Skessuhorn - 14.06.2017, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 14. júNÍ 20174
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Björn Þór Björnsson bjorn@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Emilía Ottesen emilia@skessuhorn.is
Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Skerpt á
verðvitundinni
Enginn vafi er að mikill skjálfti hefur gripið um sig á íslenskum smásölu-
markaði eftir komu ameríska kaupfélagsins hingað til lands. Viðbrögð
markaðarins hafa hins vegar verið með býsna ólíkum hætti. Til eru smá-
sölufyrirtæki sem ætla greinilega að freista þess að bregðast ekki við breytt-
um aðstæðum, halda sig við sama gamla verðið, óbreytt vöruframboð og
þjónustu og bíða þess líklega að rykið taki að setjast. Svo eru önnur og kvik-
ari fyrirtæki á markaði sem fóru strax á síðasta ári að breyta áherslum til að
takast á við komu þessa nýja risa á smásölumarkað. Þá hefur að undanförnu
átt sér stað býsna mikil samþjöppun á fyrirtækjamarkaði sem sýnir glöggt
að byrjað er að fara um ýmsa sem höfðu það notalegt við kjötkatlana. Nú
eru Hagar og Olís til dæmis gengin í eina sæng, Skeljungur og 10-11 og nú
síðast heyrðist af sameiningu N1 og Krónunnar. Allt eru þetta viðbrögð við
því að kominn er á markað verslun sem selur t.d. eldsneyti fyrir 15% lægra
verð en við höfum þekkt, brauð fyrir allt að tíunda hluta þess verðs en við
þekkjum og áfram mætti telja. Nú síðast sá ég frétt þess efnis að Ölgerðin
væri búin að kaupa Kú. Ekki veit ég hvort það er af ótta við að hægt er að
kaupa ódýr drykkjarföng eða osta í Costco, eða ástæðan sé einhver önnur.
Einhver hlýtur skýringin að vera því annars væru kaupin út úr kú.
Öll þessi viðbrögð markaðarins eru athyglisverð og taka á sig ólíkar
myndir. Mér finnst ekkert annað en jákvætt að Einar í Einarsbúð, gamli
kaupmaðurinn á horninu, fari suður í Costco og kaupi þar vöru til endur-
sölu, ef verðið sem honum býðst þar er lægra en heildsalar hafa fram til
þessa boðið honum. Það er náttúrlega ekkert annað en vísbending um að
heildsölum mun fækka, líkt og eftir að fyrsta Bónusbúðin var opnuð þarna
um árið. Ef heildsalinn í þessu tilfelli ætlar að lifa, þarf hann einfaldlega að
lækka verð eða/og bæta þjónustuna.
Nýr formaður VR skrifaði upplýsingandi grein í einhvern fjölmiðilinn
í vikunni sem leið. Þar heldur hann því fram að koma Costco ein og sér
á markaðinn hafi miklu minni áhrif en hin opna verslun sem hefur farið
fram á netinu í nokkur ár. Á netinu getur almenningur keypt það sem hon-
um sýnist, fengið sent á nokkrum dögum svo lengi sem flutningskostnað-
ur og -tími er innan skynsamlegra marka. Þetta er rétt svo langt sem það
nær. Hins vegar er eðli matvöru, sem er uppistaðan í því sem Costco er að
selja, háð ákveðinni nálægð við viðskiptavininn. Allavega þekki ég fáa sem
myndu kaupa sér agúrkur eða nautahakk í vefverslun frá Kína. Það er því
mín skoðun að útbreiðsla og áframhaldandi tryggð fólks við að gera megin
innkaup sín í Costco mun fara eftir samgöngum. Ef samgöngur eru greið-
ar, ferðatíminn innan skynsamlegra marka og vegalengdir einnig, þá virð-
ast jafnvel Íslendingar vera tilbúnir að leggja svona langar kaupfélagsferðir
á sig. Í það minnsta sá ég í þessari einu verslunarferð sem ég hef átt þarna
suður í Garðabæ fullt af fólki af Vesturlandi. Á sama tíma hefur greinileg
fækkun viðskiptavina orðið í verslunum okkur nær, sem fram til þessa hafa
verið kjaftfullar af fólki. Auðvitað hlutu þetta að verða áhrifin, buddan er
látin tala. Mér reiknast til dæmis til að miðað við elsneytisnotkun á mínum
heimilisbíl geti ég sparað sem nemur 7.500 krónum á mánuði með að kaupa
bensínið í Costco í samanburði við verð hinna olíufélaganna. Það munar
um minna.
Ég viðurkenni fúslega að ég hef fylgst grannt með bæði umræðu og skrif-
um um komu þessarar nýju verslunar hingað til lands. Fyrir almenning
hafa áhrifin almennt verið jákvæð, en til lengri tíma má reikna með að smá-
söluaðilum muni fækka og samþjöppun aukast enn frekar. Það jákvæða við
þetta allt er hins vegar sú staðreynd að nú virðist vera búið sé að skerpa á
verðvitund Íslendinga. Kannski var alveg kominn tími til.
Magnús Magnússon
Leiðari
Á sjómannadaginn á Akranesi var
nýja björgunarskip Björgunar-
félags Akraness vígt við hátíðlega
athöfn í Akraneshöfn. Skipið heit-
ir jón Gunnlaugsson og er nefnt
eftir jóni Gunnlaugssyni útvegs-
bónda frá Bræðraparti á Akranesi.
Árið 1971 var stofnaður sjóður af
börnum hjónanna jóns Gunnlaugs-
sonar og Guðlaugar Gunnlaugs-
sonar til minningar um þau. Eign
sjóðsins var landið Bræðrapartur
og runnu lóðarleigutekjur af land-
inu í sjóðinn. Hlutverk sjóðsins var
að styrkja ungt fólk til náms í sam-
bandi við sjávarútveg og vinnslu
sjávarafurða. Enn fremur var heim-
ilt að verja hluta af tekjum sjóðs-
ins til slysavarna, en björgunar- og
slysavarnamál voru þeim hjónum
hugleikin.
Í lok febrúar 2014 var minningar-
sjóðnum formlega slitið og við það
tilefni var Björgunarfélagi Akraness
og Slysavarnadeildinni Líf úthlutað
lóðum sjóðsins til eignar. Að auki
fengu þau rausnarlega peningagjöf
sem skiptist jafnt á milli félaganna.
Ákveðið var að styrkurinn úr sjóðn-
um yrði nýttur til að styrkja sjó-
flokk björgunarfélagsins. Flutt var
inn skip frá Bretlandi sem framleitt
var árið 1996. Þar hafði það gegnt
hlutverki sjómælinga- og hafnsögu-
báts hjá breska sjóhernum. Skipið
kom til Íslands í nóvember 2014 og
var fljótlega hafist handa við endur-
bætur á tækjabúnaði skipsins. Allt
rafmagn hefur verið endurnýjað og
megnið af þeim tækjabúnaði sem
var í skipinu sömuleiðis. Skipið er
útbúið hitamyndavél sem er öfl-
ugt verkfæri þegar kemur að leit og
björgun og side-scan sónar til leitar
neðansjávar. Mikið hefur verið unn-
ið í sjálfboðavinnu og hafa þeir Ant-
on Örn Rúnarsson og jón Gunnar
Ingibergsson stýrt því verkefni.
Birna Björnsdóttir, formaður
Björgunarfélags Akraness, tók til
máls við vígslu björgunarskipsins
og rakti tildrög þess að jón Gunn-
laugsson var tekinn til notkunar hjá
björgunarfélaginu. „Við vonumst
til að skipið verði góð viðbót við
tækjaflóru félagsins og komi til með
að nýtast okkur vel í komandi verk-
efnum. Framundan eru spennandi
tímar. Þjálfa þarf áhöfn á skipið og
er stór hópur félaga sem er áhuga-
samur um að sinna því hlutverki.
Einnig þarf að fara í prufusigling-
ar, læra á skipið, tæki þess og tól.
Þetta er stór dagur í sögu Björgun-
arfélags Akraness. Á Akranesi hefur
í gegnum tíðina verið mikill metn-
aður í sjóbjörgunarmálum og mun
tilkoma jóns Gunnlaugssonar gera
það að verkum að svo verði áfram,“
sagði Birna í ræðu sinni. Eftir Birnu
tók séra Þráinn Haraldsson til máls
og blessaði skipið og áhöfn þess.
bþb
Jón Gunnlaugsson vígður
við hátíðlega athöfn á Akranesi
Fjölmargir voru viðstaddir þegar björgunarbáturinn Jón Gunnlaugsson var form-
lega vígður og honum gefið nafn á sjómannadaginn.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar fór á
fundi sínum síðastliðinn fimmtudag
yfir lyktir Alþingis við þinglok um
mánaðamótin síðustu um meðferð
fjármuna úr jöfnunarsjóði sveitar-
félaga. „Sveitarstjórn Borgarbyggð-
ar lýsir andstöðu við þá ákvörð-
un Alþingis frá 1. júní sl. að breyta
lögum um tekjustofna sveitarfélaga
á þann veg að helmingi þess fjár
sem situr í jöfnunarsjóði sveitar-
félaga vegna álagningu s.k. banka-
skatts verði úthlutað eftir almenn-
um gildandi reglum um jöfnunar-
sjóðinn og helmingi þess í samræmi
við hlutdeild sveitarfélaga í álögðu
heildarútsvari á árinu 2016. Fyrir
liggur að nokkur undanfarin ár hef-
ur fé safnast upp í sjóðnum ár frá
ári í stað þess að því væri úthlutað
til sveitarfélaga samkvæmt gildandi
reglum hans. Þessi ákvörðun hef-
ur valdið Borgarbyggð fjárhagsleg-
um skaða þar sem úthlutuð framlög
úr sjóðnum til sveitarfélagsins hafa
verið lægri en gildandi lög og regl-
ur segja til um.“
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sín-
um að fela sveitarstjóra að skýra
eftir föngum réttarstöðu sveitar-
félagsins í þessu sambandi og hefja
síðan undirbúning að málshöfðun
á hendur jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga vegna þess fjárhagslega skaða
sem sveitarfélagið hefur orðið fyrir
vegna fyrrgreindra aðgerða sjóðs-
ins.
mm
Íhuga að leita réttar síns vegna vanefnda
á greiðslum úr Jöfnunarsjóði
Á Sjómannadaginn síðastliðinn
sunnudag hlaut áhöfn Saxhamars
SH 50 viðurkenningu frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörgu fyrir að
hafa sýnt öðrum fremur góða ör-
yggisvitund á námskeiðum Slysa-
varnaskóla sjómanna. Á Saxhamri
er Friðþjófur Sævarsson skipstjóri
og tók Sævar Freyr Reynisson
yfirstýrimaður á móti viðurkenn-
ingunni fyrir hönd áhafnarinnar.
Svanfríður Anna Lárusdóttir ritari
stjórnar Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar afhenti viðurkenninguna
sem er farandbikar til varðveislu í
eitt ár ásamt veggskildi til eignar.
mm
Áhöfn Saxhamars SH
sýndi góða öryggisvitund