Skessuhorn


Skessuhorn - 31.05.2017, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 31.05.2017, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 13 Til sölu eru átta samliggjandi sumarhúsalóðir á kyrrlátum stað í Borgarfirði (lóðir 11-18). Landið er hluti skipulags sumarhúsasvæðis sem nefnist Melabyggð og er úr landi Birkihlíðar í Reykholtsdal. Skipulagið nær yfir alls 40 ha og skiptist í 18 hektara lóðir en 22 ha eru skógræktarsvæði sem nú er að mestu búið að planta í. Vegur, rafmagn og neysluvatn er komið að mörkum neðstu lóðar. Hver lóð er um 10.000 fm að stærð (1,0 ha). Engin hús eru risin á þessum hluta skipulagsins en fimm hús á neðra svæðinu (á lóðum 1-10). Heimilt er að byggja allt að 100 fm hús á hverri lóð. Lóðirnar átta bjóðast nú saman. Verð: Tilboð. Allar nánari upplýsingar gefur eigandi í síma 894-8998. Lóðir/land til sölu í Borgarfirði Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is SK ES SU H O R N 2 01 7 Heit laug við Langasand á Akranesi Akraneskaupstaður óskar eftir tilboði í uppsteypu á laugarmannvirki við Langasand á Akranesi ásamt tilheyrandi jarðvinnu og frágangi. Helstu magntölur: Steypa 150 m3 Mótafletir 400 m2 Grjótvörn 750 m3 Verklok eru 20. nóvember 2017. Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með þvi að senda tölvupóst á netfangið akranes. utbod@mannvit.is, með ósk þar um, þar sem fram kemur nafn, netfang og símanúmer bjóðanda. Tilboð verða opnuð í ráðhúsi Akranesbæjar, Stillholti 16-18, Akranesi, fimmtudaginn 15. júní 2017 kl. 11:00. Sviðsstjóri Skipulags- og umhverfissviðs Á laugardaginn tóku starfsmenn Límtré Vírnets í Borgarnesi til hendinni; hentu rusli og snyrtu til í kringum fyrirtækið. „Við tókum okkur til og snyrtum hér í kring- um fyrirtækið og alveg niður í fjöru þar sem var talsvert járnarusl. Við unnum að þessu með starfsmanna- félaginu og ætlum að halda þess- ari tiltekt áfram á næstunni. Maður þarf að hugsa um umhverfið líka og þetta er liður í því. Þetta gekk mjög vel hjá okkur og það var góður andi í hópnum. Þetta var eiginlega bara skemmtilegt og maður var ánægður eftir dagsverkið,“ sagði Jakob Guð- mundsson hjá Límtré Vírneti þegar Skessuhorn sló á þráðinn til hans í gær. bþb Hreinsunardagur Límtré Vírnets Starfsmenn voru ánægðir með dagsverkið og munu halda áfram að snyrta til.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.