Skessuhorn - 19.04.2017, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2017 17
Hvalfjarðarsveit óskar íbúum Hvalfjarðarsveitar
og Vestlendingum gleðilegs sumars.
Skorradalshreppur óskar íbúum Skorradals
og Vestlendingum öllum gleðilegs sumars
Eyja- og Miklaholtshreppur óskar
sveitungum sínumog öðrum
Vestlendingum gleðilegs sumars.
Reykhólahreppur óskar íbúum
og Vestlendingum öllum
gleðilegs sumars
Hjónin Ásdís Kr. Melsted og Jó-
hannes Haukur Hauksson keyptu
árið 2015 húsið að Brekkuhvammi
1 í Búðardal. Þau fluttu inn á efri
hæðina á síðasta ári og opnuðu
gistiheimilið Kastalann á neðri
hæðinni í maí síðastliðnum. Að
sögn Ásdísar voru viðtökurnar afar
góðar og af fenginni reynslu und-
angengins árs hafa þau ákveðið að
fjölga gistirýmum. „Við erum búin
að kaupa þrjú 15 fermetra smáhýsi
sem komið verður fyrir hér í garð-
inum. Þar verða gistirými fyrir sex
til níu manns til viðbótar við það
sem fyrir er,“ segir Ásdís í samtali
við Skessuhorn, en fyrir eru í Kast-
alanum fjögur herbergi og gisti-
rými fyrir allt að níu manns. Smá-
hýsin eru úr timbri og eru smíðuð
af fyrirtækinu NormX í Reykjavík.
Ásdís og Jóhannes fá þau afhent
algjörlega fulleinangruð þannig
að hægt verður að nota þau allan
ársins hring. Hvert hús er því að
sögn Ásdísar eins og eitt hótelher-
bergi, með sér baðherbergi og öllu
tilheyrandi. Aðspurð um ástæður
þess að þau ákváðu að stækka við
gistiheimilið segir Ásdís að það sé
einfaldlega þörf á gistingu í Búð-
ardal og Dölum. „Eftirspurnin er
mikil eftir gistingu. Sjálf byrjuð-
um við í maí í fyrra og hjá okkur
var fullt hús í bæði júlí og ágúst.
Að meðaltali þurftum við að vísa
frá fjórum til sex manns á hverj-
um degi síðasta sumar, það gefur
ákveðna vísbendingu um að okk-
ur veiti ekkert af fleiri gistirým-
um. Þannig að það er búið að vera
meira en nóg að gera og sú er held
ég raunin annars staðar í Búðar-
dal og Dölum líka. Hér hefur orð-
ið mikil aukning í fjölda ferða-
manna,“ segir hún.
Klára fyrir júní
Ásdís kveðst ekki vera í nokkr-
um vafa um að fjárfestingin muni
borga sig. „Hvert hús kostar tæp-
lega fjórar milljónir og við gerum
ráð fyrir því að fjárfestingin muni
borga sig upp á þremur til fjórum
árum. Miðað við hvað það er mik-
ið að gera núna og hvað það var
mikið að gera í vetur þá held ég
að það eigi eftir að standast,“ seg-
ir hún og bætir því við að annríki
vetrarins hafi komið þeim hjónum
nokkuð á óvart. „Það var miklu
meira að gera í vetur en við áttum
von á. Það stóð svo sem alltaf til að
hafa opið í allan vetur en við átt-
um frekar von á því að það yrði ró-
legt að gera yfir mesta skammdeg-
ið. Ég hélt að nóvember og fram
í febrúar yrði dauður tími en svo
reyndist alls ekki vera. Í kringum
jólin var til dæmis fullt hérna. Síð-
asta árið hefur ekki verið ein ein-
asta vika sem enginn hefur kom-
ið. Það var fullt síðasta sumar, nóg
að gera í haust og alltaf eitthvað
að gera í vetur, enda aukningin í
fjölda ferðamanna verið gífurleg,“
segir Ásdís ánægð.
Aðspurð segir hún þau vonast
til að geta tekið smáhýsin í notk-
un í sumar. „Við stefnum á að opna
smáhýsin og byrja að selja gistingu
í þeim 1. júní. Nú er verið að smíða
þau í bænum en þau eiga að vera
tilbúin núna eftir páska. Búið er
að jarðvegsskipta og eftir helgina
verður farið í að setja niður stöpla.
Þegar það er búið þarf lítið ann-
að að gera en að festa húsin á sinn
stað og tengja lagnirnar. Þá verð-
ur hægt að opna,“ segir Ásdís Kr.
Melsted að lokum.
kgk
Fjölga gistirýmum við Kastalann og bæta við þremur smáhýsum
Ásdís Kr. Melsted og Jóhannes Haukur Hauksson opnuðu á síðasta ári gistiheimilið Kastalann í Búðardal. Ljósm. úr safni.
Smáhýsin eru þrjú talsins og 15 fermetrar að stærð hvert.