Skessuhorn - 15.02.2017, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 201720
Límtré Vírnet varð til í ársbyrjun
2005 þegar fyrirtækin Límtré og
Vírnet Garðastál voru sameinuð í
eitt. Áður hafði Límtré keypt Vír-
net í Borgarnesi og sameinað það
Garðastáli. Fyrirtækin sem sam-
einuðust í Límtré Vírnet 2005 eiga
bæði langa sögu í íslenskum bygg-
ingaiðnaði. Límtré var stofnað árið
1982 en Vírnet öllu fyrr, eða árið
1956. Árið 2007 var Límtré Vírnet
sameinað BM Vallá en í framhaldi
af bankahruninu varð sú samsteypa
gjaldþrota í maí 2010. Límtré Vír-
net var þá endurstofnað í maí 2010
og síðan hefur verið góður stígandi
í rekstrinum og hann í ágætu jafn-
vægi, að sögn Stefáns Loga Har-
aldssonar framkvæmdastjóra. Hefur
fyrirtækið til að mynda verið á lista
upplýsinga- og þjónustufyrirtækis-
ins Creditinfo yfir framúrskarandi
fyrirtæki árin 2015 og 2016, en að-
eins um 1,7% skráðra íslenskra fyr-
irtækja komust á þennan lista á síð-
asta ári. Í rökstuðningi með þeim
tilnefningum segir að þau fyrirtæki
sem skipi listann eigi það sameigin-
legt að sýna stöðugleika í rekstri og
skapa þannig sjálfbær verðmæti. Því
séu þau afar verðmæt hluthöfun-
um og samfélaginu í heild. Skessu-
horn hitti framkvæmdastjórann
Stefán Loga að máli í Borgarnesi í
síðustu viku og ræddi við hann um
starfseminu og fyrirtækið. Þar kem-
ur fram að talsverð þróun er í bygg-
ingaaðferðum og boða þær bæði
tækifæri í nýrri framleiðslu en einn-
ig samdrátt í annarri. Þannig verð-
ur síðar á þessu ári hætt framleiðslu
nagla í Borgarnesi og lýkur þar með
51 árs samfelldri sögu naglafram-
leiðslu þar.
Reksturinn sveiflum
háður
„Það er ágætlega jákvæður gangur í
byggingageiranum um þessar mund-
ir, en hann er jafnan sveiflum háður.
Það hefur töluvert að segja í okkar
starfsemi, því við fylgjum nokkuð
sveiflunum í greininni,“ segir Stefán
í samtali við Skessuhorn. „Síðan fyr-
irtækið var endurstofnað árið 2010
hefur verið hægur en góður stíg-
andi í rekstrinum. Árin þar á und-
an, eftir efnahagshrunið, voru erf-
ið. Límtré Vírnet var sameinað BM
Vallá árið 2007 og svo varð hrun-
ið, en því fylgdi gríðarmikið álag á
greinina. En eftir endurstofnun þá
hefur þetta verið upp á við, hægt og
sígandi. Árið 2016 var til að mynda
eitt besta árið í sögu fyrirtækis-
ins verkefnalega séð, en ekki endi-
lega afkomulega séð. Því samhliða
styrkingu krónunnar hefur þyngst
samkeppni við innfluttar lausnir
og byggingar, bæði úr stálgrind og
límtré. Stór hluti af tilkostnaði fyrir-
tækisins er tilkominn vegna íslensks
rekstrarumhverfis. Það er til dæm-
is gríðarlegur mismunur á laun-
um milli Íslands og margra annarra
samkeppnislanda, svo sem á hinum
Norðurlöndunum. Bæði hafa laun
hækkað mikið hér á landi, undanfar-
in ár samkvæmt kjarasamningum,
en einnig kemur til launaskrið, sem
lætur ekki á sér standa þegar umsvif-
in aukast og aukin samkeppni verð-
ur um starfsfólk. Þá hefur breytingin
á gengi krónunnar gert framleiðslu-
fyrirtækjum á Íslandi erfitt fyrir að
keppa við stærri framleiðendur er-
lendis í miklu stærri og afkastameiri
verksmiðjum. Krónan þyrfti að vera
í meira jafnvægi,“ segir Stefán.
Ekki kappsmál
að velta miklu
Starfsmenn Límtrés Vírnets eru um
hundrað talsins. Þar af starfa um 55
í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Borg-
arnesi. Þar er stærsta einstaka fram-
leiðslueining fyrirtækisins, völsunar-
deildin. Þar er fyrst og fremst fram-
leitt valsað stál og ál til klæðninga á
þök og veggi utanhúss, auk fram-
leiðslu á milliveggjastoðum úr stáli.
Aðal söludeild fyrirtækisins er einnig
í Borgarnesi, sem og þjónustudeild-
ir eins og rafmagnsverkstæði, járn-
smiðja og blikksmiðja, en þar eru
smíðaðir allir fylgihlutir og áfellur
með klæðningarefninu. Töluverð
starfsemi er síðan einnig í starfsstöð
fyrirtækisins á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu, sem staðsett er í Kópavogi,
þar sem byggingadeildin er m.a. til
húsa. Hefur sú deild innan fyrirtæk-
isins verið að stækka nokkuð hratt
undanfarin misseri samhliða fjölg-
un verkefna. Þá er fyrirtækið einn-
ig með lager fyrir loftræstikerfi og
byggingavörur í Kópavogi, auk þess
sem hluti af stjórnendateymi fyrir-
tækisins er staðsettur þar, svo sem
forstöðumaður byggingadeildar,
fjármálastjóri og innkaupastjóri.
Heildarvelta fyrirtækisins á síðasta
ári var 2,5 milljarðar króna og hefur
veltan aukist verulega frá því fyrir-
tækið var endurstofnað. „Árið 2010
var ársvelta fyrirtækisins rétt um
einn milljarður en til samanburð-
ar má nefna að fyrir sameininguna
við BM Vallá, árið 2007, þá var velt-
an komin yfir þrjá milljarða, en það
ár var nú býsna ýkt,“ segir Stefán,
en bætir því við að stjórnendum sé
ekki endilega mesta kappsmál að
auka bara veltuna. Fyrst og síðast
sé þeirra markmið að reksturinn sé
hagkvæmur. „Það er ekkert fengið
með því að ná bara að velta miklu
í þessum rekstri. Góð velta þarf að
skila sér í góðri afkomu. Þá getum
við haldið uppi góðu þjónustustigi
við okkar viðskiptavini, góðri starf-
semi með góðu starfsfólki og greitt
samkeppnishæf laun,“ segir Stefán.
Stærsti einstaki
samningurinn
Eins og segir hér að ofan var árið
2016 eitt besta árið í sögu endur-
stofnaðs fyrirtækis verkefnalega
séð. Á síðasta ári landaði Límtré
Vírnet til að mynda stærsta einstaka
samningi sínum frá upphafi, þeg-
ar fyrirtækið samdi við dótturfélag
Icelandair um byggingu 11 þús-
und fermetra flugskýlis á Keflavík-
urflugvelli. „Flugskýlið verður allt
klætt og einangrað með nýju stein-
ullareiningunum okkar, en það eru
um tíu þúsund fermetrar sem þarf
að einangra og klæða. Það verður
allt framleitt í nýju yleiningaverks-
iðjunni okkar á Flúðum og þar af
leiðandi allur virðisauki innlend-
ur,“ segir Stefán. „Stálgrindar-
húsið flytjum við inn frá Rúmeníu.
Þar höfum við verið í samstarfi við
gott fyrirtæki sem framleiðir stál-
grindur, yleiningar og fleiri bygg-
ingatengdar vörur. Hjá því fyrir-
tæki fara saman gæði og gott verð
og samstarfið er gott,“ segir hann,
en Límtré Vírnet hefur í gegnum
árin flutt inn stálgrindur og boðið
í bland við límtréshúsin, mest frá
Llentab í Svíþjóð. „Hér áður voru
stór iðnaðarhúsnæði mest stál-
grindarhús en límtré er nú orðið
meiri valkostur og hefur tekið við
af stálinu að stærri hluta. Tæknin er
orðin betri við gerð límtrésburðar-
virkis en áður. Það sem hamlar oft
í límtrénu er að með því næst ekki
sama spanvídd og hægt er að ná með
stáli. Þó stálið hafi enn yfirhöndina,
þegar spanvídd er mikil, er orð-
ið hægt að reisa býsna stór og mik-
il mannvirki úr límtré. Við reistum
til dæmis knatthús á Höfn í Horna-
firði úr límtré, sem er nokkuð ein-
stakt mannvirki á landsvísu að því er
ég best veit.“
Á síðasta ári framleiddi fyrirtæk-
ið þrjár reiðskemmur á Snæfells-
nesi, eins og greint hefur verið frá
í Skessuhorni. Þær eru í Ólafsvík,
Stykkishólmi og á Lýsuhóli, sem
allar eru komnar á lokastig fram-
kvæmda. „Þá má geta þess að á þar-
síðasta ári framleiddum við burð-
arvirkið í um 5.500 fermetra fjós á
Flatey á Mýrum við Hornafjörð.
Það er með límtrésburðarvirki og
„Ágætlega jákvæður gangur í byggingageiranum“
- segir Stefán Logi Haraldsson, framkvæmdastjóri Límtrés Vírnets
Stefán Logi Haraldsson, framkvæmdastjóri Límtrés Vírnets.
Menn að störfum í framleiðslusal Límtrés Vírnets í Borgarnesi.
Einbeiting í járnsmiðjunni.
Naglaframleiðslan var upphafið að rekstri fyrirtækisins í Borgarnesi árið 1956. Nú
liggur fyrir að framleiðslu hinna frægu Vírnets nagla verði hætt á þessu ári. „Það
er fullreynt að okkar áliti og framleiðsla á þessari vöru er engan veginn arðbær,“
segir Stefán Logi í viðtalinu. Hér má sjá nokkra af síðustu þaksaums nöglunum.
Jakob Hermannsson (t.v.) og Andri Daði Aðalsteinsson markaðsstjóri sýndu
blaðamanni hvernig ein af gömlu vélunum í naglaframleiðslunni virkar. Þessi vél
er frá fyrstu árum fyrirtækisins og er vel nothæf. Taka skal fram að hún var ekki
í gangi þegar myndin var tekin, heldur sneri Jakob henni með handafli og lýsti
hverju skrefi frá því vír fer inn í vélina og nagli kemur út.