Skessuhorn - 19.04.2017, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 201714
Sigfús Helgi Kristinsson er talmeina-
fræðingur á Reykjalundi. Hann ólst
upp á Hlíðarbæ í Hvalfirði en býr
nú á Akranesi ásamt eiginkonu sinni
Huldu Ólöfu Einarsdóttur sjúkra-
liða og börnunum þremur; Pétri Jó-
hannesi Óskarssyni, Rebekku Klöru
Óskarsdóttur og Sigþóri Draupni
Sigfússyni. En brátt verður breyting
á lífi Sigfúsar, Huldu og barnanna
því í júlímánuði flyst fjölskyldan
búferlum til Bandaríkjanna. Sigfús
fékk nýverið boð um doktorsnám
í málstoðsfræðum við háskólann í
Suður-Karólínu, University of So-
uth Carolina. Boðið þáði hann og í
samráði við fjölskylduna var ákveðið
að flytja rúmlega fimm þúsund kíló-
metra til Columbia í Suður-Karól-
ínufylki Bandaríkjanna. Skessuhorn
hitti Sigfús að máli á dögunum og
ræddi við hann um það sem fram-
undan er hjá honum og fjölskyld-
unni. Hann er fyrst og síðast þakk-
látur og ánægður að hafa fengið inn
við skólann og kveðst alltaf hafa
stefnt að því að feta þessa braut.
„Að fara í doktorsnám og fá tæki-
færi til að vinna við rannsóknir fyrst
og fremst, er stefna sem ég hef allt-
af haft. Að fá að taka þátt í að auka
þekkingu er það sem mér þykir hvað
mest heillandi af öllu,“ segir Sigfús í
samtali við Skessuhorn. „Hins vegar
ætlaði ég mér aldrei að fara í dokt-
orsnám fyrr en eftir kannski tíu ár
eða svo. Eftir að ég útskrifaðist úr
meistaranámi síðasta vor þá byrjaði
ég að vinna á Reykjalundi sem tal-
meinafræðingur. Ég kunni vel við
starfið á Reykjalundi, þótti gott að
vera kominn í vinnurútínu og naut
þess ágætlega að vera ekki í skóla,“
segir Sigfús. „Líklega þess vegna
gleymdi ég því fljótt hvað það er
mikil vinna að vera í háskóla, bú-
inn að sækja um doktorsnám strax
næsta haust,“ segir hann og brosir.
„En þar fyrir utan hefur okkur allt-
af langað að prófa að búa erlendis
og þetta veitir okkur einstakt tæki-
færi til þess. Ég held að það sé öllum
hollt að kynnast öðru landi og ann-
arri þjóð,“ segir Sigfús.
Hvað er málstol?
Áður en lengra er haldið er rétt að
staldra við og útskýra í sem stystu
máli hvað málstol er. Nafnið er í
raun nokkuð gegnsætt, því málstol
kallast það þegar heilaskaði veldur
því að fólk tapar hæfninni til að tjá
sig og/eða skilja mælt mál. „Birt-
ingarmyndum málstols má í sem
einföldustu máli skipta í tvenns
konar málstol; skilningsstol og
tjáningarstol. Einstaklingur með
tjáningarstol getur haft fullan eða
einhvern skilning á mæltu eða rit-
uðu máli en á í erfiðleikum með
að tjá sig. Skerðingin getur falist
í orðminniserfiðleikum eða hvers
kyns vandkvæðmum með að fram-
reiða merkingarbær orð og setn-
ingar. Einstaklingur með skiln-
ingsstol skilur illa eða ekki mælt
eða ritað mál, en getur oft tjáð sig
með reiprennandi hætti, þó tján-
ingin geti verið snauð að innihaldi.
Algengast er að málstol birtist sem
einhvers konar blanda af skertri
tjáningu og skilningi,“ segir Sig-
fús. „En birtingarmynd málstols
endurspeglar ekki alltaf heilaskað-
ann sem liggur þar að baki,“ seg-
ir hann.
Alltaf þótt gaman í skóla
Sigfús útskrifaðist með BA próf í ís-
lensku frá Háskóla Íslands og síðan
lá leiðin í meistaranám í talmeina-
fræði, sem hann lauk árið 2016. Síð-
an þá hefur hann starfað sem tal-
meinafræðingur á Reykjalundi, sem
fyrr segir og mun gera þar til hann
fer utan. En hvað varð til þess að
hann yfirhöfuð ákvað að leggja fag-
ið fyrir sig? „Í íslenskunáminu tók
ég í kúrsa um máltöku barna og þá
kviknaði áhugi á þessum málstöðv-
um í heilunum og hvernig mál kem-
ur fram í tali. Sigríður Sigurjóns-
dóttir prófessor kenndi þessa kúrsa
og á þeim tíma presenteraði hún í
gríð og erg nýtt meistaranám í tal-
meinafræði við nemendur sína.
Ég ákvað að prófa en vissi svo sem
ekki hvort ég myndi fara út í þetta,
en mér var engu að síður mikilvægt
að leggja fyrir mig meistaranám
við fag sem ég gæti hugsað mér að
starfa við,“ segir Sigfús. „Sömuleið-
is fannst mér rökrétt að samrýma
áhuga minn á heilanum og málinu.
Það var það sem heillaði mig við tal-
meinafræðina. Málstolsfræðin voru
síðan annað rökrétt framhald af
þeim áhuga,“ segir hann. „En síð-
an hefur mér bara alltaf þótt gaman
í skóla, hvernig sem stendur á því og
skemmtilegra eftir því sem ég kemst
lengra í námi. Ég kann best við mig
þegar ég get sökkt mér djúpt í eitt-
hvað mjög sértækt.“
Einn besti skóli í heimi
Eftir að hafa spurst fyrir um dokt-
orsnámið við Háskólann í Suð-
ur-Karolínu, sent tilheyrandi gögn
og staðist þau próf sem honum var
gert að standast var Sigfús boðaður
til Bandaríkjanna í viðtöl og heim-
sókn. „Mér og Huldu var flogið út í
janúar. Þetta var tveggja daga heim-
sókn og ég fór í viðtöl hjá 18 manns,
þannig að maður var fljótur að hætta
að reyna að leggja öll nöfn á minn-
ið,“ segir Sigfús og brosir. „Þar að
auki þurfti ég að flytja klukkustund-
ar fyrirlestur um meistararitgerðina
mína.“ Nokkru eftir heimsóknina
fékk Sigfús síðan tölvupóst. „Þar var
mér sem sagt tilkynnt að mér hefði
verið boðin þessi doktorsnema-
staða og námsstyrkur í að minnsta
kosti þrjú ár,“ segir hann og kveðst
hafa verið mjög ánægður. „Þetta er
býsna góður skóli og í raun einn sá
besti í heiminum í þessu fagi, það
er að segja þessum málstolshluta
talmeinafræðinnar, málstolsfræð-
unum. Skólinn var efstur á mínum
óskalista þegar ég byrjaði að velta
fyrir mér doktorsnámi. Hins veg-
ar er ekki tekið kerfisbundið við
doktorsnemum þarna heldur sérval-
ið og kríterían til að komast þarna
inn mjög ströng. Það var því mikill
heiður að fá boð um námsvist og ég
var hæstánægður þegar tölvupóstur-
inn barst,“ segir Sigfús.
Stærsta rannsóknarstöð
málstolsfræða
Við háskólann er ein stærsta rann-
sóknarstöð á sviði málstolsfræða
sem til er í heiminum, svokölluð C-
STAR rannsóknarstofa, eða Cen-
ter for the Study of Aphasia Reco-
very eins og hún heitir á móðurmál-
inu. „Það vill reyndar svo skemmti-
lega til að það er Íslendingur sem
stýrir rannsóknum við skólann, Júl-
íus Friðriksson. En ég hafði reynd-
ar hvorki hitt hann né rætt við hann
áður en ég sótti um, en það er samt
skemmtileg tilviljun. En um þessar
mundir er unnið að fjórum stórum
málstolsrannsóknum við skólann.
Þar er unnið á stórum styrk með
öðrum háskólum, m.a. Kaliforn-
íuháskóla og Johns Hopkins há-
skólasjúkrahúsinu í Baltimore. Ég
myndi fara inn í einhvern hluta
einnar af þessum fjórum rannsókn-
um sem doktorsnemi og byggja
mína doktorsritgerð á þeirri vinnu,“
segir Sigfús. „En meginmarkmið
þessara rannsókna sem eru í gangi
við háskólann í Suður-Karólínu er
að gera meðferð við málstoli skil-
virkari og kortleggja meinafræðina
sem liggur að baki, með það í huga
að gera greiningu á málstoli ná-
kvæmari, markvissari og geta þá séð
út frá greiningunni hvaða meðferð
myndi henta hverjum sjúklingi fyrir
sig,“ segir hann. „Til þess er unnið
að því að myndgreina heilann á C-
STAR rannsóknarstofunni. Til að
mynda eru teknar myndir af honum
og honum skipt upp í 3x3 millimetra
ferninga og síðan er hver kubbur
kortlagður nákvæmlega. Þetta er
gert með líklega jafn fullkomnu eða
jafnvel fullkomnari myndgreining-
artæki en til er á Landspítalanum,“
segir Sigfús og gefur það kannski
nokkra vísbendingu um umfang
rannsóknanna og stærð rannsóknar-
stofunnar sem hann kemur til með
að starfa á.
„Rannsóknir á málstoli hafa hing-
að til fyrst og fremst verið rann-
sóknir á tiltekinni meðferð. Það er
verið að máta meðferð við tiltekna
tegund málstols og mæla útkom-
una. „Þarna er þetta hins vegar gert
með myndgreiningu og það er mælt
hvernig málstolsmeðferð breyt-
ir taugaboðleiðunum í heilanum.
Það er semsagt tekin mynd af mál-
stolssjúklingi, hann sendur í með-
ferð og síðan tekin önnur mynd til
að sjá hvaða breytingum í heilanum
meðferðin gat stuðlað að. Þannig
Sigfús er á leið í doktorsnám í málstolsfræðum:
„Rökrétt að samrýma áhuga minn
á heilanum og málinu“
Sigfús Helgi Kristinsson talmeinafræðingur.
Sigfús og Hulda Ólöf Einarsdóttir gengu í hjónaband síðasta haust. Hér eru þau nýgift ásamt börnunum þremur; Rebekku
Klöru Óskarsdóttur, Pétri Jóhannesi Óskarssyni og Sigþóri Draupni Sigfússyni.