Skessuhorn


Skessuhorn - 27.07.2016, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 27.07.2016, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016 11 Alma Mjöll Ólafsdóttir leiddi fyrstu Druslugönguna í Stykkishólmi á laugardaginn var. Alma var hæst- ánægð með góða mætingu og afar þakklát Hólmurum fyrir að taka þátt í göngunni og sína þannig þol- endum kynferðisofbeldis stuðn- ing. Markmið Druslugöngunar er að færa ábyrgð kynferðisglæpa frá þolendum yfir á gerendur og undir- strika það að þolendur þessa glæpa eigi hvorki sökina né skömmina. Gengið var frá Hólmgarði, upp og niður Skólastíg og þaðan niður að höfn þar sem gangan endaði. Á leið- inni voru hrópuð nokkur slagorð á borð við „ég er drusla, nei þýðir nei, skilum skömminni, ég á mig sjálf, ég er ennþá ég, ekki nauðga,“ og fleira. Var þetta ekki aðeins fyrsta Druslugangan sem farin er í Stykk- ishólmi, heldur á Vesturlandi öllu. Alma Mjöll ræddi við Skessuhorn í aðdraganda göngunnar síðastlið- inn föstudag. „Hugmyndin kviknaði þegar ég kom heim frá París á mánu- daginn. Systir mín er ein af þeim sem stendur að göngunni í Reykja- vík. Ég kíkti í heimsókn til henn- ar og var að tala um hvað mér þætti leiðinlegt að ég kæmist ekki í göng- una á laugardaginn því ég væri að vinna. Ég fékk þá hugmynd að reyna að halda Druslugönguna í Stykkis- hólmi á laugardaginn. Ég talaði við vinnuveitandann minn, hann Bjarka sem stendur að þessu með mér, og tilkynnti honum hugmyndina mína. Hann studdi þessa hugmynd og því næst fór ég að ræða við lögregluna og bæjarstjórann Sturlu Böðvarsson. Þeir tóku mjög vel í þetta og þetta er því gert í samráði við þá ásamt að- standendum Druslugöngunnar í Reykjavík,“ segir Alma Mjöll. „Okkur finnst að þetta málefni varði landsbyggðina einnig og það þarf að taka á þessu málefni þar líka, þetta er eitthvað sem snertir alla, hvar sem þeir eru á landinu. Ég hef strax fundið það að það eru marg- ir sammála mér því stuðningurinn sem ég hef fengið frá bæjarbúum er mikill. Það hefur komið mér mjög á óvart þar sem fyrirvarinn er mjög stuttur. Það er mjög fallegt og tákn- rænt að minni bæjarfélög taki þátt. Ég vil koma þökkum til bæjarbúa sem hafa tekið svo vel í þetta. Þetta er frábært bæjarfélag og það virðast allir vera með á nótunum um mik- ilvægi málefnisins,“ segir Alma að endingu. jse/bþb/ Ljósm. jse Fyrsta Druslugangan í Stykkishólmi Þátttakendur gengu með skilti og hrópuðu slagorð. Prýðileg þátttaka var í fyrstu Druslugöngu sem farin er á Vesturlandi. Alma og Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri Stykkishólms. Alma Mjöll ávarpar þátttakendur áður en lagt var af stað. Reykholtskirkja Verið innilega velkomin í Reykholtskirkju S K E S S U H O R N 2 01 6 - L jó sm . G Ó Messur: Sunnudaginn 31. júlí kl. 14.00 Sunnudaginn 7. ágúst kl. 14.00 Næstu blöð af Skessuhorni Vegna sumarleyfa kemur ekki út blað 3. ágúst, en þann dag kemur starfsfók úr fríi Næsta Skessuhorn kemur út 10. ágúst

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.