snæfell tapaði stórt fyrir KFG Snæfell lék sinn sjötta leik í B- riðli fjórðu deildar karla gegn KFG miðvikudaginn 20. júlí. Lítið hefur gengið hjá Snæfelli í sumar og sitja þeir á botni riðilsins án stiga. Leikmenn Snæfells vilja líklega gleyma leikn- um gegn KFG sem fyrst því hann endaði 12-0 KFG í vil. -bþb Skagakonur léku gegn KR í ní- undu umferð Pepsi deildar kvenna á þriðjudaginn í liðinni viku á KR- vellinum í Vesturbæ Reykjavíkur. Fyrir leikinn höfðu Skagakonur ekki unnið leik í sumar og voru á botn- inum með eitt stig. Leitin eftir sigri Skagakvenna í úrvalsdeild var orðin býsna löng. Þrátt fyrir að hafa spil- að í efstu deild árin 2005 og 2014 þá unnu þær síðast leik í efstu deild 20. júlí árið 2000 og því munaði einum degi að slétt 16 ár væru frá síðasta sigurleik Skagans í efstu deild þeg- ar þær léku við KR í liðinni viku. Leikurinn árið 2000 var gegn liði Þór/KA og fór hann 2-1 fyrir ÍA og mörk Skagans skoruðu þær Áslaug Ragna Ákadóttir og Kolbrún Eva Valgeirsdóttir. Í leikmannahópnum í gær voru þrjár stúlkur sem fædd- ar voru sama ár og síðasti sigur- leikur fór fram ásamt því kom dótt- ir Áslaugar við sögu. Eyðimerkur- göngunni er nú lokið því leiknum á þriðjudaginn lauk með sigri Skaga- kvenna 2-0. Skagakonur byrjuðu leikinn af miklum krafti og strax á sjöttu mínútu leiksins fékk Jaclyn Po- urcel boltann á vinstri kantinum; hún sendi boltann fyrir markið þar sem Megan Dunnigan tók á móti boltanum og smellti honum upp í hægra hornið þar sem markmaður KR átti litla sem enga möguleika að ná til boltans. Staðan orðin 1-0 fyr- ir Skagakonur. Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en eng- in mörk skoruð svo staðan var enn 1-0 þegar flautað var til hálfleiks. Eftir mikinn baráttuleik í síðari hálfleik þá innsigluðu Skagakon- ur sigurinn þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Aníta Sól Ágústsdóttir tók aukaspyrnu við miðlínu og gaf háann bolta fram. Nýi leikmaður Skagans Cathrine Dyngvold flikk- aði boltanum áfram með skalla inn í teiginn þar sem boltinn barst til Megan Dunnigan sem lagði bolt- ann snyrtilega í netið. Lokatölur í leiknum 2-0 fyr- ir Skagakonur sem eru með sigr- inum aðeins þremur stigum frá því að komast upp úr fallsæti. Þær áttu næst leik gegn FH á útivelli og var hann spilaður í gærkvöldi, eftir að Skessuhorn var farið í prentun. Fyr- ir þann leik sagði Þórður Þórðar- son, þjálfari ÍA að þar væri um úr- slitaleik að ræða þar sem FH væri að berjast við falldrauginn líkt og Skagakonur. bþb Skagakonur sigruðu sinn fyrsta leik í efstu deild í 16 ár Megan Dunnigan skoraði bæði mörk Skagans. Myndin er úr safni. Skagamaðurinn Birgir Leifur Haf- þórsson, sem leikur fyrir Golfkúbb Kópavogs og Garðabæjar, sigraði Íslandsmótið í golfi sem var hald- ið dagana 21.-24. Júlí á Jaðarsvelli á Akureyri. Með sigrinum varð Birg- ir Leifur sá kylfingur sem oftast hefur orðið Íslandsmeistari í högg- leik, alls sjö sinnum og bætti þar með met sem Björgvin Þorsteins- son setti árið 1977 en Úlfar Jóns- son jafnað síðar. Keppnin í karlaflokki var gríð- arlega spennandi. Fyrir lokadag- inn var Bjarki Pétursson í Golf- klúbbi Borgarness í forystu ásamt Guðmundi Ágústi Kristjánssyni úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Á þriðja keppnisdegi setti Bjarki Péturs- son vallarmet á Jaðarsvelli þeg- ar hann lék hringinn á 65 högg- um eða fimm undir pari. Bjarki náði ekki að halda forystunni en það var mikil spenna þegar efstu menn spiluðu lokahringinn. Á síð- ari níu holunum náði Birgir Leif- ur sér í fjóra fugla og náði smátt og smátt að saxa á forystuna. Bjarki og Axel Bóasson, úr Golfklúbbn- um Keili, höfðu báðir tækifæri á að jafna Birgi á síðustu tveimur hol- unum en nýttu ekki tækifærin. Birgir Leifur stóð uppi sem sigur- vegari en þeir Axel og Bjarki léku bráðabana um annað sætið þar sem Axel hafði betur og Bjarki endaði því í þriðja sæti í ár. Valdís Þóra önnur Í kvennaflokki leiddi Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni fyrir lokahringinn en hún setti vallarmet á þriðja keppnis- degi þegar hún lék hringinn á 66 höggum. Ólafía Þórunn Kristins- dóttir úr Golfklúbbi Reykjavík- ur átti algjörlega frábæran loka- hring. Á fyrstu níu holunum fékk hún fimm fugla og hélt forystunni allan hringinn eftir það. Hún jafn- aði vallarmet Valdísar og setti um leið mótsmet með því að enda með skorið ellefu undir pari en Val- dís Þóra lenti í öðru sæti með níu undir pari. bþb Vestlendingar fengu gull, silfur og brons Birgir Leifur og Ólafía Þórunn lyfta bikurum sínum. Valdís Þóra setti vallarmet og endaði í öðru sæti. Ljósm. golf.is. Hinn efnilegi Bjarki Pétursson setti vallarmet og endaði í þriðja sæti. Ljósm. golf.is. Alla síðustu viku voru æfingarbúðirn- ar North Atlantic Camp 2016 haldn- ar á Akranesi. Um er að ræða sam- starfsverkefni Íslands, Grænlands og Færeyja sem haldið er árlega og skiptast löndin á að halda búðirn- ar. Það voru 24 krakkar að íslensku krökkunum meðtöldum sem sóttu búðirnar en þeim fylgdu tíu þjálfarar og tveir yfirþjálfarar. Akranes hélt búðirnar í annað skiptið á þremur árum. „Aðstæðurnar hérna á Akranesi þykja svo góðar til þess að halda svona búðir að þær hafa verið nokkuð reglulega hérna. Auk þess að halda North Atlantic Camp í ár og fyrir þremur árum héldum við búðir í fyrra fyrir öll Norðurlönd- in. Við erum því orðin öllu vön hér á Skaganum í þessum málum,“ seg- ir Írena Rut Jónsdóttir ritari Badmin- tonfélags Akraness. „Búðirnar tókust mjög vel og all- ir voru hæstánægðir. Krakkarnir voru þreyttir eftir æfingarbúðirnar en allir glaðir,“ segir Írena að endingu. bþb Badmintonæfingarbúðir á Akranesi Körfuknattleiksdeild Skallagríms hef- ur samið við Magnús Þór Gunnars- son um að leika með félaginu í Dom- ino‘s deild karla næsta vetur. Á síð- asta tímabili skoraði hann 10 stig, tók 2,2 fráköst og gaf 1,8 stoðsendingu að meðaltali í 20,4 mínútum í leik fyrir Keflvíkinga. Magnús er reynslumikill leikmað- ur, 35 ára gamall, margfaldur Íslands- meistari sem hefur lengst af sínum ferli leikið með Keflavík. Hann er Borgnesingum þó ekki ókunnugur, því hann lék með Skallagrími síðari hluta tímabilsins 2014-15. Magnús hefur lengi verið talinn einn af bestu skotmönnum í íslenskum körfubolta. „Engum blöðum er um það að fletta að hér er um gríðarlega öflugan leik- mann að ræða og er mikill fengur fyrir Skallagrímsliðið. Magnús hefur leikið fjölda stórleikja og unnið fjöldan all- an af titlum á löngum og glæsileg- um ferli,“ segir í tilkynningu frá kkd. Skallagríms. Magnús á einnig að baki fjölda landsleikja fyrir Íslands hönd, þar af nokkra sem fyrirliði. „Hann mun því bæta við mikilli reynslu og sigurhefð í ungt Skallagrímsliðið.“ Magnús mun einnig koma að þjálf- un unglinga- og drengjaflokks Skalla- gríms. kgk Magnús Þór aftur í Skallagrím

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.