Skessuhorn


Skessuhorn - 27.07.2016, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 27.07.2016, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 201620 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Hilmir B ehf Löggiltur pípulagningameistari Alhliða pípulagningaþjónusta hilmirb@simnet.is facebook.com/hilmirbehf Bifreiðaþjónusta Harðar ehf. Smur og dekkjaþjónusta Sala á dekkjum og olíuvörum Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi 437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30 Sími 437-2030 - v.v@simnet.is DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK SK ES SU H O R N 2 01 6 ÖLL ALMENN GARÐVINNA • Fjarlægjum tré og kurlum • Útvegum sand, mold og möl • Sláum garða Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 Ég hef varið mörgum dögum og vikum vestur í Miklaholts- hreppi öll sumur frá 1972 eða 1973. Þannig hagaði til, að faðir minn, ásamt öðrum góðum mönn- um voru með Laxá á leigu og hef- ur fjölskylda mín verið með smá sumarkots aðstöðu þar allar göt- ur síðan. Í byrjun var gríðarlega mikið fuglalíf á svæðinu, auk mó- fugla og anda var mikið svartbaks- og gæsavarp um alla flóa. Á flest- um melum var kríuvarp. Senni- lega upp úr 1980 fór mink og tófu að fjölga verulega á svæðinu, fyrst eitt og eitt dýr en þó sá maður vel hvaða áhrif þetta hafði á fuglalíf- ið á svæðinu. Frá 1990-2000 var nánast ekki fugl að sjá og þeir sem reyndu fyrir sér í varpi voru fljót- lega rændir öllum eggjum og oft- ar en ekki étnir sjálfir. Mörg vorin var minkur búinn að koma sér fyr- ir undir kofanum okkar en laum- aðist svo í burtu þegar mannaferð- um fjölgaði. Síðustu 3-4 árin hef ég orðið var við frábæra þróun hér, það er allt að lifna við og gríðarleg aukning á fugli. Núna í sumar hef- ur verið sprenging í varpi og hef ég séð margar endur með marga unga og virðist fugl ætla að koma upp mörgum ungum. Í næsta nágrenni við kofann eru mörg pör af, stelk, spóa, kjóa, jaðrakan, þúfutittling, tjald, sandlóu, heiðlóu, lóuþræl og komin nokkur kríupör aftur, niður í flóa er einnig töluvert af lóm við flestar tjarnir. Meðfram Laxá og Kleifá eru ótrúlega mörg andapör með unga þessa daganna. Aðallega eru það stokkendur og toppendur, en einnig hef ég sé urtendur og eitt gulandarpar. Skógarþrösturinn var að koma upp ungum í annað sinn og maríuerlan er við kofann. Vor- ið 2009 voru 5 greni unnin á svæð- inu og þá tala ég eingöngu um greni á láglendi (ekki fjallagrenin) og eins og Svanur Guðmundsson í Dalsmynni segir í bloggi sínu frá 10.12.2009 um fuglalífið á svæð- inu; ,,við höfðum ekki legið lengi þegar við áttuðum okkur á því að hér væri eitthvað mikið að, það var nánast ekkert fuglalíf þarna svo langt sem við sáum og heyrðum”. 2010 voru 6 greni unnin þarna. Það sem fyrst og fremst hefur ver- ið til þess að auka fuglalífið að nýju er góð vargeyðing (EKK- ERT KVÓTARUGL). Veiði- menn fá greitt fyrir hvert unnið dýr sama hvað þeir ná mörgum á ári. Atli Sveinn Svansson hefur séð um veiðarnar sunnan við Laxá og Hjálmar Ævarsson í Hlað að vest- an og langar mig að ítreka þakkir mínar til þeirra og Svans í Dals- mynni sem ég veit að hefur ver- ið ötull við veiðarnar líka og væri óskandi að fleiri sveitafélög hér á Vesturlandi tækju Eyja - og Mikla- holtshrepp til fyrirmyndar. Með kærri þökk, Hafsteinn Þórisson sumarkotseigandi, Laxárbakka Miklaholtshreppi. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs lýsir yfir samstöðu með tyrkneskum almenningi, harm- ar mannfall í landinu og tekur undir með þeim sem hafa þungar áhyggjur af stöðu og þróun mála í Tyrklandi og nú síðast neyðarástandinu sem lýst hefur verið í landinu. Þingflokkurinn fordæmir harð- lega fjöldahandtökur, uppsagnir þús- unda óbreyttra borgara og skerðingu á ferðafrelsi á grundvelli pólitískra skoðana. Slíkt er algjörlega ótækt og kallar á alvarlegar athugasemdir á al- þjóðlegum vettvangi. Þingflokkurinn fordæmir brot á mannréttindum harðlega og tel- ur mikilvægt að mannréttindi allra tyrkneskra borgara séu tryggð, lýð- ræði virt í hvívetna og að tyrknesk- ir borgarar njóti fullrar verndar óháð stöðu eða stétt. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinn- ar – græns framboðs áréttar stuðn- ing við lýðræðislegar stofnanir og lýðræðislega stjórnskipun sem eru grunnstoðir siðmenntaðra samfé- laga og fordæmir alla tilburði til pólitískra hreinsana. Loks leggur þingflokkurinn áherslu á að utanríkisráðherra nýti hvert tækifæri á alþjóðlegum vett- vangi til að koma skýrt á framfæri áhyggjum íslenskra stjórnvalda og íslensks almennings af mannrétt- indabrotum í Tyrklandi. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs Mikilvægi lýðræðis og varðstaða um mannréttindi í Tyrklandi Pennagrein Pennagrein Þakkir vegna vargeyðingar í Eyja- og Miklaholtshreppi Frystiklefinn í Rifi kynnir: Frumsýn- ing á nýju íslensku verki, Genesis. Genesis er einnar konu gamanleik- ur byggður á sköpurnarsögu Biblí- unnar. Trúðurinn Aðalheiður leiðir áhorfendur í gegnum sköpunarsög- una eins og hún skilur hana og skáld- ar í eyðurnar. Höfundar verksins eru Vala Kristín Eiríksdóttir og Kári Viðarsson. Leikur er í höndum Völu Kristínar og með leikstjórn fer Kári. Vala Kristín Eiríksdóttir leik- kona nam leiklist við Listaháskóla Ís- lands og útskrifaðist vorið 2015. Síð- an þá hefur hún starfað í Borgarleik- húsinu við sýningarnar At, Njálu og Mamma Mia. Hún er meðhöfundur og leikkona sketsaþáttanna Þær Tvær í framleiðslu Stöð Tvö sem sendir frá sér 2.seríu í ágúst 2016. Kári Viðarson leikari og leikstjóri nam leiklist við Rose Bruford Collage í London og útskrifaðist þaðan vor- ið 2009. Síðan þá hefur hann stofn- að leikhús og hostel í Frystiklefanum í Rifi þar sem hann hefur komið að öll- um sýningum sem þar eru settar upp. Genesis er sýnd í Frystiklefanum í Rifi, Snæfellsnesi kl. 20 eftirfar- andi daga: 31.júlí - Frumsýning 7. ágúst 10. ágúst 14. ágúst 17. ágúst 21. ágúst Miðar á www.thefreezerhostel.com. Frekari upplýsingar fást hjá Kára Viðarssyni, sími 865-9432. -fréttatilkynning Nýtt íslenskt verk frumsýnt í Frystiklefanum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.