Skessuhorn - 19.04.2017, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2017 9
Tónlistarskóli Borgarfjarðar fagnar 50 ára afmæli
í haust og ætlar af því tilefni að setja upp
söngleikinn
Leikgerð Illuga Jökulssonar og tónlist Óskars Einarssonar
Flytjendur verða bæði börn og fullorðnir
Óskum eftir áhugasömum þátttakendum
Kynning á söngleiknum verður 27. apríl kl. 18:00
í Tónlistarskóla Borgarfjarðar, Borgarbraut 23, Borgarnesi
Áhugasamir sem ekki komast á kynninguna hafi
samband við skólastjóra í síma 433 7190 eða
á netfangið tonlistarskoli@borgarbyggd.is
Hlökkum til að sjá ykkur – verið velkomin!
Háskólinn á Hólum
Hagnýtt háskólanám
• Ferðamálafræði
• Stjórnun ferðaþjónustu og móttaka gesta
• Viðburðastjórnun
• Fiskeldisfræði
• Reiðmennska og reiðkennsla
Tækifærin eru í okkar greinum
Hólaskóli -
Háskólinn á Hólum
Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur
Sími 455 6300 holaskoli@holar.is www.holar.is
Háskólasamfélag með langa sögu
Hólar í Hjaltadal er í senn mikill
sögustaður og útivistarparadís.
Háskólinn á Hólum er lítill en
öflugur háskóli sem sinnir kennslu
og rannsóknum á sviði ört
vaxandi atvinnugreina.
w
w
w
.h
ol
ar
.is
Jörfagleði, menningar- og vorhátíð
Dalamanna, hefst í dag, miðviku-
daginn 19. apríl og mun standa yfir
þar til á sunnudag. Jörfagleði hef-
ur verið haldin annað hvert ár síð-
an 1977 og er hátíðin nú því sú 21.
í röðinni. Dagskráin er með fjöl-
breyttu sniði og bæði heimamenn
og aðkomnir sem standa fyrir við-
burðum. Starfsfólk- og nemend-
ur leikskóla Auðarskóla í Búðardal
taka forskot á sæluna og bjóða til
opins húss í dag frá 8 til 17. Í kvöld
kl. 21:00 verður Jörfagleði síðan sett
í Dalabúð og Nikkolína og Þorra-
kórinn munu skemmta gestum. Á
morgun, sumardaginn fyrsta, verður
opið hús á Sauðafelli frá kl. 13 til 16
þar sem Finnbogi og Berglind bjóða
heim. Þau luku nýverið við að gera
upp gamla bæinn á Sauðafelli, sem
reistur var árið 1897, og hafa opnað
þar gistiheimili, eins og greint hefur
verið frá í Skessuhorni. Spurninga-
keppni Einars Jóns verður síðan í
Dalabúð kl. 19:30. Einsöngleikur-
inn „Hvað er bakvið ystu sjónar-
rönd?“ verður fluttur í Dalabúð kl.
20 á föstudag. Söngleikurinn fjallar
um tilfinningaferðalag forfeðranna,
landnámsmannanna. Voru þeir hug-
rakkir og stórhuga eða ringlaðir
og fífldjarfir? Fylgst er með einum
þeirra, Ísgerði, undirbúa ferðalag-
ið yfir hafið, takast á við þær hættur
sem þar bíða og berjast fyrir því sem
hún telur rétt hverju sinni. Fléttað
er saman sögu Ísgerðar og gamalli
íslenskri tónlist. Höfundur, sögu-
maður og söngkona er Svanlaug Jó-
hannsdóttir.
Laugardagurinn hefst síðan á
tveimur íþróttamótum. Annars veg-
ar innanhússknattspyrnumót UDN
á Laugum í Sælingsdal og hins veg-
ar íþróttamóti Hestamannafélags-
ins Glaðs á reiðvellinum í Búðardal.
Bæði hefjast mótin kl. 10. Eftir há-
degi, frá kl. 13-16 verður opið hús á
Jörva í Haukadal þar sem Bjarnheið-
ur og Reynir bjóða heim. Samhliða
því verður á Jörva sýning á verkum
Guðrúnar Tryggvadóttur. Lifandi
sögusýning hefst á Eiríksstöðum
kl. 13 og þar gefst gestum kostur á
að sjá hvernig Siggi á Vatni tekur á
móti ferðamönnum. Á sama tíma í
Tjarnarlundi í Saurbæ er blásið til
Davíðsmóts í bridds. Breiðfirðinga-
kórinn stígur á stokk í Dalabúð kl.
16 og skemmtir gestum með söng
en kl. 20 verður sleginn annar tónn
í Dalabúð með DJ balli fyrir ung-
linga. DJ Dagur og Helgi Fannar
þeyta skífum. Kvöldinu lýkur síðan
með stórdansleik hjómsveitarinnar
Meginstreymis í Dalabúð.
Glaðar raddir, kór eldri borgara,
syngja nokkur lög við Silfurtún kl. 14
á lokadegi Jörfagleði næstkomandi
sunnudag og í Dalabúð um kvöld-
ið munu pörupiltarnir Dóri Maack,
Nonni Bö og Hermann Gunnars-
son takast á við stórar spurningar
um ástir og örlög, tilgang lífsins,
heimspeki og daður í.
Á meðan Jörfagleði stendur mun
sýningin „Hver er?“ ferðast á við-
burði hátíðarinnar. Ásdís Kr. Mel-
sted hefur safnað saman myndum af
Dalamönnum frá því þeir voru börn
og á fólk að giska á hver er á mynd-
unum.
Athugið að ofangreind upptaln-
ing á viðburðum Jörfagleði er ekki
tæmandi. Áhugasömum er bent á að
finna ítarlega dagskrá Jörfagleði og
frekari upplýsingar, t.d. um aðgangs-
eyri og aldurstakmark einstakra við-
burða, á viðburðinum „Jörfagleði í
Dölum“ á Facebook. kgk
Jörfagleði hefst í dag