Skessuhorn - 15.02.2017, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 201722
Barátta Félags eldri borgara á Akra-
nesi og nágrenni fyrir varanlegri
félagsaðstöðu er orðin harla löng.
Hinn 1. mars 2007 ritaði þáverandi
bæjarstjóri, Gísli S. Einarsson, eft-
irfarandi í bréfi til Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins, og var
þar að fylgja eftir umsókn bæjar-
ins í Framkvæmdasjóð aldraðra um
kaup á húsnæði til þessara nota:
„Þannig er mál með vexti að við
höfum á undanförnum árum leigt
húsnæði ca 400 m2 fyrir starfsemi
aldraðra, sem orðið er of lítið, þess
vegna þarf að grípa til aðgerða.“
Og bærinn fékk jákvætt svar.
Samþykkt var framlag 27,2 milljón-
ir eða 20% af metnu húsverðinu.
En Adam var ekki lengi í Paradís.
Bærinn ákvað að taka umrætt hús-
næði til annarra nota. Seint á árinu
2008 reyndi bærinn síðan að fá þetta
framlag flutt yfir á framkvæmdir
við Höfða en Framkvæmdasjóður-
inn hafnaði því. Í tengslum við það
sagði bæjarstjóri í bréfi til sjóðsins
að „unga fólkið væri himinlifandi
en ekki þeir eldri.“ Og skal engan
undra.
Ég dreg þennan atburð sérstak-
lega fram vegna þess að á þennan
veg hafa málin svo oft skipast allt
fram á þennan dag. Við hin eldri
höfum setið á hakanum og æ ofan
í æ þurft að sæta því, að lausnir og
vonir um rýmri og betri aðstöðu
væru fyrst hvattar áfram af bæjaryf-
irvöldum en síðan settar til hliðar.
Sú bæjarstjórn sem sat síðasta
kjörtímabil tók þá ákvörðun að
koma þessu máli í fastan farveg
áður en hennar störfum lyki, til
þess að tryggja að séð yrði fram á
farsælan enda þeirra eyðimerkur-
göngu sem staðið hafði allt of lengi.
Niðurstaða hennar var að kaupa
svonefndar Dalbrautarreit af ÞÞÞ,
ná þannig skipulagsvaldi á reitnum
og nýta þá einu byggingu sem þar
stóð sem félagsmiðstöð fyrir aldr-
aða og öryrkja. Að loknum kaup-
um á húsinu á vormánuðum 2014
var málinu fram haldið og skipað-
ur vinnuhópur, sem fara skyldi yfir
allar forsendur málsins miðað við
að húsið yrði innréttað bæði fyrir
starfsemi FEBAN og félagsþjón-
ustu Akraneskaupstaðar fyrir ör-
yrkja og aldraða. Gera skyldi til-
lögur að tilhögun ásamt kostnað-
aráætlun og áfangaskiptingu verks.
Nefndin skilaði niðurstöðum sín-
um í nóvember sl.
Með hliðsjón af ört vaxandi
fjölda aldraðra og öryrkja, en spár
gera ráð fyrir að öldruðum fjölgi
um nær 60% á næstu 15 árum, er
rýmisþörf áætluð 1135 m2. Lagt
er til að húsinu verði breytt þann-
ig að það verði allt tvílyft og fram-
kvæmdum dreift á fjögur ár til þess
að verkið verði ekki of íþyngjandi
fyrir bæjarsjóð. Kostnaður var met-
inn um 307 milljónir. (Lóð og bún-
aður ekki innifalin).
Málinu var vísað til tveggja
starfsnefnda bæjarins, sem virð-
ast ekki hafa haft neitt til málanna
að leggja. Hvor um sig skilaði eins
orðaðri/staðlaðri bókun þar sem
ekkert mat var lagt á skýrsluna eða
sett fram skoðun nefndanna á frek-
ari framgangi þess, enda kom í ljós
um sama leyti, að bæjarstjórn hugð-
ist taka enn einn snúninginn.
Nú tíu árum síðar hefur bæjar-
stjórn Akraness ákveðið að gefa 700
manna félagi aldraðra enn einu sinni
langt nef og setja allar hugmyndir
um framkvæmdir félagsaðstöðu fyr-
ir aldraða og öryrkja á ís næstu fjög-
ur árin nema til komi verktaki sem
er reiðubúinn að reisa byggingar á
ÞÞÞ lóðinni ásamt félagsaðstöðunni
og fá kostnaðinn aðeins greiddan
í formi gatnagerðargjalda. Þessa
ályktun má draga af afgreiðslu fjár-
hagsáætlunar ársins 2017 og fram-
kvæmdaáætlunar næstu fjögurra ára
sem samþykkt var einróma í bæjar-
stjórn hinn 13. desember síðastlið-
inn og þeim svörum sem þar voru
gefin um hugsanlega fjármögnun.
Á kynningarfundinum kynnti
bæjarstjórn drög að deiliskipulagi
svæðisins þar sem gert var ráð fyr-
ir að Dalbraut 6, húsið sem bæjar-
stjórn hefur hingað til talið sig hafa
keypt fyrir um 80 milljónir, skuli rif-
ið og þeim fjármunum hent. Í stað
þess sé áformað að reisa fjölbýlishús,
hugsanlega ætlað öldruðum og ör-
yrkjum og umræddri félagsmiðstöð
komið fyrir á neðstu hæð hússins
og í einnar hæðar útbyggingu. Eng-
ir fjármunir voru ætlaðir til verks-
ins, hvorki á fjárhagsáætlun þessa
árs né fjögurra ára fjárhagsáætlun.
Þegar spurt var um, hvernig bæjar-
stjórn hyggðist þá fjármagna verkið
voru svörin þau, að hugmyndin væri
að leita eftir samningi við verktaka
um byggingu hússins í skiptum fyrir
gatnagerðargjöld.
Mig langar að líta nánar á þá
hugmynd. Ef ég man rétt voru
hús og lóð keypt af ÞÞÞ fyrir um
220 milljónir. Ef litið er til þeirra
verðskrár sem finna má á vef kaup-
staðarins varðandi gatnagerðar-
gjöld virðist sem gjöld vegna þeirra
fjögurra fjölbýlishúsa, sem ætluð
eru á lóðinni, gætu hugsanlega náð
álíka upphæð. Ekki er hægt að gera
nákvæma áætlun fyrr en skipulagið
ásamt skilmálum hefur verið lagt
fram til kynningar. Og nú virðist
bæjarstjórn vera einhuga um það
að rífa niður einu verðmætin sem
á lóðinni voru í þeim tilgangi að
byggja enn dýrara húsnæði í stað
þess!
Þó gatnagerðargjöld alls skipu-
lagsreits ÞÞÞ lóðarinnar væru lögð
undir, væru þau því aðeins um
helmingur þeirra ca 450 milljóna
sem bygging nýs félagsheimilisins
kostar ásamt búnaði. Ég undrast þá
bjartsýni bæjaryfirvalda að fá megi
verktaka til þess að koma að slíkum
samningi um allt hverfið. Hverjum
er ætlað að brúa bilið milli gatna-
gerðargjalda og raunkostnaðar?
Er hugsanlegt að verktakanum sé
ætlað að gera ráð fyrir tvöföldum
gjöldum vegna reitsins eða þaðan
af hærra, sbr. Reykjavíkursvæðið?
Þessi misreikningur er þó ekki
það versta við hugmyndina, heldur
sú staðreynd að verktakinn metur
gatnagerðargjöldin að sjálfsögðu
sem hluta byggingarkostnaðar
hverfisins og deilir þeim kostnaði
niður á íbúðirnar við sölu þeirra. Er
bæjarstjórn virkilega svo ósvífin að
ætla kaupendum í þessu litla hverfi
að standa einir að byggingu félags-
miðstöðvar fyrir aldraða og öryrkja,
hverfi sem að öllum likindum verð-
ur byggt með aldraða kaupendur
og þarfir þeirra í huga?
Þeir tveir þættir sem að framan
greinir; gatnagerðargjöld sem ekki
standa undir framkvæmdinni og/eða
að örlítill hluti bæjarbúa, þar af tölu-
verður hluti aldraðir, sem skipta vilja
um húsnæði, standi undir kostnað-
inum, sýnir mér að þessi hugmynd
er vanhugsuð og fráleit. Bæjarstjón
á engan annan kost en að fjármagna
þessa framkvæmd eins og hverja
aðra opinbera framkvæmd, þ.e. með
framlögum á fjárhagsáætlun.
Síðan gengið var frá fjárhags-
áætlun ársins
2017 ásamt
fjögurra ára
áætlun þar
sem meginverkefni nýframkvæmda
voru íþróttamannvirki svo sem fim-
leikahöll, endurbætur á sundlaug-
arsvæði og íþróttahöll, heit laug á
Jaðarsbökkum ásamt þátttöku í að-
stöðuhúsi á golfvelli, hefur bæjar-
stjórn bætt í þennan pakka. Á fundi
bæjarráðs hinn 15 desember síð-
astliðinn vísaði ráðið tveimur stór-
framkvæmdum til Skipulags- og
umhverfisráðs „vegna undirbún-
ings fjárhagsáætlunar ársins 2018 og
þriggja ára áætlunar 2019 – 2021,“
eins og það er orðað. Verkin sem
hér um ræðir varða kostnaðarþátt-
töku í byggingu reiðhallar og bygg-
ing sundlaugar.
Þannig standa málin í dag að nú
hefur enn ein nefndin verið kos-
in sem að hluta til mun fjalla um
„hugsanlega“ félagsaðstöðu á Dal-
brautarreit eins og það er orðað í er-
indisbréfi. Mín skoðun er sú að tími
vangavelta í nefndum sé liðinn. Þol-
inmæði hins aldraða sem og öryrkja
er löngu liðin. Ljóst er að sú bæjar-
stjórn sem nú situr hyggst ekkert
gera á þessu kjörtímabili nema tefja
málið. Hefur reyndar aldrei hugsað
sér annað. Hið versta er að áætlanir
þeirra um ráðstöfum fjármuna í tíð
næstu bæjarstjórnar gera ekki held-
ur ráð fyrir lausn málsins. Þau þykj-
ast vita að aldraðir og öryrkjar eru
ekki frekur þrýstihópur og ganga að
sjálfsögðu að því vísu að við kjósum
þau aftur að ári, eða hvað? Er ekki
mál að linni? Leyfum Dalbraut 6 að
standa og gerum þær endurbætur
sem lagðar hafa verið til.
Jóhannes Ingibjartsson.
Öldruðum og öryrkjum til umhugsunar
Pennagrein
KB mótaröðin í hestaíþróttum hófst
í Faxaborg í Borgarnesi síðastliðinn
laugardag með keppni í fjórgangi.
Það eru hestamannafélögin Skuggi
og Faxi sem halda mótið.
Í þremur efstu sætum í hverjum
flokki urðu:
A úrslit barnaflokkur:
1. Aníta Björk Björgvinsdóttir,
Klöpp frá Skjólbrekku. 5,8.
2. Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir,
Hylling frá Minni-Borg. 5,20.
3. Andrea Ína Jökulsdóttir, Eldur frá
Kálfholti. 5,17.
A úrslit unglingaflokkur:
1. Ísólfur Ólafsson, Vörður frá Eski-
holti II. 5,93.
2. Berghildur Björk Reynisdóttir,
Óliver frá Ánabrekku. 5,90.
3. Aníta Eik Kjartansdóttir, Lóðar
frá Tóftum. 5,70.
A úrslit ungmennaflokkur:
1. Guðný Margrét Siguroddsdóttir,
Reykur frá Brennistöðum. 6,23.
2. Húni Hilmarsson, Fjöður frá
Hellulandi. 5,77.
3. Katrine Vittrup, Brella frá Lund-
um II. 5,57.
B úrslit opinn flokkur. 1. flokkur:
1. Þórdís Fjeldsted, Kjarkur frá
Borgarnesi. 6,13.
2. Hrefna Rós Lárusdóttir, Hnokki
frá Reykhólum. 6,03.
3. Ulrika Ramundt, Dáð frá Akra-
nesi 5,63.
A úrslit opinn flokkur. 2. flokkur:
1. Katrine Kornun, Tindur frá Borg. 5,53
2. Inga Vildís Bjarnadóttir, Óskar
frá Hafragili. 5,40.
3. Maaru Katarina Moilanen, Má-
nadís frá Efri Núpi. 5,07.
A úrslit Opinn flokkur. 1. flokkur:
1. Fredrica Fagerlund, Stígandi frá
Efra-Núpi. 6,73.
2. Gunnar Tryggvason, Grettir frá
Brimilsvöllum. 6,37.
3. Benedikt Þór Kristjánsson, Stofn
frá Akranesi. 6,33.
mm
Úrslit úr fjórgangi á KB mótaröðinni
Frá verðlaunaafhendingu fyrir fjórgang í ungmennaflokki. Ljósm. iss.