Skessuhorn - 18.01.2017, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 201714
Á undanförnum vikum hefur
nokkrum sinnum orðið vart við
karlmann í nágrenni Grundaskóla
á Akranesi sem í algjöru heimilda-
leysi býður nemendum skólans
bækur að gjöf. „Maður þessi hef-
ur nálgast nemendur í grennd við
skólann og á skólalóðinni og boð-
ið þeim að þiggja bækur. Um er
að ræða hávaxinn eldri mann með
hvítt hár og sítt skegg. Hann klæð-
ist grænni úlpu, ferðast um á ljós-
leitum bíl, en ekur í burtu þeg-
ar hann verður var við starfsmenn
skólans. Nemendum gefur hann
síðan Nýja-Testamentið,“ seg-
ir Flosi Einarsson aðstoðarskóla-
stjóri Grundaskóla í tölvupósti
sem sendur hefur verið foreldrum
barna í skólanum.
Flosi tekur fram að maður-
inn hefur ekki boðið nemendum
sælgæti, hefur ekki sýnt ógnandi
hegðun né reynt að laða þau að sér
á nokkurn hátt umfram það að gefa
þeim fyrrgreindar bækur. „Við lít-
um þetta mál alvarlegum augum og
gerum allt sem í okkar valdi stend-
ur til að ná tali af þessum manni
og gera honum grein fyrir því að
við viljum að hann láti af þessari
iðju. Við erum í nánu samstarfi við
lögregluna sem fylgist grannt með
svæðinu í kringum grunnskólana
auk þess sem starfsfólk Grunda-
skóla hefur hert á gæslunni,“ seg-
ir Flosi. Fram kemur einnig að
maður þessi var við Grundaskóla
a.m.k. 4. og 6. janúar í þessum er-
indagjörðum og jafnframt a.m.k
tvisvar sinnum fyrir jól.
mm
Óþekktur maður
býður skólabörnum
Nýja-Testamentið
Yfirlýsing um ábyrga ferðaþjón-
ustu var undirrituð af forsvarsfólki
yfir 250 fyrirtækja í Háskólanum í
Reykjavík í síðustu viku að viðstödd-
um Guðna Th. Jóhannessyni for-
seta Íslands sem jafnframt tók að sér
að vera verndari verkefnisins. Það
eru Festa – miðstöð um samfélags-
ábyrgð og Íslenski ferðaklasinn sem
standa að verkefninu í samstarfi við
Ferðamálastofu, SAF, Íslandsstofu,
Stjórnstöð ferðamála, Markaðsstofur
landshlutanna, Höfuðborgarstofu og
Safetravel.
Ábyrg ferðaþjónusta er hvatn-
ingarverkefni um að fyrirtæki tengd
ferðaþjónustu sammælist um nokkr-
ar skýrar og einfaldar aðgerðir um
ábyrga ferðaþjónustu. Tilgangur
verkefnisins er að stuðla að því að Ís-
land verði ákjósanlegur áfangastað-
ur ferðamanna um ókomna tíð sem
styður við sjálfbærni fyrir komandi
kynslóðir þjóðarinnar. Áhersluþætt-
irnir eru að ganga vel um og virða
náttúruna, tryggja öryggi gesta okk-
ar og koma fram við þá af háttvísi,
virða réttindi starfsfólks og hafa já-
kvæði áhrif á nærsamfélagið. Styðja
á við ferðaþjónustufyrirtæki sem vilja
vinna markvisst að sjálfbærni og sam-
félagsábyrgð og setja fram skýr skila-
boð frá fyrirtækjum um að þau vilji
vera ábyrg. Þá verður dregið fram
það sem vel er gert á sviði sjálfbærni
og samfélagsábyrgðar í ferðaþjón-
ustu. Hvetja á fyrirtæki sem ekki eru
byrjuð að huga að sjálfbærni og sam-
félagsábyrgð. Yfirlýsingunni verður
fylgt eftir með fræðsludagskrá fyr-
ir fyrirtæki um samfélagsábyrgð og
sjálfbærni. mm
Samstarf um ábyrga ferðaþjónustu
Eftir undirritun sáttmálans um ábyrga ferðaþjónustu var stillt upp í myndatöku.
„Þetta er glæsilegt skip og nú
verður stefnan tekin til Íslands,“
sagði Friðleifur Einarsson, skip-
stjóri á Engey RE á vef fyrirtæk-
isins um miðja síðustu viku. Snjó-
koma í Tyrklandi tafði lítið eitt fyr-
ir upprunalegri áætlun um heim-
ferð skipsins, en það er væntanlegt
fyrir lok mánaðarins til Reykjavík-
ur. Þaðan verður Engey svo siglt
á Akranes þar sem millidekks- og
lestarbúnaður, meðal annars kara-
flutningskerfi, frá Skaganum 3X
verður sett um borð.
Ísfisktogarinn Engey RE hefur
sem kunnugt er verið í smíðum fyr-
ir HB Granda í skipasmíðastöðinni
Celiktrans í Tyrklandi og er fyrsta
af þremur systurskipum sem raðs-
míðuð verða þar. Sama stöð smíð-
aði auk þess uppsjávarveiðiskipin
Venus og Víking. Sjö manna áhöfn
siglir Engey nú heim. Auk Frið-
leifs Einarssonar skipstjóra munu
bróðir hans, Einar Bjarni Ein-
arsson stýrimaður, Emil Sigurð-
ur Magnússon stýrimaður, Bjarni
Bjarnason matveinn, Magnús Sig-
urðsson yfirvélstjóri og vélstjór-
arnir Sigurður R. Sigurðsson og
Siguróli Sigurðsson standa vaktina
á heimsiglingunni.
Engey RE er 54,75 metrar að
lengd og 13,5 metrar að breidd.
Aðalvélin er af gerðinni MAN
6L27/38 og er skráð afl hennar
1.790 kW við 800 snúninga á mín-
útu. Niðurfærslugír er frá Reintjes
með PTO fyrir ásrafala. Skrúfa er
frá MAN og er hún 3,8 m í þver-
mál. Vélin er útbúin með meng-
unarvarnarbúnaði af gerðinni SCR
Catalysator. Tvær MAN ljósavélar
eru um borð og er afl hvorrar um
sig 443kW. Spilkerfið er frá Naust
Marine og eru allar vindur raf-
knúnar. Bógskrúfa er frá Brunvoll
og er hún 300 kW. Millidekks- og
lestarbúnaður verður smíðaður
hjá Skaganum 3X og verður hann
settur í skipið á Íslandi. Hönnuður
skipsins er Alfreð Tulinius skipa-
tæknifræðingur hjá Nautic ehf.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum, frá skipasmíðastöðinni
Celiktrans er aðbúnaður um borð
í skipinu framúrskarandi. Hvort
sem litið er til vistarveru áhafn-
ar, matsalinn, eldhúsið eða sjálfa
brúna. mm
Engey RE á heimsiglingu frá Tyrklandi