Skessuhorn


Skessuhorn - 31.05.2017, Side 14

Skessuhorn - 31.05.2017, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 201714 Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Búslóðageymsla � Ártíðabundinn lager � Lager � Sumar-/vetrarvörur Frystgeymsla � Kæligeymsla � Leiga til skemmri eða lengri tíma Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpiehf.is HAFÐU SAMBAND Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði Opinn hádegisfundur um ferðaþjón- ustu á Akranesi var haldinn í Tón- bergi, sal tónlistarskólans þar í bæ, síðastliðinn föstudag. Fulltrúar Sæ- ferða sögðu frá fyrirhuguðum ferju- siglingum milli Akraness og Reykja- víkur. Nánar er greint frá því í ann- arri frétt í Skessuhorni vikunnar (sjá bls. 10). 15 skipakomur Fulltrúar frá Faxaflóahöfnum fóru yfir komur skemmtiferðaskipa til Akraness á komandi sumri, en alls eru 15 skipakomur áætlaðar. Fyrst leggst Callisto að bryggju föstudaginn 12. júní næstkomandi, en það skip mun koma alls 14 sinnum í sumar. Le Bo- real kemur síðan 30. júlí næstkom- andi með um 260 farþega innanborðs. Í umræðum um skipakomur var rætt hversu mikil tækifæri lægju í komum farþegaskipa, þar sem farþegar skip- anna færu margir í fyrirfram skipu- lagðar ferðir. Gísli Gíslason, hafnar- stjóri Faxaflóahafna, svaraði því til að reynsla frá öðrum stöðum hefði sýnt að um 70% farþega færu í fyrirfram skipulagðar ferðir en 30% gerðu það alls ekki. Þá færi áhöfn skipanna ekki í ferðir, þó hún færi í land. „Nær alls staðar er fjöldi áhafnarmeðlima van- metinn,“ sagði hann. Aðspurður sagði hann jafnframt að ferðaþjónustufólk og veitingamenn á Akranesi gætu freistað þess að kom- ast inn í skipulagðar ferðir fyrir far- þega. Það væri gert með því að hafa samband við skipaumboðsmanninn. Markhópur bæjarins væri þó fyrst og fremst sá hluti sem ekki fer í skipu- lagðar ferðir, sem og áhöfn skipanna. Þá lagði hann áherslu á skipakom- ur væru langhlaup, það tæki tíma að mynda tengslanet og skapa bænum orðspor sem komustað skemmti- ferðaskipa. Hlutverk bæjarfélagsins Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, ræddi síðan hlutverk Akra- ness í ferðaþjónustu og greindi að því hverju væri unnið að í þeim efnum. Fyrst nefndi hann Akra- nesvita. Tilraunaverkefni með heilsársopnun vitans verður hald- ið áfram til ársloka. Vitann hafa heimsótt 40 þúsund manns frá 2012, þar af 14 þúsund á síðasta ári. Það sem af er 2017 hafa fimm þúsund gestir sótt vitann heim. Þessa dagana er verið að undirbúa þjónustuhús á Breiðinni fyrir opn- un, en því var nýverið komið fyr- ir. Þá fer senn af stað undirbún- ingur vegna 100 ára afmælis gamla vitans sem nær þeim merku tíma- mótum á næsta ári. Rekstrarkostn- aður Akranesvita og upplýsinga- miðstöðvar er 10 milljónir á ári. Því næst sagði hann frá Tjald- svæðinu við Kalmansvík, sem opið er 5. maí til 1. október. Á síðasta ári komu þangað sjö þúsund gest- ir. Endurbætur hafa verið gerðar á salernum og sett upp ný leik- tæki fyrir börn, auk þess sem raf- magnsmálum hefur verið kom- ið þar í betra horf. Rekstur tjald- svæðisins nam tæpum 10 milljón- um á síðasta ári en tekjur voru sjö milljónir. Gestir Byggðasafnsins í Görð- um voru 2000 á síðasta ári og gert er ráð fyrir að þeir verði 2200 í ár. Safnið fær 50 milljónir í framlag frá eigendum þess, Akraneskaup- stað og Hvalfjarðarsveit. Pening- arnir eru nýttir í smíði bátahúss, almennt viðhald auk þess sem nú er unnið að uppsetningu nýrrar grunnsýningar. Bærinn ver 1,4 milljónum í markaðs- og kynningarmál, það er að segja auglýsingar vegna ferða- þjónustu og er bærinn kynntur í prentmiðlum og stafrænum miðl- um. Þá hefur kort af Akranesi ver- ið prentað í 20 þúsund eintökum þar sem er yfirlit yfir þjónustu á svæðinu, auk göngu og hjólaleiða og hvar hægt er að fá upplýsingar. Þá er auglýsing um gerð Guð- laugar í útboði og birtist í blaðinu í dag, en Guðlaug verður heit laug í grjótgarðinum við Langasand. Bærinn fékk til gerðar hennar 10 milljónir að gjöf úr Bræðraparts- sjóði árið 2014 auk 30 milljóna framlags úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða nú í ár. Verklok við laugargerðina eru áætluð 20. nóvember á þessu ári. kgk Ferðamál voru til umræðu á Akranesi Skemmtiferðaskipið Le Boreal leggst hér að bryggju í Grundarfirði. Ljósm. úr safni/ tfk. Akranesviti og gamli vitinn á Breiðinni á Akranesi. Fundarmenn hlýða á erindi. Akranesbæ hefur verið boðið að vera heiðursgestur á lista- og menningarhátíðinni Menning- arnótt, sem haldin er í Reykja- vík ár hvert. Sævar Freyr Þráins- son bæjarstjóri greindi frá þessu á opnum fundi um ferðaþjónustu á Akranesi síðastliðinn föstu- dag. Sagði hann að boð þess efn- is hefði borist bæjaryfirvöldum síðastliðinn miðvikudag. „Inn- an tíðar mun hefjast vinna við að tengja Menningarnótt hingað yfir á Akranes,“ sagði Sævar. Menningarnótt verður hald- in laugardaginn 19. ágúst næst- komandi. kgk Akranes heiðursgestur á Menningarnótt Þjóðlagasveitin Slitnir Strengir. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Ljósm. úr safni. Veiðin hefur verið ágæt í Hrauns- firði á Snæfellsnesi það sem af er sumri og margir fengið fína veiði. Bleikjan hefur verið að gefa sig og hún er vel haldin þessa dagana. „Jú, það hefur verið veiði, við höfum fengið í soðið nokkrum sinnum,“ sagði Bjarni Júlíusson sem hefur veitt nokkrum sinnum í Hrauns- firðinum í vor og sumar. „Við eigum bústað þarna rétt hjá og stutt að fara að veiða. Hrauns- fjörðurinn er skemmtilegur,“ sagði Bjarni sem var að drífa sig til að vera við opnun urriðasvæðisins í Laxá í Þingeyjarsýslu. „Við fréttum að vel hefði veiðst hjá honum og fleir- um fyrsta daginn sem mátti veiða. Veiðimenn sem voru í Hvítárvatni nýverið fengu fína veiði, bæði urr- iða og bleikju. Vötnin koma vel undan vetri og fiskurinn er í tök- ustuði, en það skiptir miklu máli.“ g Hraunsfjörðurinn hefur verið að gefa veiði Hafþór Bjarni Bjarnason með fallega bleikju úr Hraunsfirði fyrir skömmu. Ljósm. bj.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.