Skessuhorn - 05.04.2017, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2017 17
Afmælishátíð
Laugardaginn 8. apríl munu Lionsklúbbarnir
í Borgarnesi blása til afmælis- og kynningar-
hátíðar í Hjálmakletti frá kl. 14:00-16:00.
Ástæða hátíðarinnar er 60 ára afmæli Lionsklúbbs
Borgarness og 30 ára afmæli Lionsklúbbsins Öglu
auk þess sem Lionshreyfingin á 100 ára afmæli.
Dagskrá :
Ávörp formanna klúbbana.
Ávarp frá Lionshreyfingunni.
Ávarp fulltrúa Borgarbyggðar.
Borgarbyggð afhentar gjafir frá Lionsklúbbunum.
Brákarhlíð afhent gjöf.
Skemmtiatriði.
Myndasýning.
Veitingar í boði klúbbanna
Hugmyndasamkeppni um nafn á nýrri
málningarvél Lionsklúbbs Borgarness og
verður hún til sýnis á staðnum.
Allir velkomnir
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Lionsklúbbarnir í Borgarnesi efna
til afmælishátíðar í Hjálmakletti í
Borgarnesi næstkomandi laugardag.
Þá verður haldið upp á 60 ára af-
mæli Lionsklúbbs Borgarness og 30
ára afmæli Lionsklúbbsins Öglu auk
þess sem aldarafmæli Lionshreyfing-
arinnar í heiminum verður minnst.
Lionsklúbbarnir hafa haldið út líf-
legu starfi í tíð sinni og látið margt
gott af sér leiða. Skessuhorn settist
niður með fulltrúum klúbbanna sem
litu yfir farinn veg.
Leggja samfélaginu lið
Lionsklúbbur Borgarness var stofn-
aður 2. apríl 1957 og var Sigurður
Gíslason húsasmíðameistari fyrsti
formaður klúbbsins. Klúbburinn
var með fyrstu Lionsklúbbunum
hér á landi, en sá fyrsti var stofnað-
ur í Reykjavík árið 1951. „Við erum
hluti af alþjóðlegri hreyfingu sem á
uppruna sinn í Bandaríkjunum árið
1917. Yfir milljón manns eru félagar
í hreyfingunni um allan heim og
erum við stolt að tilheyra svo stóru
neti fólks,“ segir Sveinn G. Hálfdán-
arson núverandi formaður Lions-
klúbbsins. „Markmið starfsins er
að leggja samfélaginu lið og hvetja
allt þjónustuviljugt fólk til að leggja
hönd á plóginn,“ bætir Skúli Ingv-
arsson við en hann og Sveinn koma
að undirbúningi afmælishátíðarinn-
ar næstkomandi laugardag.
Hlutur kvenna
orðinn stór
Lionsklúbburinn var karlaklúbbur
fram til 1987. „Þá tók Lionshreyf-
ingin mikilvægt skref þegar byrjað
var að stofna klúbba fyrir konur. Hér
á landi urðu til svokallaðir Lionessu-
klúbbar veturinn 1986-1987. Við
stofnuðum Lionessuklúbbinn Öglu í
janúar 1987 og voru stofnfélagar 28.
Þóra Björgvinsdóttir var fyrsti for-
maðurinn,“ segir Þóra Þorkelsdótt-
ir sem var einn stofnfélaga og gjald-
keri í fyrstu stjórn Öglu. „Mark-
mið klúbbsins voru þau sömu og hjá
öðrum Lionsklúbbum. Fyrstu árin
höfðu Lionessurnar ekki sömu stöðu
og karlaklúbbarnir innan hreyf-
ingarinnar sem réðu ferðinni inn-
an hennar. Þetta breyttist árið 1994
þegar kvennaklúbbarnir fengu sömu
stöðu og aðrir klúbbar. Þá breyttum
við heiti klúbbsins í Lionsklúbbinn
Öglu,“ bætir Þóra við.
Hlutur kvenna er orðinn stór inn-
an Lionshreyfingarinnar í dag. Geta
má þess að Guðrún Björt Yngva-
dóttir gegnir nú embætti 2. varafor-
seta í Lions International og mun
hún verða fyrsta konan til að verða
alþjóðaforseti hreyfingarinnar árið
2019.
Fjölbreytt fjáröflun
Lionsklúbbarnir hafa byggt starf
sitt á fjáröflunarverkefnum sem hafa
verið af ýmsum toga. „Það væri hægt
að nefna margt til sögunnar,“ segir
Jóhanna Möller núverandi formaður
Öglu. „Eitt þekktasta verkefni okk-
ar er útgáfa Öglublaðsins sem hefur
komið út á aðventunni í 26 ár. Síð-
an höfum við selt jóladagatöl, rauðu
fjöðrina, haldið dansleiki og tekið að
okkur dómnefndarstörf fyrir sveitar-
félagið vegna umhverfisviðurkenn-
inga og margt fleira,“ bætir hún við.
„Við höfum líka farið óvenjulegar
leiðir. Árið 2007 fluttum við Píku-
sögur í Landnámssetrinu í leikstjórn
Ásu Hlínar Svavarsdóttur við miklar
undirtektir. Við fórum svo um Vest-
urland og fluttum verkið á nokkr-
um stöðum,“ segir Elfa Hauksdóttur
sem er í stjórn Öglu en hún tók þátt
í verkinu ásamt Þóru og Jóhönnu og
Maríu Erlu Geirsdóttur og Rann-
veigu Finnsdóttur.
Karlarnir hafa ekki verið síðri í
sínum verkefnum. „Nefna má upp-
setningu Lionsklúbbsins á verkinu
Sláturhúsið hraðar hendur árið 1968
eftir Hilmi Jóhannesson mjólkur-
fræðing. Hilmir var félagi í klúbbn-
um en hann leikstýrði verkinu og
lék í því ásamt hópi Lionsmanna,“
rifjar Sveinn upp en verkið naut
mikilla vinsælda. „Síðan er hægt að
nefna sölu á ljósaperum, leikfanga-
happadrætti á aðventunni og í mörg
ár sáu Lionsmenn um að safna í
brennu fyrir Borgnesinga. Eitt sinn
fóru félagar í róður út frá Snæfells-
nesi,“ bætir Sveinn við en nú er aðal-
fjáröflun Lionsmanna að mála bíla-
stæði fyrir fyrirtæki og stofnanir. „Í
tilefni afmælisins höfum við keypt
nýtt málningartæki sem við munum
nota vel í framtíðinni,“ segir Skúli
og verður græjan til sýnis á laugar-
daginn.
Velferðar- og
mannúðarmál
Verkefnin sem Lionsklúbbarnir hafa
stutt í áranna rás hafa einkum ver-
ið á sviði mannúðar- og velferð-
armála. „Þetta hefur verið rauður
þráður í starfinu okkar og hefur ver-
ið kærkomið fyrir klúbbana að geta
styrkt stofnanir og félagasamtök eins
og Brákarhlíð, Heilsugæslustöðina
(HVE) og Björgunarsveitina Brák
svo eitthvað sé nefnt,“ segir Skúli
og bendir á að klúbbarnir hafa einn-
ig tekið þátt í átaksverkefnum sem
Lionshreyfingin hefur sett á oddinn.
„Annar þráður í starfinu hefur ver-
ið að gleðja nærsamfélagið. „Í nokk-
ur ár stóðu Öglukonur til dæmis fyr-
ir grillveislu í Skallagrímsgarði fyrir
gesti og gangandi sem margir sóttu.
Við sáum þá um að skipuleggja og
fengum karlana til að vera á grill-
inu,“ segir Jónína Ingólfsdóttir sem
hefur verið félagi frá upphafi.
„Annar þráður hjá báðum klúbb-
um er að hafa gaman að hlutunum og
efla innra starf með ýmsum viðburð-
um. Báðir klúbbar funda minnst einu
sinni í mánuði og þá hafa klúbbarnir
staðið fyrir skemmtiferðum fyrir fé-
laga sem hafa treyst böndin. Margir
hafa því eignast góða vini í gegnum
Lions,“ segir Jóhanna.
Hátíð í Hjálmakletti
Ýmislegt verður um að vera á laug-
ardaginn í Hjálmakletti þegar blásið
verður til afmælisveislu. „Við ætlum
að bjóða gestum upp á kaffi og kök-
ur og kynna um leið starf klúbbanna
og Lionshreyfingarinnar sem fagnar
aldarafmæli í ár. Við munum afhenda
Borgarbyggð gjöf í tilefni afmælisins
sem vonandi mun nýtast vel. Sýndar
verða ljósmyndir úr starfinu í gegn-
um árin og þá mun Gísli Einarsson
sjónvarpsmaður flytja gamanmál.
Um kvöldið mun Lionsklúbburinn
standa fyrir hátíðarkvöldverði á Hót-
el Hamri fyrir félaga og maka. Þar
verður Guðmundur Ingimundarson,
fyrrverandi stöðvarstjóri á Hyrnunni,
heiðraður en hann er einn af stofn-
félögum klúbbsins. Guðmundur er á
tíræðisaldri og sækir fundi af krafti,“
segir Skúli. „Við vonum að sjálf-
sögðu til að sjá sem flesta í Hjálm-
akletti á laugardaginn.“
Lionsfólkið vill að lokum koma á
framfæri þakklæti til íbúa í Borgar-
byggð og nágrenni sem hafa stutt
myndarlega við starf klúbbanna á
undanförnum áratugum. „Okkur
hefur verið mjög vel tekið af öllum
í samfélaginu, bæði í Borgarnesi og
í sveitunum í kring. Stuðningurinn
er forsenda þess að við höfum geta
styrkt þau málefni sem við höfum
lagt áherslu á í gegnum árin. Fyr-
ir þennan mikla stuðning viljum við
þakka.“ hlh
Afmælisár hjá Lionsfólki í Borgarnesi
Fulltrúar Lionsklúbbanna sem rætt var við. Frá vinstri: Elfa Hauksdóttir, Jóhanna
Möller, Þóra Þorkelsdóttir, Skúli Ingvarsson, Jónína Ingólfsdóttir og Sveinn G. Hálf-
dánarson.
Lionsklúbburinn Agla hefur staðið fyrir fjölmörgum verkefnum í sögu sinni. Hér
standa Öglukonur með afrakstur hreinsunarátaks í Borgarnesi haustið 2013.
Það hefur verið líf og fjör hjá Öglukonu. Hér er hópmynd frá skemmtiferð á tíunda
áratugnum.
Félagar í Lionsklúbbi Borgarness á tröppum Húsmæðraskólans á Varmalandi vorið
1960.
Síðustu ár hafa Lionsmenn málað bílastæði í fjáröflunarskyni. Hér er hópur Lions-
manna við Hótel Hamar í fyrra.