Skessuhorn - 05.04.2017, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 14. tbl. 20. árg. 5. apríl 2017 - kr. 750 í lausasölu
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6
-3
0
6
7
Greiðslumat á � mínútum
fyrir viðskiptavini allra banka
Nú geta allir gert fullgilt greiðslumat á arionbanki.is
og fengið nákvæma mynd af greiðslugetu sinni með
nokkrum smellum.
Kynntu þér þessa spennandi nýjung
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
Verkir í liðum?
ÍSLENSKA
KÍSILSTEINEFNIÐ
FRÁ GEOSILICA INNIHELDUR
HREINAN JARÐHITAKÍSIL
GeoSilica kísilvatnið
fæst í vefverslun geoSilica
og
www.skessuhorn.is
Minnum á fríar
smáauglýsingar á
vef Skessuhorns
Fyrirtækið Skaginn 3X hf. hlaut
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2017
sem afhent voru á Nýsköpun-
arþingi síðastliðinn fimmtudag.
Ingólfur Árnason, framkvæmda-
stjóri Skagans, veitti verðlaun-
unum viðtöku úr hendi Þórdísar
Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ferða-
mála-, iðnaðar- og nýsköpunar-
ráðherra. Nýsköpunarþingið var
haldið á Grand Hótel Reykjavík
undir yfirskriftinni Draumaland
nýsköpunar. Skaginn 3X hefur
undanfarin ár verið leiðandi fyr-
irtæki í nýsköpun í matvælaiðn-
aðinum og þá sérstaklega í sjávar-
útvegi. Fyrirtækið byggir á sterk-
um þekkingargrunni og virku
samstarfi við önnur fyrirtæki og
rannsóknastofnanir. Undanfarin
ár hefur fyrirtækið náð góðri fót-
festu á markaði sem hefur skap-
ast vegna nýrra lausna sem fyrir-
tækið hefur sett á markað. Lausnir
Skagans 3X byggja á mikilli sjálf-
virkni með áherslu á bætt gæði og
nýtingu afurða auk þess sem hag-
kvæmar og umhverfisvænar kæli-,
pökkunar- og flutningslausnir eru
hafðar að leiðarljósi. Hjá fyrirtæk-
inu starfa um 90 manns við hönn-
un, þróun og framleiðslu. Það var
mat dómnefndar að Skaginn 3X sé
fyrirtæki sem hefur sýnt árangur á
markaði með framúrskarandi ný-
sköpun að leiðarljósi og er líklegt
til að halda áfram á þeirri braut í
framtíðinni.
Nýsköpunarverðlaun Íslands
eru veitt af Rannís, Íslandsstofu,
Nýsköpunarmiðstöð Íslands og
Nýsköpunarsjóði atvinnulífs-
ins, til fyrirtækja sem þykja hafa
skarað fram úr í þróun nýrrar
vöru eða þjónustu, sem byggð er
á rannsóknar- og nýsköpunar-
starfi og náð hefur árangri á mark-
aði. Tilgangur verðlaunanna er
að vekja athygli á þeim mikilvægu
tengslum sem eru á milli rann-
sókna og þekkingaröflunar og
aukinnar verðmætasköpunar í at-
vinnulífinu. Verðlaunagripurinn
er stytta af frjósemisgoðinu Frey
eftir Hallstein Sigurðsson mynd-
höggvara.
„Við val á verðlaunahafa er lit-
ið til þess hvort um sé að ræða
nýtt sprotafyrirtæki, hvort það sé
byggt á nýskapandi tækni og hug-
mynd og sé kröfuhart á þekkingu.
Þá er lagt mat á virðisauka afurða
og hvort fyrirtækið hafi náð árangri
á markaði. Metið er hvort líkur séu
á að fyrirtækið haldi velli og hvort
stjórnun nýsköpunar sé til eftir-
breytni. Að lokum er metið hvort
fyrirtækið sé hvatning fyrir aðra að
feta sömu slóð,“ segir í rökstuðn-
ingi dómnefndar. mm
Skaginn 3X hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands 2017
F.v. Þórdís Kolbrún ráðherra ferðamála, nýsköpunar og iðnaðar, Ingólfur
Árnason, Una Lovísa Ingólfsdóttir heldur á Jóni Agnari Ottesen, Guðrún Agnes
Sveinsdóttir, Jónmundur Ingólfsson og Árni Ingólfsson.
Gult var litur gleðinnar á glæsilegri vorsýningu Fimleikafélags Akraness sem fram fór í Íþróttahúsinu við Vesturgötu síðasta laugardag. Iðkendur túlkuðu allan tilfinn-
ingaskalann, allt frá gleði til sorgar. Danshöfundur var Stefanía Sól Sveinbjörnsdóttir. Sjá fleiri myndir bls. 26. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.