Skessuhorn


Skessuhorn - 14.06.2017, Síða 9

Skessuhorn - 14.06.2017, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 14. júNÍ 2017 9 Umsóknarfrestur í almennt nám í Háskólagátt er til 15. júní en með áherslu á verslun og þjónustu til 31. júlí. Nánari upplýsingar á bifrost.is Mótaðu þína framtíð Háskólagáttin þjónar þeim sem fullnægja ekki formlegum inntökuskilyrðum háskóla og veitir undirstöðumenntun á framhaldsskólastigi. Háskólinn á Bifröst er í fararbroddi í fjarnámi en nám í Háskólagátt er í boði bæði í fjar- og staðnámi. Í Háskólagátt eru tvær námsleiðir; almennt nám og nám með áherslu á verslun og þjónustu. Nám með áherslu á verslun og þjónustu er fjarnám, annars vegar tveggja anna nám án kjarnagreina og hins vegar fjórar annir með kjarnagreinum. Mikil áhersla er lögð á hagnýtingu námsins. Systurfyrirtækin Skaginn hf., Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi og 3X Technology ehf. á Ísafirði mynda saman Skaginn 3X. Fyrirtækin framleiða og selja sérsniðnar hátæknilausnir fyrir matvælaiðnað á alþjóðamarkaði og er viðskiptavinina að finna víðsvegar um heiminn. Tæknistigið er hátt og starfsmenn eru rúmlega 180 talsins í starfsstöðvum sem eru um 14.000 m2 að stærð. Starfsemin hefur vaxið mjög síðustu misseri en frumkvöðla- og nýsköpunarandinn hefur viðhaldist allt frá fyrsta degi. Áhersla er enn sem fyrr lögð á að bjóða gæðavörur og ryðja braut nýrrar tækni sem færir viðskiptavinum og umhverfinu verulegan ávinning. Skaginn 3X hlaut nýlega Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Nýsköpunarverðlaun Íslands. Einnig kemur til greina að ráða verkamenn sem hafa reynslu af fyrrgreindum störfum. Í boði er góð vinnuaðstaða, lifandi starfsumhverfi og góður vinnuandi hjá spennandi nýsköpunarfyrirtæki. Einungis er um framtíðarstörf að ræða. Gert er ráð fyrir ráðningu sem fyrst. Upplýsingar um starfsemina má finna á www.skaginn3x.com. Vegna aukinna umsvifa fyrirtækjanna óskum við eftir að ráða til okkar vélvirkja, rafvirkja, stálsmiði og rafsuðumenn. Viltu vaxa með okkur? Nánari upplýsingar gefur Árni Ingólfsson í síma 861-3988 en umsóknir skulu berast á netfangið job@skaginn3x.com fyrir 18. júní nk. Á laugardaginn tók hestaleig- an Dalahestar til starfa í Búðar- dal. Fyrirtækið er með aðstöðu í gamalli hlöðu að Fjósum, í útjaðri þorpsins. Að Dalahestum standa Carolin Baare-Schmidt og Val- dís Gunnarsdóttir. Þær munu ann- ars vegar bjóða upp á samveru með hestunum í beitarhaganum, þar sem gestum gefst kostur á að láta teyma undir sér og hins vegar að fara í stutta reiðtúra. Meðal annars verða farnar um tveggja tíma lang- ar fjöruferðir. Þær ferðir munu taka mið af sjávarföllum, svo tímasetn- ingar verða breytilegar. Allar nán- ari upplýsingar er að finna á heima- síðunni www.dalahestar.is Á opnunardaginn var öllum íbú- um Dalabyggðar boðið að koma og kynna sér aðstöðuna og starfsem- ina. sm Fyrirtækið Dalahestar tekið til starfa Carolin Baare-Schmidt og Valdís Gunnarsdóttir. Bæði verður hægt að eiga samveru með hestunum en einnig að fara í reiðtúra. Minnum á óbreyttan skilafrest auglýsinga Auglýsingar í Skessuhorn þurfa að berast í síðasta lagi á hádegi á þriðjudögum á netfangið auglysingar@skessuhorn.is. Auglýsendum er einnig bent á heimasíðuna www.skessuhorn.is þar sem boðið er upp á helstu stærðir vefborða. Nánari upplýsingar í síma 433-5500.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.