Skessuhorn - 14.06.2017, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 14. júNÍ 20176
Sveitar-
sjóður
kaupir fjórar
íbúðir
SNÆFELLSBÆR: Bæj-
arstjórn Snæfellsbæjar
hefur samþykkt að kaupa
fjórar íbúðir við Fossa-
brekku 21 í Snæfellsbæ,
ásamt bílskúr við Hjarð-
artún. Fasteignirnar eru
í eigu Íbúðalánasjóðs og
hefur Kristni jónassyni
bæjarstjóra verið falið að
ganga frá kaupunum, að
því gefnu að lán að fjár-
hæð 60 milljónir króna
fáist hjá Lánasjóði sveit-
arfélaga til að fjármagna
kaupin. Til trygging-
ar láninu standa tekjur
sveitarfélagsins. Að sögn
Kristins eru íbúðirnar
allar í útleigu og verða
það áfram. „Með þessu
erum við að auka fram-
boð leiguhúsnæðis í eigu
sveitarfélagsins. Hér er
mikill skortur á leiguhús-
næði og það hafa komið
mörg mál inn á mitt borð
síðasta hálfa árið, þar sem
fólk leitar til okkar og er
í vandræðum með að fá
leiguhúsnæði. Þetta var
vandamál áður en hefur
aukist mikið síðustu mán-
uði. Það er í raun sama
staða um allt land; það
vantar leiguhúsnæði og
við erum bara að bregð-
ast við þeim skorti,“ segir
Kristinn.
-grþ
Linda Björk
ráðin skrif-
stofustjóri
HVALFJ.SV: Linda
Björk Pálsdóttir hefur
verið ráðin skrifstofu-
stjóri Hvalfjarðarsveitar.
Starfið var auglýst laust
til umsóknar í vor og sótt
nítján um. Linda Björk
er rekstrarfræðingur frá
Háskólanum á Bifröst
og hefur frá 2011 unnið í
Landsbankanum á Akra-
nesi, nú síðast sem við-
skiptastjóri. Þar áður var
hún fjármálastjóri í Borg-
arbyggð og sveitarstjóri í
Borgarfjarðarsveit. Linda
er gift Karvel L. Karvel-
ssyni framkvæmdastjóra
og eiga þau tvö börn, 19
og 24 ára og eitt barna-
barn. Gert er ráð fyrir að
Linda taki til starfa um
miðjan júlímánuð, sam-
kvæmt frétt á heimasíðu
sveitarfélagsins.
-mm
Hana komið til
bjargar
LANDIÐ: Matvælastofn-
un greinir frá því að nýlega
hafi borist ábending um yfir-
gefinn hana í fjárhúsi eftir að
eigendur höfðu hætt búskap
og flutt erlendis. Ekki kem-
ur fram hvar þetta var á land-
inu. Eftir mikið klifur og basl
náðist að handsama hanann.
Hann var orðinn nokkuð
grannur en fékk nóg að éta
og drekka enda svangur og
þyrstur eftir veruna í fjárhús-
inu. Að öðru leyti var hann í
góðu ástandi. Farið var með
hanann í húsdýragarðinn að
Hraðastöðum í Mosfellsdal
og þaðan var hann gefinn til
hænsnaeiganda sem vantaði
hana í hænsnakofann sinn.
-mm
Hefja undir-
búning nýs að-
alskipulags
BORGARBYGGÐ: „Vegna
samfélagsbreytinga og end-
urtekinna vandkvæða sem
hefur komið í ljós við nú-
verandi aðalskipulag, legg-
ur Umhverfis-, skipulags-
og landbúnaðarnefnd til við
sveitarstjórn að hafin verði
undirbúningur á endur-
skoðun aðalskipulags Borg-
arbyggðar. Nefndin leggur
til að skipaður verði starfs-
hópur til að koma málinu af
stað,“ segir í bókun byggð-
arráðs Borgarbyggðar 7.
júní síðastliðinn sem sveitar-
stjórn staðfesti á fundi sínum
daginn eftir. -mm
Hestamenn í Borgarnesi og raun-
ar Vesturlnadi öllu undirbúa nú
af krafti Fjórðungsmót Vestur-
lands sem haldið verður á félags-
svæði hestamannafélagsins Skugga
í Borgarnesi vikuna 26. júní til 2.
júlí næstkomandi. Þar er nú búið
að endurbyggja kynbótabraut sem
síðast var notuð fyrir um 20 árum.
Brautin var endurvígð í síðustu viku
með kynbótasýningu og var almenn
ánægja með hana meðal sýnenda og
annarra. Mótssvæðið lítur mjög vel
út og stutt er í hesthúsin í Borgar-
nesi. Búist er við 300-400 hrossum
á mótið en þar af eiga 68 kynbóta-
hross rétt til þátttöku.
Ámundi Sigurðsson er fram-
kvæmdastjóri fyrir fjórðungsmót-
ið en Ingi Tryggvason er formaður
stjórnarinnar. Ingi segir að í gæð-
ingakeppninni eiga keppnisrétt
félagsmenn í hestamannafélögum á
Vesturlandi, Vestfjörðum, í Húna-
vatnssýslum og Skagafirði. Síðan
verður keppni í tölti opnum flokki
og tölti 17 ára og yngri og síðan 100
m fljótandi skeiði, 150 m skeiði og
250 m skeiði. Þessar greinar verða
opnar fyrir alla. Hestamannafélög-
in sem eiga keppnisrétt í gæðinga-
keppninni hafa verið með úrtökur að
undanförnu og er þeim nú nær öll-
um lokið. En hvert félag má senda
á FM einn keppanda fyrir hverja 50
félagsmenn.
Ingi Tryggvason segir að aðgangs-
eyri verði stillt í hóf til að sem flestir
mæti. Það verður 2.500 krónur fyr-
ir allt mótið. Síðan verða tjaldstæði
með rafmagni í boði á Kárastaðatúni
og verður selt sérstaklega á það. Til
skemmtundar veðrur að auki dans-
leikur með Stuðlabandinu í Reið-
höllinni Faxaborg föstudaginn 30.
júní og kvöldvaka laugardagskvöld-
ið 1. júlí. mm
Á fjórða hundrað hross væntanleg
á Fjórðungsmót Vesturlands
Svipmynd frá félagssvæðinu.
Hafrannsóknastofnun ráðleggur
6% aukningu á aflamarki þorsks
byggt á aflareglu stjórnvalda. Kvót-
inn yrði samkvæmt því 258 þúsund
tonn í stað 244 þúsund tonna á yf-
irstandandi fiskveiðiári. Samkvæmt
stofnmatinu í ár stækkaði viðmið-
unarstofninn lítillega milli áranna
2016 og 2017. Búist er við að þegar
þorskárgangarnir frá 2014 og 2015
komi inn í viðmiðunarstofninn
2018 og 2019 stækki hann nokkuð
frá því sem nú er. Fyrsta mæling á
árgangi 2016 bendir til að hann sé
undir meðaltali.
Samkvæmt aflareglu leggur
Hafró til að aflamark ýsu verði
41.390 tonn fyrir næsta fiskveiði-
ár, sem er 20% aukning frá fyrra
ári. Aflaregla ufsa gerir jafnframt
ráð fyrir 10% aukningu í aflamarki
fyrir næsta fiskveiðiár, úr 55.000
tonnum í 60.237 tonn. Aukninguna
má m.a. rekja til hins stóra 2012
árgangs. Árgangar gullkarfa hafa
verið með lakasta móti frá 2006
og af þeim sökum hefur hrygn-
ingarstofn minnkað lítillega. Sam-
kvæmt aflareglu verður heildarafla-
mark gullkarfa 50.800 tonn sem er
4% lækkun frá fyrra fiskveiðiári.
Samkvæmt samkomulagi milli Ís-
lands og Grænlands mun 90% eða
45.720 tonn koma í hlut Íslendinga.
Ráðgjöf fyrir grálúðu er óbreytt frá
fyrra ári eða 24.000 tonn. Af því
koma 13.536 tonn í hlut Íslendinga.
mm
Leggja til sex prósentustiga
aukningu þorskkvóta