Skessuhorn - 19.04.2017, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2017 27
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skallagrímskonur hafa lokið þátt-
töku í Íslandsmótinu í körfu-
knattleik þetta árið, eftir tap
gegn Keflavík í oddaleik um sæti
í úrslitaviðureigninni um Íslands-
meistaratitilinn. Oddaleikurinn
fór fram í Keflavík á skírdag, 13.
apríl. Eftir mjög jafnan fyrri hálf-
leik reyndust Keflvíkingar sterk-
ari í þeim síðari. Skallagrímskon-
ur gerðu góða tilraun til að kom-
ast aftur inn í leikinn í lokafjórð-
ungnum en höfðu ekki erindi sem
erfiði. Keflavík hafði að lokum 16
stiga sigur, 80-64.
Gangur leiksins
Líf og fjör var á upphafsmín-
útum leiksins og varnarleikur-
inn, sem hefur verið aðalsmerki
beggja liða í einvíginu, var í auka-
hlutverki. Þess í stað fékk sókn-
arleikur beggja liða að njóta sín.
Mikið var skorað en aldrei mun-
aði meira en fjórum stigum á lið-
unum í upphafsfjórðungnum og
staðan var jöfn að honum loknum,
22-22. Það sama var uppi á ten-
ingnum í öðrum leikhluta. Liðin
sóttu og staðan var hnífjöfn, allt
þar til annar leikhluti var hálfn-
aður. Þá náðu Keflvíkingar heldur
yfirhöndinni, leiddu með þremur
stigum þar til á lokamínútu fyrri
hálfleiks, þar sem liðið skoraði
sex stig og tókst að fara með átta
stiga forskot í hléið, 48-40. Þann-
ig lauk gríðarlega skemmtilegum
fyrri hálfleik í þessum oddaleik,
þar sem mikið var skorað og bæði
lið sýndu gæði sín sóknarlega.
Keflavík náði 13 stiga forskoti
snemma í síðari hálfleik. Þær
keyrðu upp hraðann í leiknum,
hertu tökin í vörninni og héldu
Skallagrímskonum stigalausum á
fimm mínútna kafla í leikhlutan-
um, en juku forskotið hægt og být-
andi á meðan. Með nokkrum góð-
um körfum undir lok leikhlutans
tókst Skallagrími þó að minnka
muninn í 14 stig fyrir lokafjórð-
unginn, 66-52.
Skallagrímskonur komu mjög
ákveðnar til lokafjórðungsins,
tókst að halda Keflavíkurliðinu
stigalausu fyrstu mínúturnar og
hleypa mikilli spennu í leikinn
að nýju. Þær minnkuðu muninn í
sex stig þegar komið var fram yfir
miðjan leikhlutann en nær kom-
ust þær ekki. Keflavíkurliðið lék
af mikilli yfirvegun síðustu mín-
úturnar og gaf ekki frekari færi á
sér. Liðið jók forskot sitt að nýju
á síðustu mínútunum og sigraði
80-64.
Ragnheiður Benónísdóttir skor-
aði 14 stig fyrir Skallagrím og tók
5 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir
var með 12 stig og Jóhanna Björk
Sveinsdóttir skoraði 11 stig og tók
6 fráköst. Ariana Moorer var at-
kvæðamest Keflavíkinga með 27
stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar
og Erna Hákonardóttir skoraði 20
stig.
Stoltur af liðinu
Keflvíkingar sigruðu viðureign-
ina þar með 3-2 og mæta Snæ-
felli í úrslitaeinvíginu um Íslands-
meistaratitil kvenna í körfuknatt-
leik. Skallagrímskonur hafa hins
vegar lokið þátttöku í mótinu að
þessu sinni en mega vel við una.
Þær hafa rækilega stimplað sig
inn sem eitt besta körfuknattleiks-
lið landsins. „Þegar það voru að-
eins þrjár mínútur eftir og við vor-
um sex stigum undir þá var þetta
mjög tæpt en Keflavík spilaði bet-
ur í kvöld. Þær eiga hrós skilið,“
sagði Manuel Rodriguez, þjálfari
Skallagríms, í samtali við Vísi eft-
ir leikinn en kvaðst heilt yfir vera
ánægður með veturinn og sagð-
ist vilja vera áfram með liðið. „Ég
er mjög stoltur af mínu liði, þær
eru búnar að standa sig vel á þessu
tímabili. Mér líður vel í Borgar-
nesi. Ég er mjög ánægður með
liðið og stuðninginn. Ég vil þakka
fólkinu þar fyrir.“
kgk/ Ljósm. Skallagrímur.
Skallagrímskonur komast ekki í úrslitin
Kristrún Sigurjónsdóttir í baráttu við leikmenn Keflavíkur.
Meistaramót Íslands í badminton fór
fram dagana 7.-10. apríl. Badmin-
tonfélag Akraness sendi 14 keppend-
ur til þátttöku undir merkjum ÍA og
gekk mörgum þeirra vel í mótinu.
Brynjar Már Ellertsson sigraði í
tvenndarleik í B flokki þar sem hann
lék ásamt Ingibjörgu Rósu Jónsdóttur
úr UMFS. Brynjar Már hafnaði síðan
í öðru sæti í tvíliðaleik í sama flokki
ásamt Tómasi Andra Jörgenssyni,
sem einnig er í ÍA.
Aðalsteinn Huldarsson hafnaði í
öðru sæti í einliðaleik í Æðstaflokki,
en þar leika keppendur 50 ára og
eldri.
Drífa Harðardóttir varð önnur í
tvenndarleik í Meistaraflokki ásamt
Davíð Bjarna Björnssyni úr TBR og
einnig varð hún önnur í tvíliðaleik í
Meistaraflokki þar sem hún spilaði
með Elsu Nielsen úr TBR. kgk
Íslandsmeistarar í tvenndarleik í B
flokki eru Brynjar Már Ellertsson úr ÍA
og Ingibjörg Rósa Jónsdóttir úr UMFS.
Þau sigruðu Sigurð Inga Pálsson úr
TBR og Bjarndísi Helgu Blöndal úr
Hamri í úrslitaviðureigninni.
Brynjar Már varð Íslands-
meistari í tvenndarleik
Snæfell og Keflavík eigast við í úr-
slitaeinvíginu um Íslandsmeistaratit-
il kvenna í körfuknattleik. Ríkjandi
Íslandsmeistarar Snæfells sópuðu
Stjörnunni úr undanúrslitunum með
þremur sigrum gegn engum en Kefl-
víkingar tryggðu sér sæti í úrslitunum
með því að leggja Skallagrím í odda-
leik á skírdag. Það sama gildir í úr-
slitum og undanúrslitum, það lið sem
fyrr sigrar þrjár leiki sigrar viðureign-
ina og hampar þar með Íslandsmeist-
aratitlinum.
Snæfell hefur heimaleikjaréttinn
í einvíginu og fyrsti leikur liðanna
fór fram í Stykkishólmi í gærkvöldi,
þriðjudaginn 18. apríl. Leikurinn átti
upphaflega að fara fram á mánudag
en var frestað vegna veðurs. Því var
hann leikinn í gær og af þeim sökum
er ekki hægt að greina frá úrslitum
hans í Skessuhorni vikunnar því blað-
ið var farið í prentun áður en leikur-
inn hófst.
En þrátt fyrir að fyrsta leiknum í
úrslitum hafi verið frestað þá færast
aðrir leikdagar ekki til. Liðin mætast
næst í Keflavík á fimmtudag, 20. apríl
og aftur í Stykkishólmi sunnudaginn
23. apríl næstkomandi. Verði úrslit
ekki ráðin að þremur leikjum lokn-
um mætast liðin fjórða sinni í Kefla-
vík miðvikudaginn 26. apríl og þurfi
oddaleik til að knýja fram Íslands-
meistara mun hann fara fram í Stykk-
ishólmi laugardaginn 29. apríl. kgk
Úrslitin hófust í gærkvöldi
Snæfell sópaði Stjörnunni 3-0 í
undanúrslitum og mætir Keflavík í
úrslitum. Ljósm. sá.
Borgnesingurinn Bjarki Péturs-
son kom, sá og sigraði á Boilerma-
ker Invitational mótinu sem fram
fór í bandaríska háskólagolfinu
um helgina. Á Kylfingi.is segir að
Bjarki, sem spilar fyrir Kent State
háskólann, hafi leikið hringina þrjá
á fjórum höggum undir pari og lék
höggi betur en liðsfélagi hans, Josh
Whalen. Á lokahringnum gerði
Bjarki fá mistök, fékk þrjá skolla og
fimm fugla og kom inn á 70 högg-
um (-2) og tryggði sér sigur í annað
skiptið á háskólaferlinum.
mm/ Ljósm. kylfingur.vf.is
Bjarki sigraði á sterku amerísku háskólamóti
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnu-
kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni,
hafnaði í 50. sæti á Lalla Meryem
Cup mótinu sem fram fór í Mar-
okkó um páskahelgina. Mótið er
hluti af LET Evrópumótaröðinni,
sterkustu mótaröð Evrópu. Var
þetta annað mót tímabilsins hjá
Valdísi á mótaröðinni.
Valdís lék fyrsta hring mótsins
á 76 höggum, eða fjórum yfir pari
en flaug í gegnum niðurskurð-
inn með frábærri spilamennsku
á öðrum hring. Hann lék hún
á 71 höggi, einu undir pari og
komst því áfram í mótinu á sam-
tals þremur yfir pari. Þriðja hring-
inn fór hún á 73, einu höggi yfir
pari og lyfti sér upp í 26. sætið fyr-
ir lokahringinn, sem leikinn var
á páskadag. Valdísi fataðist hins
vegar flugið á lokahringnum þar
sem hún spilaði á 77 höggum, eða
fimm yfir pari og samtals lauk hún
því keppni í mótinu í 50. sæti á níu
höggum yfir pari.
„Ég er með blandaðar tilfinn-
ingar eftir þetta mót,“ skrifaði
Valdís á Facebook-síðu sína eft-
ir mótið. „Skorin sem ég spilaði
á endurspegla enganvegin spila-
mennsku mína í þessu móti og
það er svekkjandi. Pútterinn minn
var ískaldur allt mótið og það
reyndi heldur betur á þolinmæð-
ina að vera stöðugt í fuglafærum
en setja varla eitt einasta pútt ofan
í. Stundum er það víst þannig!
Seinni 9 í dag [sunnudag; innsk.
blaðamanns] voru ekki góðar og
þær hreinlega eyðilögðu mótið
fyrir mér.“
Næsta mót Valdísar á LET Evr-
ópumótaröðinni fer fram á Spáni
og hefst það á morgun, sumardag-
inn fyrsta, 20. apríl.
kgk/Ljósm. kylfingur.is.
Fataðist flugið á lokahringnum