Skessuhorn


Skessuhorn - 19.04.2017, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 19.04.2017, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2017 15 má kortleggja hvaða meðferð hent- ar hverjum og einum,“ segir Sigfús. „En myndgreiningartæknin er ákaf- lega flókin og ég skil hana ekki fylli- lega enn sem komið er. Að þessum rannsóknum vinnur stór hópur og þverfaglegur sem vinnur að þessum rannsóknum; talmeinafræðingar, líf- eindafræðingar, taugasérfræðingar, læknar og málfræðingar og fleiri.“ Einangraður hópur Aðspurður um reynslu sína af því að starfa með málstolssjúklingum á Reykjalundi segir hann að þessi þjóðfélagshópur sé mjög einangr- aður. „Þeir fáu sem koma á Reykja- lund á hverju ári hafa oftast verið mjög einangraðir og ekki fúnker- andi í samfélaginu. Þessi hópur fer ekki oft til læknis því hann upplif- ir sig svo lokaðan og bjargarlausan. Fólkið á í erfiðleikum með að tjá sig og ekki skrítið að það eigi erfitt með að leita sér aðstoðar. Ættingjar og vinir skilja ekki sjúklingana, þekkja ekki úrræðin og eiga því erfitt með að koma ástvinum sínum til að- stoðar. Það er helst að fólk bregði á það ráð að fara með ættingja sína til heimilislæknis sem síðan vísar þeim á Reykjalund,“ segir hann og bæt- ir því við að talmeinafræðingar vilji gjarnan vekja umtal um stöðu þessa hóps. Eftir að sjúklingur kemur inn fyr- ir dyr Reykjalundar tekur við stíft meðferðarprógramm. „Málstols- sjúklingar þurfa mikla málörvun, sérstaklega fyrst um sinn og því eru þetta oft tveir til þrír viðtalstímar á dag. Þá bæði einstaklingstímar með talmeinafræðingi og svo hópmeð- ferð, en rannsóknir hafa leitt það í ljós að hópameðferð skilar góðum árangri við meðferð á málstoli. Eftir hina eiginlegu meðferð reynum við síðan að beina fólki í hvers konar félagsstarf og hvetjum það til að taka virkan þátt. Helst að mæta oft í viku á stað þar sem það getur hitt og tal- að við fólk því besta ráðið er að tala við aðra og eiga í sem mestum sam- skiptum við annað fólk,“ segir Sig- fús. „Hins vegar er ekkert skipulagt úrræði fyrir málstolssjúklinga eftir að þessari meðferð á Reykjalundi lýkur. Það væri mjög gott ef þessum hópi stæði eitthvað slíkt til boða en því miður er það ekki,“ segir hann. „Í miðju biblíubeltinu“ Háskólinn í Suður-Karolínu er sem fyrr segir í Columbia, sem er höfuð- borg fylkisins og sú fjölmennasta. Hún telst þó vart nema bær á am- erískan mælikvarða því íbúar hennar eru rétt um 130 þúsund talsins, eða álíka margir og í Reykjavík. „Við flytjum í mjög hefðbundið amer- ískt úthverfi eins og allir þekkja úr sjónvarpinu. Stór einbýlishús með garði, rólegt hverfi og mjög vin- gjarnlegir nágrannar. Ég hugsaði strax til Desperate Housewives, göt- urnar líta nákvæmlega þannig út,“ segir Sigfús en á þó ekki von á að íbúarnir geymi jafn mörg leyndar- mál og áhorfendur þáttanna þekkja. Þá segir hann kirkjuna afar áber- andi í öllu starfi í Columbia. „Bær- inn er náttúrulega í miðju biblíu- beltinu svokallaða. Það eru kirkjur á hverju horni og kirkjustarf leik- ur stóran þátt í lífi fólks þarna úti og kirkjan er mun fyrirferðameiri en við eigum að venjast. Til dæmis komum við til með að þurfa að finna pláss fyrir yngsta barnið á leikskóla. Þeir eru allir reknir í tengslum við kirkjur,“ segir Sigfús en hefur þó engar áhyggjur af því að upplifa sig útundan. „Hvítur millistéttarkarl með fjölskyldu fellur vel inn í þenn- an hóp, þó fjölskyldan verði kannski ekki jafn kirkjurækin og nágrann- arnir,“ segir hann og brosir. „En það eru skemmtilegir kontrastar í þess- um bæ. Um 30% allra doktorsnema við skólann eru erlendir og miðbær- inn er sömuleiðis mjög fjölbreyttur, fólk af alls konar ólíkum uppruna. Síðan í úthverfunum er að finna þetta sannkristna bandaríska sam- félag,“ segir Sigfús. „En við tökum þessu bara með opnum hug, ætlum að prófa og sjá hvernig verður. Það er ekki hægt að flytja til annars lands á öðrum forsendum.“ Þakklátur fjölskyldunni Fjölskyldan fer út seinni part júlí- mánaðar og ætlar að gefa sér mánuð til að koma sér fyrir áður en alvara lífsins tekur við. „Við byrjum á að finna okkur húsnæði, það er dálít- ið snúið að gera það frá öðru landi. En í sumar munum við bara pakka ofan í ferðatöskur og fljúga út. Síð- an gefum við okkur smá tíma í að slaka á og ná áttum. Ég byrja síðan í náminu strax í ágúst og það verða langir dagar hjá mér. Um svipað leyti hefst skólinn hjá börnunum. Það mun því lenda mest á Huldu að koma börnunum í sína rútínu, en hún ætlar fyrst um sinn að bregða sér í hlutverk húsmóðurinnar. Við töldum ráðlegt að hún myndi bíða með að finna sér vinnu þar til líf- ið hjá börnunum er farið að ganga svona sinn vanagang,“ segir Sigfús. „En þegar sá tími kemur þá ætlar hún að finna vinnu. Hún er mennt- aður sjúkraliði og getur fengið starf við sitt fag hvar sem er í heimin- um. Þarna í Columbia eru nokkur sjúkrahús og ég á ekki von á að hún verði í neinum vandræðum með að fá vinnu með sína menntun og starfsreynslu,“ segir hann. Þangað til mun fjölskyldan því vera tekju- lág, því styrkurinn dugar skammt til framfærslu þegar fimm eru í heim- ili. „Styrkurinn er þeim skilyrðum háður að ég vinni 20 tíma á viku. Þannig að það verður nóg að gera. En sú vinna verður reyndar líka við rannsóknir þannig að hún mun nýt- ast í náminu. En styrkurinn dekk- ar skólagjöldin og svo er einhver smá uppihaldsstyrkur,“ segir hann. „En á móti þessum styrk gera þeir sömuleiðis miklar kröfur um fram- vindu og framleiðni í námi. Ég þarf til dæmis að fá birtar ákveðið marg- ar greinar í rannsóknartímaritum á meðan náminu stendur til að hrein- lega geta útskrifast, auk þess sem ég þarf að taka að mér kennslu í há- skólanum,“ segir hann. „Kröfurn- ar eru gríðarlega miklar og mikil samkeppni um að komast þarna að. Ég er mjög ánægður að vera á leið í þetta nám og óendanlega þakklát- ur fyrir að fjölskyldan sé með mér í þessu. Ef þau væru ekki til í þetta þá myndi þetta ekki gerast. Að fjöl- skyldan sé tilbúin að flytja með mér til annarrar heimsálfu til að ég geti gert það sem mig langar að gera án þess að vera í burtu frá þeim er ómetanlegt og ég er þeim óendan- lega þakklátur fyrir,“ segir Sigfús Helgi Kristinsson að lokum. kgk Akraneskaupstaður óskar íbúu� Akranes� o� Vestlendingu� öllu� gleðileg� sumar� Borgarbyggð óskar íbúum sveitarfélagsins og Vestlendingum öllum gleðilegs sumars. James E. Clyburn rannsóknarmiðstöðin er ein bygginga Háskólans í Suður- Karólínu, en þar mun Sigfús starfa við rannsóknir í doktorsnámi sínu. Fjölskyldan á góðri stund.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.