Skessuhorn - 19.04.2017, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 201716
„Keppni er mjög mikilvæg hvatn-
ing í allri íþróttaiðkun. Það að
stefna að einhverju takmarki og
finna fyrir framförum fær fólk til
að leggja sig fram. Það skiptir síð-
an engu máli hversu gamall mað-
ur er. Kappið er alltaf til staðar,“
segir Ingimundur Ingimundarson,
íþróttakennari til áratuga, sem hef-
ur skipulagt íþróttastarf fyrir eldri
borgara í Borgarbyggð með góð-
um árangri síðastliðin ár. Ævistarf
Ingimundar hefur verið á íþrótta-
sviðinu en hann hefur komið að
íþróttaþjálfun og félagsmálum frá
fermingu kringum 1960 og þjálf-
að hundruð einstaklinga í frjálsum,
sundi og öðrum íþróttum.
Boccia, ringó og pútt
„Það er mikilvægt fyrir alla, unga
sem aldna, að stunda íþróttir,“ seg-
ir Ingimundur. „Regluleg hreyfing
og það að taka þátt í æfingum og
keppni hefur jákvæð áhrif á heils-
una og eflir fólk á öðrum sviðum
daglegs lífs,“ bætir hann við og
segir að þetta eigi ekki síst við fólk
sem komið er fram yfir miðjan ald-
ur. „Ég tel að hreyfing og félags-
starf sé ekki síst mikilvægt fyrir
þennan hóp, einkum hjá þeim sem
eru hættir að vinna. Marga vantar
ný viðfangsefni á daginn og þá er
ekki úr vegi að taka þátt í íþrótt-
um.“
Það var fyrir tæpum ellefu árum
sem Ingimundur hóf að skipu-
leggja íþróttastarf fyrir eldri borg-
ara en þá byrjaði hann að standa
fyrir tímum í boccia í Borgarnesi
þar sem hann er búsettur. „Ég var
sjálfur að minnka við mig vinnu
og sá að það vantaði skipulagt
starf fyrir eldri borgara. Þá gerði
ég bara það sem ég hef alltaf gert,
varð mér út um græjurnar og byrj-
aði að skipuleggja tíma og hvetja
fólk til að mæta,“ segir Ingimund-
ur. „Fljótlega kom Flemming Jes-
sen með mér í þetta en við höfum
báðir komið að íþróttastarfi og
félagsmálum í áratugi hér í Borg-
arfirði. Boccia er enn stundað í
hverri viku yfir veturinn og hvílir
skipulagið nú á herðum Flemm-
ings sem er líka farinn að skipu-
leggja tíma í nýrri íþrótt, ringói.
Ég er hins vegar á fullu í púttinu.“
Fólk bíður spennt
Ingimundur hafði stundað golf
í áraraðir þegar hann byrjaði að
halda pútttíma fyrir eldri borgara
á æfingaflötinni á Hamarsvelli í
Borgarnesi fyrir sex árum. „Pútt-
ið hentar vel fyrir þennan hóp og
kviknaði strax áhugi hjá mörg-
um. Við hittumst tvisvar í viku á
Hamri og púttuðum og voru skor
skráð niður. Ég fór síðan að senda
yfirlit í tölvupósti um skor vikunn-
ar og þá gat fólk séð hvar það var
statt,“ segir Ingimundur og bætir
því við að þetta hafi virkað hvetj-
andi á iðkendur. „Fólk beið alltaf
spennt eftir að fá að sjá hvar það
var statt miðað við hina og hvort
að það var í framför eða ekki. Þetta
virkaði hvetjandi.“
Púttið var bundið við sumar-
ið en það breyttist fyrir nokkrum
árum þegar Golfklúbbur Borgar-
ness tók höndum saman við hóp
eldri púttara um að byggja inni-
aðstöðu í gamla kjötsal sláturhúss
KB í Brákarey. „Aðstaðan í Eyj-
unni eins og við köllum aðstöð-
una breytti miklu fyrir okkur og
gerði það að verkum að við getum
stundað púttið yfir veturinn. Við
hittumst þar tvisvar í viku, á þriðju-
dögum og fimmtudögum, og pútt-
um á stórri 18 holu flöt sem þar er,“
segir Ingimundur.
„Allt í allt erum við 27 sem hitt-
umst til að pútta, en þar af er um
15-18 manna kjarni sem mættir
nánast alltaf. Flestir eru komnir yfir
sjötugt, en þó eru nokkrir komnir
yfir sextugt og einn yfir áttrætt.“
Keppa við
Skagamenn í pútti
Ingimundur segir pútthópinn allt-
af vera að keppa. „Við förum í alls-
kyns keppni í tímunum okkar og
síðan tökum við þátt í mótum þar
sem púttarar úr öðrum byggð-
arlögum mæta til leiks. Í febrúar
héldum við t.d. opna mótið Þorra-
þræl í Eyjunni þar sem þátttak-
endur komu víða að og tókst það
vel. Þar voru um 50 manns sem
mættu, þar af 15 sem voru 80 ára
og eldri. Undanfarin ár höfum við
síðan keppt við Akurnesinga í bæj-
arkeppni en sú keppni fer fram
á sumrin og á þremur stöðum; á
Akranesi, í Nesi í Reykholtsdal og
í Borgarnesi,“ segir Ingimundur
sem kveðst hvetja sína liðsmenn í
Borgarnesi fyrir komandi keppni
gegn Skagamönnum. „Þeir hafa
unnið síðustu tvö ár þannig að
við þurfum að standa okkur bet-
ur í sumar. Þessi keppni er sérlega
ánægjuleg og hafa myndast góð
tengsl á milli hópanna.“
Einnig hefur hópur farið að
keppa á Landsmóti 50+ sem hefur
verið haldið árlega frá 2011. „Það
er ómetanlegt að UMFÍ haldi
þetta mót. Það er keppt í allskyns
greinum og vil ég nota tækifærið
og hvetja fólk til að taka þátt en
hægt er að skrá sig á heimasíðu
UMFÍ. Mótið fer fram í Hvera-
gerði í júní.“
Alinn upp í þessu
Ingimundur vill að lokum hvetja
fólk til að taka þátt í íþróttum og
býður nýliða velkomna í tímana
hjá sér og Flemming. „Ég held
að það sé góð stemning hjá okk-
ur og er nóg pláss fyrir nýliða. Í
hópnum eru t.d. margir sem hafa
ekki stundað íþróttir á lífsleiðinni
og er sérstaklega gaman að sjá þá
færast í aukanna þegar kemur að
keppni,“ segir hann og sem kveðst
sjálfur lifa fyrir íþróttastarf og
félagsmál. „Ég veit eiginlega ekki
hvað ég mundi gera ef ég myndi
hætta að koma að íþróttum og
félagsstarfi. Við Flemming höf-
um ferðast í önnur byggðarlög til
að kynna íþróttir eldri borgara og
vonum að þeir eldar haldi áfram
að loga. Ég er alinn upp í félags-
málum og íþróttum og er alltaf
jafn gefandi að taka þátt, sérstak-
lega þegar maður sér hvað þetta
gefur fólki mikið.“
hlh
Íþróttir mikilvægar fyrir eldri borgara
Ingimundur Ingimundarson.
Verðlaunahafar á púttmótinu Þorraþræl sem fram fór í Eyjunni í febrúar. Um 50 manns tóku þátt í mótinu. Ljósm. ii.
Borgfirskir púttarar í Nesi í Reykholtsdal eftir keppni gegn Skagamönnum. Ljósm. þt.