Skessuhorn - 27.07.2016, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2016 21
Grunnskólakennara vantar
við Auðarskóla
Vegna óvæntra forfalla vantar
kennara við Auðarskóla næsta
skólaár. Allar upplýsingar veitir
Þorkell Cýrusson skólastjóri í
síma 894-3445 eða í tölvupósti
keli@audarskoli.is.
Smáfjölskylda leitar að íbúð í
Borgarnesi eða á Akranesi
Tveggja manna smáfjölskylda
(móðir og barn) leita að tveggja
til fjögurra herbergja íbúð í
Borgarnesi eða á Akranesi frá
og með 1. ágúst. Rólyndisfólk
með meðmæli og fleira sé þess
óskað. Greiðslugeta allt að 120
þúsund uppgefið. Upplýsingar
í tölvupósti á berglindoskg@
gmail.com.
Tímapantanir hjá miðli
Tímapantanir í einkatíma hjá
Þórhalli Guðmundssyni miðli er
hjá Kiddý í síma 431-1391.
Akranes -
miðvikudagur 27. júlí
Kári mætir Reyni Sandgerði í 3.
deild karla í knattspyrnu kl. 20:00.
Leikið verður í Akraneshöll.
Akranes –
miðvikudagur 27. júlí
Sumartónleikar Kalmans – Stúlk-
urnar úr Berklee kl. 21:30. Söng-
konurnar Brynja Valdimarsdóttir
og Inga María frá Akranesi hafa
báðar stundað nám í einum besta
tónlistarskóla heims, Berklee Col-
lege of Muisc. Þær flytja fjölbreytta
söngdagskrá. Aðgangseyrir kr.
2000, Kalmansvinir kr. 1.500.
Borgarnes –
fimmtudagur 28. júlí
Unglingalandsmót UMFÍ sem
haldið verður í Borgarnesi dagana
28. júlí til 31. júlí. Verður keppt í
14 greinum og nóg verður um
að vera fyrir alla fjölskylduna,
kvöldvökur, hoppukastalar og
margt fleira.
Stykkishólmur –
fimmtudagur 28. júlí
Sönghópurinn Olga Vocal
Ensemble verður með tónleika í
Stykkishólmskirkju kl 20. Miðasala
fer fram á tix.is og eru miðar ódýr-
ari í netsölu.
Hvalfjarðarsveit –
föstudagur 29. júlí
Hátíðin Gaman saman verður
haldin að Hlöðum Hvalfjarðar-
strönd um verslunarmannahelg-
ina 29. júlí til 1. ágúst. Hátíðin er
vímuefnalaus fjölskylduhátíð og
boðið verður upp á fjölbreytta
dagskrá fyrir alla aldurshópa.
Borgarnes –
laugardagur 30. júlí
Matar- og flóamarkaður verður
haldinn í Englendingavík í Borgar-
nesi kl. 13. Matur, kökur og alls
kyns vörur verða á markaðsverði.
Spákona verður á staðnum og
leikdót fyrir börnin. Sultukeppni
með veglegum vinningum.
Snæfellsbær –
laugardagur 30. júlí
Djúpalónssandur – Dritvík.
Sjórinn gaf og sjórinn tók. Gestir
hitta landverði við bílastæðið á
Djúpalónssandi kl. 14. Gengið um
Djúpalónssand og til Dritvíkur.
Á leiðinni eru völundarhús og
búðarústir, norðan Dritvíkur eru
fiskreitir. Á Djúpalónssandi eru
steintök sem vermenn reyndu afl
sitt á.
Reykhólar –
laugardagur 30. júlí
Hljómsveitin góðkunna og gamal-
kunna Spaðar spilar á balli á Hótel
Flatey. Ekki er ósennilegt að þetta
verði eina skiptið sem Spaðarnir
koma fram á þessu ári, en þeir
mega teljast nokkuð hagvanir í
Flatey á Breiðafirði.
Grundarfjörður –
sunnudagur 31. júlí
Hátíðarmessa í Grundarfjarðar-
kirkju kl. 14 í tilefni 50 ára vígsluaf-
mælis. Biskup Íslands Sr. Agnes
M Sigurðardóttir predikar. Kaffi-
samsæti í Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga eftir athöfn og listasýningin
Listamaðurinn í kirkjunni verður
opin. Allir velkomnir.
Snæfellsbær –
sunnudagur 31. júlí
Frumsýning á nýju íslensku verki í
Frystiklefanum á Rifi kl. 20. Verkið
heitir Genesis og er eftir Völu Krist-
ínu Eiríksdóttur og Kára Viðarsson
og leikur Vala í leikstjórn Kára.
Snæfellsbær –
sunnudagur 31. júlí
Barna- og fjölskyldustund á
Malarrifi kl. 11. Landverðir taka á
móti börnum við gestastofuna á
Malarrifi og rannsaka með þeim
náttúruna, segja sögur, fara í leiki
og margt fleira. Barnastundir eru
miðaðar við börn 6-12 ára. For-
eldrum er velkomið að taka þátt.
Snæfellsbær -
sunnudagur 31. júlí
Malarrif – Svalþúfa. Lífið í bjarginu
frá kl. 14 - 16. Gestir hitta land-
verði við gestastofuna á Malarrifi.
Gengið að Lóndröngum sem eru
glæsilegir útverðir þjóðgarðsins.
Sagt frá minjum um vermennsku
fyrri tíma. Gengið á Svalþúfu þar
sem Kolbeinn Grímsson og Kölski
kváðust á forðum.
Akranes –
miðvikudagur 3. ágúst
Pepsi deild karla: ÍA – FH á Akra-
nesvelli kl. 19:15
Borgarnes –
fimmtudagur 4. ágúst
Rúnar Gíslason sækist eftir 1.-3.
sæti á lista Vinstri grænna í Norð-
vesturkjördæmi. Hann boðar til
opins fundar í Landnámssetrinu
í Borgarnesi kl. 20, þar sem hann
mun kynna sín helstu stefnumál.
Allir velkomnir.
Dalabyggð –
laugardagur 6. ágúst
Ólafsdalshátíð 2016 hefst kl. 13.
Lína langsokkur mætir á svæðið til
að skemmta börnum á aldrinum
0-99 ára. Þá mun Drengjakór ís-
lenska lýðveldisins mæta með nýja
dagskrá og Guðrún Tryggvadóttir
kynna sýningu sína Dalablóð.
Lífrænt vottað Ólafsdalsgrænmeti
verður til sölu, glæsilegt Ólafsdals-
happdrætti og vandaður hand-
verks- og matarmarkaður. Ókeypis
verður inn á hátíðina að vanda og
allir velkomnir.
Akranes –
sunnudagur 7. ágúst
Pepsi deild kvenna: ÍA – Þór/KA á
Akranesvelli kl. 16.
Snæfellsbær -
sunnudagur 7. ágúst
Malarrif – Svalþúfa. Lífið í bjarginu
frá kl. 14 - 16. Gestir hitta land-
verði við gestastofuna á Malarrifi.
Gengið að Lóndröngum sem eru
glæsilegir útverðir þjóðgarðsins.
Sagt frá minjum um vermennsku
fyrri tíma. Gengið á Svalþúfu þar
sem Kolbeinn Grímsson og Kölski
kváðust á forðum.
Snæfellsbær –
sunnudagur 7. ágúst
Pepsi deild karla: Víkingur Ó – ÍBV
á Ólafsvíkurvelli kl. 16.
Nýfæddir Vestlendingar
Á döfinni
Markaðstorg
Vesturlands
TIL SÖLU
Markaðstorg
Vesturlands
Skráðu SMáauglýSinguna
á www.SkeSSuhorn.iS
fyrir klukkan 12.00
á þriðjudöguM
LEIGUMARKAÐUR
ATVINNA Í BOÐI
ÝMISLEGT
20. júlí. Drengur. Þyngd 4.666
gr. Lengd 56 sm. Foreldrar:
Erna Guðný Jónsdóttir
og Reynir Reynisson,
Borgarnesi. Ljósmóðir: Helga R
Höskuldsdóttir.
22. júlí. Stúlka. Þyngd 4.120
gr. Lengd 55 sm. Foreldrar:
Nirosha S. Mirisa Palliya Guruge
og Alberto Diaz, Akranesi.
Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir.
NORÐURÁLSVÖLLUR
Allir á völlinn
ÍA – FH
Miðvikudaginn 3. ágúst kl. 19:15
Mætum öll gul og glöð
Aðalstyrktaraðili leiksins er:
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
PEPSIDEILD Karla:
Ringó er týndur
Ringó er týnd
kisa, sást síðast
fimmtudaginn
21. júlí. Hann er
hvítur og grá/
bröndóttur, ólarlaus en örmerkt-
ur. Hann býr á Bifröst og viljum
við biðja þá sem eiga heima þar
í kring að litast um eftir honum.
Ef þið hafið séð hann endilega
hringið í Elís í síma 864-6030.
Þriðja umferð Íslandsmótsins í
rallý fór fram dagana 22. og 23. júlí
í Skagafirði. Það var Bílaklúbbur
Skagafjarðar sem stóð fyrir keppn-
inni en þessi árvissa keppni vekur
bæði áhuga og eftirtekt rallýáhuga-
fólks þar sem skipulag og fram-
kvæmd er ávallt til eftirbreytni. Það
var því margt um manninn, tæp-
lega tuttugu áhafnir voru mættar
til leiks auk þjónustufólks og áhorf-
enda. Veður var ekki hagstætt, mik-
ið rigndi og þokusúld lá yfir stórum
hluta sérleiðanna. Aðstæður voru
því erfiðar, vegir sleipir og skyggni
lítið á köflum.
Fyrirfram var búist við harðri
keppni um efstu sætin en rallý snýst
ekki eingöngu um að aka hratt held-
ur einnig um ástand bifreiða. Strax
á fyrstu sérleiðum féllu tvær sterkar
áhafnir úr leik sökum bilana í bif-
reiðum þeirra en tvær aðrar bættust
í þann hóp á laugardeginum.
Ljóst var við lok aksturs á föstu-
dagskvöldið að Borgfirðingurinn
Aðalsteinn Símonarson og Sigurður
Bragi Guðmundsson leiddu keppn-
ina. Þeir óku því hratt en öruggt á
laugardeginum sem skilaði þeim
að lokum fyrsta sæti með rúmlega
2 mínútna forskoti á Baldur Hlöð-
versson og Hönnu Rún Ragnars-
dóttur sem urðu í öðru sæti. Í þriðja
sæti urðu Sigurður Arnar Pálsson
og Ragnar Bjarni Gröndal.
Keli vert með
lengsta stökkið
Í jeppaflokki kepptu fjórar áhafnir
en félagarnir Guðmundur Snorri
Sigurðsson og Magnús Þórðarson
sem óku á Cherokee, urðu í fyrsta
sæti með 40 sek forskot á þá Þórð
Ingvarsson og Björn Inga Björns-
son sem óku á Mitsubishi Pajero.
Keli vert og Þórarinn K. Þorkels-
son misstu naumlega af þriðja sæt-
inu til þeirra Péturs Ástvaldssonar
og Snæbjörns Haukssonar en þeir
urðu fyrir því óláni að þjófstarta og
fá fyrir það refsingu.
Keli vert fór þó ekki verðlauna-
laus heim því í minningu félags-
manns úr Bifreiðaklúbbi Skaga-
fjarðar, Vilhjálms Sigurðar Við-
arssonar, voru veitt verðlaun fyr-
ir lengsta stökkið á Mælifellsdal.
Eftir nákvæmar mælingar var ljóst
að Keli og Þórarinn sem óku á To-
yota Hilux stukku lengst, eða um
17 metra.
Sigurður Bragi og Aðalsteinn
leiða nú í heildarkeppni Íslands-
mótsins þegar það er rúmlega
hálfnað en Keli vert og Þórarinn
eru í öðru sæti til íslandsmeistara í
jeppaflokki. Næsta keppni verður í
lok ágúst, verður það þriggja daga
keppni sem m.a. mun fara fram á
Kaldadal.
gg
Aðalsteinn og Sigurður
leiða Íslandsmótið
Aðalsteinn og Sigurður Bragi sigruðu í Skagafirði. Þeir leiða heildarkeppni Ís-
landsmótsins.
Keli vert og Þórarinn rétt misstu af
þriðja sætinu í Skagafirði en fengu
verðlaun fyrir lengsta stökkið á
Mælifellsdal.