Skessuhorn - 19.04.2017, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 201726
Hvað á að gera í sumarfríinu?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Öldunni í
Brákarey í Borgarnesi)
Árni Jónsson:
„Fer til Tenerife og vestur á
firði.“
Ásta Birna Einarsdóttir:
„Verð að flækjast einhvers stað-
ar.“
Guðmundur Ingi Einarsson:
„Heimsækja Vestfirði.“
Helgi Guðmundsson:
„Fara til Þýskalands.“
Ölver Þráinn Bjarnason:
„Fer á hestbak í sumar hjá
Gunnu á Ölvaldsstöðum.“
Hulda Hildibrandsdóttir og Hreið-
ar Már Jóhannesson hafa stofn-
að ferðaþjónustufyrirtækið Ocean
Adventures í Stykkishólmi. Munu
þau bjóða ferðamönnum upp á
styttri siglingar um eyjarnar og ná-
grenni Stykkishólms. „Við keypt-
um nýlega lítinn bát sem við erum
að gera kláran í ferðir með túrista.
Aðal áherslan verður á sjóstang-
veiðiferðir og styttri lundaferð-
ir, um það bil klukkustundarlang-
ar siglingar í kringum eyjarnar við
Stykkishólm,“ segir Hulda í sam-
tali við Skessuhorn. „En þar fyrir
utan getum við boðið fólki upp á
alls konar ferðir ef það vill, hvort
sem eru norðurljósaferðir, sigling
út í Flatey eða bara hvað sem fólki
dettur í hug. Við munum reyna að
koma til móts við óskir fólks sem
óskar eftir hvers kyns sérferðum,
en þessar lundaferðir og sjóstöng-
in verða skipulögðu ferðirnar okk-
ar,“ segir hún.
Báturinn er níu metra lang-
ur, útbúinn stóru húsi og nóg er
af sætum. Að sögn Huldu komast
tíu farþegar í hverja siglingu. „Við
ætlum að leggja áherslu á góða og
persónulega þjónustu við okkar
viðskiptavini,“ segir hún.
Byrja í lok apríl
Aðspurð hvaðan hugmyndin kem-
ur segir Hulda að sjórinn hafi alla
tíð verið bæði sér og Hreiðari hug-
leikinn. „Ég er frá Bjarnarhöfn,
alin upp við ferðaþjónustuna þar.
Síðan fór ég á Hóla og útskrifaðist
með BA próf í ferðamálafræði frá
háskólanum þar. Maðurinn minn
er sjómaður og fyrir fimm árum
keyptum við saman strandveiðibát,
þannig að hugur okkar beggja hef-
ur alltaf verið við sjóinn. Að bjóða
ferðamönnum í siglingu er eitt-
hvað sem okkur hefur lengi langað
að prófa, við erum búin að hugsa
um þetta í mörg ár en ákváðum að
stökkva á þetta núna og láta vaða,“
segir Hulda. Hún vonast til að geta
byrjað að sigla áður en langt um
líður. „Við byrjum vonandi bara
fljótlega eftir páska. Við erum að
vinna í því núna að fá leyfi á bát-
inn, því það er ýmislegt sem þarf
að huga að til að mega sigla með
fólk. En vonandi getum við byrjað
í lok apríl, annars byrjum við bara
um leið og öll tilskilin leyfi hafa
verið veitt,“ segir hún.
„Nóg af ferðamönnum
hérna“
Hulda á von á því að til að byrja
með verði þrír starfsmenn hjá
Ocean Adventures. „Auk bátsins
verðum við með lítinn kofa niðri
við höfnina. Þar verður miðasalan
okkar og minjagripabúð. Við verð-
um með einn starfsmann í miðasöl-
unni og svo mun ég vera þar líka.
Hreiðar ætlar að sjá um siglingarn-
ar en ég er með pungapróf og mun
geta siglt með fólk ef svo ber und-
ir,“ segir hún.
Aðspurð um væntingar til kom-
andi sumars vonast Hulda fyrst og
fremst eftir því að veðrið leiki við
Hólmara. „Ég vona bara að það
verði gott veður, þetta byggist svo-
lítið á því. Ég hef engar áhyggj-
ur af því að það verði ekki nóg af
fólki, það er nóg af ferðamönnum
hérna,“ segir hún. „Hins vegar hef-
ur mér alltaf fundist vanta meiri af-
þreyingu fyrir ferðamennina. Hér
er nóg af gistingu og mat en minna
af afþreyingu. Það er hins vegar að-
eins að taka við sér núna og okkar
fyrirtæki er þar á meðal. Ég er mjög
ánægð með það því þetta helst allt
í hendur. Því meira sem er í boði
fyrir fólk þeim mun meira heillandi
er áfangastaðurinn,“ segir Hulda
Hildibrandsdóttir að lokum.
kgk
Ocean Adventures er nýtt ferðaþjónustu-
fyrirtæki í Stykkishólmi
Hulda Hildibrandsdóttir og Hreiðar Már Jóhannesson fyrir framan bátinn.
Evrópumót unglinga 18 ára og
yngri í keilu fór fram í Finnlandi í
vikunni fyrir páska. Fjórir dreng-
ir og fjórar stúlkur kepptu fyrir Ís-
lands hönd á mótinu. Akurnesingar
áttu sína fulltrúa í mótinu því Jó-
hann Ársæll Atlason frá Keilufélagi
Akraness keppti þarna á sínu öðru
Evrópumóti og Guðmundur Sig-
urðsson var annar þjálfaranna sem
fór með liðinu til Finnlands. Aðr-
ir fulltrúar Íslands voru Ágúst Ingi
Stefánsson, Steindór Máni Björg-
vinsson, Ólafur Þór Ólafsson
Hjaltalín, Elva Ósk Hannesdótt-
ir, Guðbjörg Harpa Sigurðardóttir,
Helga Ósk Freysdóttir, Málfríður
Jóna Freysdóttir og þjálfarinn Stef-
án Claessen.
Í tvímenningi drengja lék Jóhann
Ársæll ásamt Ólafi Þór og höfnuðu
þeir í 23. sæti með 191,5 í meðaltal,
en í heildina spiluðu 45 tvímenn-
ingar.
Í liðakeppni drengja hafnaði Ís-
land í 12. sæti í liðakeppninni og
þar var Jóhann atkvæðamestur liðs-
manna. Stúlkurnar gerðu gott mót í
liðakeppninni og hrepptu 8. sætið.
Mikil spenna ríkti hjá strákun-
um fyrir keppni í einliðaleik þar
sem Jóhann átti góða möguleika að
komast í 24 manna úrslit í heildar-
keppni mótsins. Erfið byrjun hjá
Jóhanni þýddi hins vegar að hann
þurfti að sækja það sem vantaði í
þeim leikjum sem eftir voru. Þrátt
fyrir góða spilamennsku hjá Jó-
hanni þá féllu pinnarnir ekki með
honum og þegar uppi var stað-
ið missti hann af niðurskurðinum
með 75 pinnum og endaði í 34. sæti
í heildarkeppni mótsins.
kgk
Skagamaður lék vel á Evrópumóti í keilu
Fulltrúar Íslands á Evrópumóti unglinga í keilu. Skagamaðurinn Jóhann Ársæll Atlason er lengst til hægri. Ljósm. KLÍ.