Skessuhorn - 27.07.2016, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016 17
Reykhóladagar voru haldnir há-
tíðlegir um liðna helgi. Smá skúr-
ir gerðu vart við sig á laugardag og
rigndi með kvöldinu. Gestir létu
það hins vegar ekki stöðva sig í að
njóta dagskrárinnar. Grillveislan var
færð undir þak og allir gengu sátt-
ir frá borði. Sveitungar þjófstörtuðu
hátíðnni á fimmtudegi með kvik-
myndasýningum, brennu og tón-
leikum. Á föstudegi fór fram hverf-
akeppni og keppt var í þarafótbolta.
Á laugardegi fór fram dráttarvéla-
sýningin margfræga og akstursleikni
á gömlum Massey Ferguson var á
sínum stað, en hefur sú þraut ver-
ið fastur liður í dagskrá Reykhóla-
daga frá upphafi. Eftir stórdansleik
að kvöldi laugardags lauk hátíðinni
með kassabílaralli í Króksfjarðarnesi
á sunnudegi. Áðurtaldir viðburðir
eru aðeins brot dagskrárliða sem í
boði voru á Reykhóladögum. Fjöl-
margir sóttu sveitina heim, en stað-
kunnugir ætla að fjöldi gesta hafi
verið mesta móti á hátíðinni.
Geta verður sérstaklega framtaks
Seljanesfólks. Á Seljanesi var hald-
ið uppboð á ýmsum varningi. Þátt-
taka í uppboðinu var góð, gestir fjöl-
margir og varð þar mikið manna-
mót. Söfnuðust á uppboðinu um
730 þúsund krónur og rennur ágóð-
inn óskiptur til Umhyggju, félags
langveikra barna.
kgk
Fjör á Reykhóladögum
Uppboð á ýmsum munum var haldið á Seljanesi. Rann allur ágóð þess til styrktar
Umhyggju, félags langveikra barna.
Dráttarvélunum ekið í halarófu inn á Reykhóla. Sjaldan hafa fleiri vélar verið til sýnis á Reykhóladögum, eða langt á þriðja tug. Ein væn salibuna á karnivalinu í Hvanngarðabrekku.
Hringjum safnað í brautinni. Pub Quiz á Báta- og hlunnindasýningunni sem María Maack stjórn-
aði.
Börnin biðu í röðum eftir að fá andlit sitt málað.
Fjölmargir söfnuðust saman til að fylgjast með ökuþórum keppa í
akstursleikni á dráttarvél.
Heykvíslin er til margra hluta nytsamleg. Það sannaði Jóhann Vívill
frá Seljanesi sem brúkar eina slíka sem selfie-stick.
Yngri kynslóðin var dugleg að máta sig við vélarnar.
Blaðran sprengd í akstursleiknibrautinni. Báta- og hlunnindasýningin lifnaði við á laugardag. Jóhannes úr
Skáleyjum ríður net.
Skottsala á karnivalinu í Hvanngarðabrekku.