Skessuhorn


Skessuhorn - 27.07.2016, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 27.07.2016, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016 15 Tölvuleikurinn Pokémon Go hef- ur verið eitt heitasta umræðuefn- ið undanfarna daga en í leiknum blandast saman raunheimur og söguheimur Pokémon. Fyrir þá sem ekki þekkja var Pokémon upp- haflega Gameboy tölvuleikur sem kom út árið 1996. Leikurinn náði miklum vinsældum og í kjölfar- ið komu Pokémon spil, ýmis leik- föng, teiknimyndir og fleira. Poké- mon Go leikurinn snýst um að spil- arar leiksins fari á stjá og leiti að Pokémon dýrum og nái þeim. Dýr- unum hefur verið dreift víðsveg- ar um heiminn með aðstoð Go- ogle Earth, en dýrin sjást þó ekki nema í gegn um snjallsíma. Í leikn- um eru þrjú lið, rauða, gula og bláa liðið, sem spilarar geta valið á milli. Liðin reyna svo að ná yfirráð- um á ákveðnum svæðum, svoköll- uð „gym“, en til þess láta þau Poké- mon dýrin berjast sín á milli. Tenging við barnæskuna Á Akranesi hefur leikurinn náð miklum vinsældum, líkt og um land allt, og hefur til að mynda ver- ið stofnuð síða á Facebook ætluð spilurum á Akranesi. Skessuhorn ræddi við einn spilara, hann Brynj- ar Mar Guðmundsson en hann hefur spilað leikinn frá því áður en hann kom til Íslands. „Ég náði í leikinn með krókaleiðum áður en hann kom til Evrópu, svona í byrj- un júlí. Ég er þó ekki mikill tölvu- leikjaspilari en þessi leikur er allt öðruvísi en aðrir leikir og hann er svo mikil tenging við barnæskuna. Ég fæðist einmitt á þeim tíma sem Pokémonæðið var í hámarki svo þetta tekur mig alveg aftur,“ segir Brynjar og brosir. Hann segir leik- inn mjög ólíkan öðrum tölvuleikj- um og þá sérstaklega hvað varðar hreyfingu. „Þessi leikur virkar ekki nema maður sé á hreyfingu, annars gerist ekkert. Svo maður situr ekki inni og spilar heldur verður að fara út og leita að Pokémon dýrum og einnig þurfum við að safna sér- stökum eggjum og þá þarf maður að fara ákveðið marga kílómetra til að fá þau. Ég hef hreyft mig al- veg töluvert frá því ég fór að spila þennan leik,“ segir Brynjar. Spilarar á Akranesi hittast Leikurinn er mjög félagslegur en eins og fram hefur komið ganga spilarar í lið og svo þurfa þeir að vinna saman að því að ná yfirráðum yfir „gymum“ en þó segir Brynjar að ekki hafi myndast neinn ríg- ur á milli liða. „Það eru allir mjög góðir vinir, allavega hér á Akra- nesi, og við hjálpumst að og gefum ráð. Við hittumst t.d. reglulega við Safnasvæðið til að leita að dýrum saman en þar eru venjulega mörg dýr að finna. Dýrin eru venjulega flest við þá staði sem mikil umferð af fólki er, ferðamannastaðina og svoleiðis. Það eru mjög margir að spila leikinn á Akranesi, fólk á öll- um aldri. Núna nýlega komu t.d. 35 manns saman við Safnasvæðið að leita að dýrum svo þetta er mjög skemmtilegt allt,“ segir Brynjar. Ekki er hægt að býsnast yfir hreyfingaleysi hjá spilurum Poké- mon Go en oft hefur kviknað sú umræða um að tölvuleikir séu að einangra börn innandyra og koma í veg fyrir að þau fái nauðsynlega hreyfingu. Þetta er því kannski spurning um nýjung í tölvuleikj- um sem spornar við þeirri þró- un, en tíminn verður að leiða það í ljós. Dæmi eru þó um að spilarar leiksins virðist gleyma því að leik- urinn sé spilaður út í hinum raun- verulega heimi. Hafa verið flutt- ar fréttir af fólki sem gengur út á stórar umferðagötur eða keyri á móti umferð í leit að Pokémon dýrum, en ekki hefur Skessuhorn frétt af slíku hér á Vesturlandi. arg Pokémon Go á Akranesi Það var mikið um dýrðir þegar Reyk- holtshátíð var haldin um helgina í tuttugasta sinn en í ár er einn- ig tuttugu ára vígsluafmæli Reyk- holtskirkju. Það var Reykholtskór- inn undir stjórn Viðars Guðmunds- sonar sem hóf hátíðina á föstudeg- inum. Kórinn er samstarfsverkefni Hvanneyrar-, Reykholts- og Staf- holtsprestakalla og gestur kórs- ins á hátíðinni var Elmar Gilberts- son tenór. Eftir hlé á tónleikunum voru Árstíðirnar eftir Vivaldi fluttar í heild sinni. Laugardagurinn hófst á kammertónleikum en um kvöldið tóku stórtenórinn Elmar Gilberts- son og píanóleikarinn Helga Bryn- dís Magnúsdóttir höndum saman og héldu tónleika undir yfirskriftinni „Ástir á köldum klaka.“ Þar fluttu þau Ástir skáldsins eftir Robert Schumann, úrval laga úr Heims- kringlu eftir Tryggva M. Baldvins- son og loks enduðu þau á að flytja útsetningar Þórðar Magnússonar á þekktum þekktum íslenskum dæg- urlögum. Á lokatónleikum hátíð- arinnar á sunnudaginn stóð upp úr að flutt var nýtt verk eftir Gunn- ar Andreas Kristinsson sem kallast Úr Grímnismálum sem er innblás- ið af Eddukvæði Snorra Sturluson- ar. Á lokatónleikunum voru einn- ig flutt Strengjatríó Beethovens og kammerverk eftir Schubert. „Hátíð- in lukkaðist ótrúlega vel, allir himin- lifandi. Tónleikar og allir viðburðir voru mjög vel sóttir,“ sagði Dagný Egilsdóttir í Reykholti. bþb/ Ljósm. Björn Húnbogi Sveinsson. Reykholtshátíð var haldin um helgina Brynjar Mar Guðmundsson er einn þeirra sem spilar Pokémon Go á Akranesi. Einn Pokémon fannst inni í eldhúsi á skrifstofu Skessuhorns.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.