Skessuhorn


Skessuhorn - 15.02.2017, Side 8

Skessuhorn - 15.02.2017, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 20178 Aflatölur fyrir Vesturland 4. til 10. febrúar Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 6 bátar. Heildarlöndun: 46.432 kg. Mestur afli: Eskey ÓF: 19.642 kg í fjórum löndunum. Arnarstapi 3 bátar. Heildarlöndun: 19.074 kg. Mestur afli: Álfur SH: 7.811 kg í einni löndun. Grundarfjörður 2 bátar. Heildarlöndun: 3.637 kg. Mestur afli: Birta SH: 3.637 kg í tveimur löndunum. Ólafsvík 13 bátar. Heildarlöndun: 374.355 kg. Mestur afli: Bárður SH: 88.987 kg í sjö löndunum. Rif 5 bátar. Heildarlöndun: 90.143 kg. Mestur afli: Bíldsey SH: 33.863 kg í fjórum löndunum. Stykkishólmur 4 bátar. Heildarlöndun: 16.861 kg. Mestur afli: Fjóla SH: 5.386 kg í fjórum löndunum. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Jákup B KG - ÓLA: 44.506 kg. 6. febrúar. 2. Arnar SH - ÓLA: 20.386 kg. 4. febrúar. 3. Bárður SH - ÓLA: 17.183 kg. 9. febrúar. 4. Bárður SH - ÓLA: 15.903 kg. 9. febrúar. 5. Bárður SH - ÓLA: 15.796 kg. 10. febrúar. grþ Guðmundur Sigurðsson, fyrr- verandi skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi, var sérstakur heið- ursgestur körfuknattleiksdeildar Skallagríms á úrslitaleik Keflavíkur og Skallagríms í Maltbikarnum á laugardaginn. Guðmundur er upp- hafsmaður körfuboltans í Borgar- nesi en hann hóf að skipuleggja æf- ingar innan Skallagríms skömmu eftir að hafa flutt í Borgarnes árið 1958. Síðan hefur körfubolti ætíð verð stundaður innan félagsins. Guðmundur hafði kynnst körfu- bolta á námsárum sínum. Áður en leiðin lá í Borgarnes bjó hann á Suðurnesjum en þar var hann m.a. hvatamaður að því að körfur voru settar upp í Njarðvík og Grinda- vík. Þessir bæir, líkt og Borgarnes, urðu miklir körfuboltabæir í fyll- ingu tímans. Guðmundur þjálf- aði m.a. meistaraflokk kvenna sem varð Íslandsmeistari í körfubolta árið 1964. hlh Guðmundur heiðursgestur á bikarúrslitaleik Guðmundur Sigurðsson og Björn Bjarki Þorsteinsson núverandi formaður körfu- knattleiksdeildar Skallagríms á úrslitaleiknum á laugardaginn. Ljósm. jho. Færeyska línuskipið Jákub B land- aði í annað sinn á stuttum tíma í Ólafsvík síðastliðinn mánudag, að þessu sinni 35 tonnum af úrvals fiski sem fór beint á markað. Að sögn Óskars Melsted sölustjóra hjá Fiskmarkaði Íslands fór kílóið af þorskinum á 300 krónur og ýsan lagði sig á 305 krónur. Hann sagði að gott væri að fá þennan afla á land nú þegar verkfall sjómanna stendur yfir. „Ég á ekki von á því að fá þetta skip aftur til löndunar hér þar sem kvóti færeyskra skipa er ekki mikill hér við land,“ sagði Óskar. Færeysku sjómennirnir sem fréttaritari ræddi við í Ólafsvík á mánudaginn voru mjög ánægð- ir með alla þá þjónustu sem þeir fengu í Ólafsvík. Þeir kváðust hafa óttast læti þar sem sjómannverkfall stæði yfir. Þeir sögðust hafa lent í miðju sjómannaverkfalli þegar þeir lönduðu eitt sinn í Skotlandi og þar hefði verið skvett olíu á fiskinn. Því voru þeir mjög sáttir að landa hér, enda sögðu þeir alþekkt að Ólsar- ar væru höfðingjar heim að sækja. Á árum áður voru Færeyingar fjöl- mennir í Ólafsvík og tengslin sterk milli landanna. af Færeyingar lönduðu í annað sinn í Ólafsvík Ólöf Nordal alþingsmað- ur, varaformaður Sjálfstæðis- flokksins og fv. ráðherra lést 8. febrúar síðastliðinn, 50 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein. Ólöf Nordal fædd- ist í Reykjavík 3. desember 1966. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1986, lauk lögfræðiprófi við Háskóla Íslands 1994 og fékk málflutningsréttindi fyr- ir héraðsdómi árið 1999. Þá lauk hún MBA námi við Há- skólann í Reykjavík árið 2002. Ólöf var alþingismaður Sjálf- stæðisflokksins í Norðaustur- kjördæmi 2007-2009 og þing- maður Reykjavíkurkjördæm- is suður 2009-2013 og aftur frá árinu 2016. Ólöf tók við embætti innanríkisráðherra 4. desember 2014 og gegndi því starfi til 11. janúar á þessu ári. Ólöf lætur eftir sig eigin- mann og fjögur börn. mm And lát: Ólöf Nordal Hópur hjólreiðamanna á Akranesi hefur tekið sig saman og stofnað hjólahóp sem æfir tvisvar í viku í íþróttasalnum við Jaðarsbakka. Hópurinn heyrir undir Ung- mennafélagið Skipaskaga, sem er aðildarfélag að ÍA. Gísli Guð- mundsson rakari og hjólreiðamað- ur er einn af forsprökkum hópsins og heldur utan um æfingarnar. Í samtali við Skessuhorn segir Gísli að nokkrir hjólarar hafi byrjað að hittast í haust og hjóla saman. Í framhaldi af því var mikill áhugi að finna flöt á að geta æft saman innanhúss í vetur, til að vera í sem bestu hjólaformi í vor. „Við sóttum um aðild að Skipaskaga og vorum samþykkt þar sem deild í byrjun nóvember. Eftir það fengum við fasta æfingartíma í spinningsaln- um að Jaðarsbökkum á þriðjudög- um og fimmtudögum. Við leggj- um upp úr því að æfingahópurinn sé áhugafólk um hjólreiðar og vilji efla sig á því sviði t.d. hvað varðar úthald og tækni.“ Hentar öllum Gísli segir að til að geta tekið þátt í hjólaæfingum þurfi að skrá sig í hjólahóp Umf. Skipaskaga. Það sé hægt að gera með því að hafa samband við Guðrúnu Sig- ríði Gísladóttur, til dæmis í gegn- um Facebook. Hann segir hjóla- hópinn henta fyrir alla sem hafa áhuga á hjólreiðum, bæði byrjend- ur sem lengra komna. „Fólk tek- ur þetta bara á sínum hraða. Það eru margir sem halda að þetta sé algjör geðveiki og rugl en í raun og veru hjólar þú bara eftir þinni getu. Þess vegna er hægt að byrja hvenær sem er.“ Gísli segir marga vera skráða í hópinn og að þeim hafi fjölgað jafnt og þétt frá því í nóvember. „Það eru samt alls ekki allir sem mæta reglulega á æfingar. Við erum oftast í kringum 12 til 14 manns og getum í raun ekki bætt mörgum við á þessar inniæfing- ar vegna aðstöðunnar.“ Aðspurður hvað sé framundan segir hann að ýmislegt sé á döfinni hjá meðlim- um hjólahópsins. „Það eru tveir aðilar úr hópnum sem eru að fara að hjóla með Team Rynkeby Ísland frá Kaupmannahöfn til Parísar um 1300 km leið. Ég er sjálfur að stefna á að fara aftur til Svíþjóðar 2018 og taka þátt í Vatternrundan, sem er 300 km leið. Það yrði þá í þriðja sinn sem ég tek þátt þar. Svo erum nokkur sem stefnum á þátt- töku í Bláa lóns þrautinni í sumar og við erum með einn í hópnum sem hefur keppt í Járnkarlinum. Við erum með fullt af fólki sem er að stefna á ýmislegt. Fólk er að kaupa sér hjól og er að fara að gefa í og gera eitthvað skemmtilegt. Nú fer að líða að því að maður fer að fara meira út og leika sér,“ segir Gísli hress að endingu. grþ Hjólreiðamenn æfa saman á Akranesi Gísli kátur eftir þátttöku í hjólakeppni í Svíþjóð, þar sem hann hjólaði 300 kílómetra.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.