Skessuhorn


Skessuhorn - 14.06.2017, Side 26

Skessuhorn - 14.06.2017, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 14. júNÍ 201726 Nú nýverið hóf sauðfjárbónd- inn Þóra Sif Kópsdóttir á Ystu- Görðum í Kolbeinsstaðahreppi að framleiða handverk undir merkinu Eldborgar Kind. Þóra Sif vinnur handverkið úr afurðum sauðkind- arinnar; spinnur ull, vinnur ýmis- legt úr hornunum og sútar gærur, svo eitthvað sé nefnt. úr hornun- um vinnur Þóra alls kyns hluti eins og t.d. skartgripi og lyklakippur en hún lærði að vinna úr hornunum hjá Páli og Rítu í Grenigerði, ofan við Borgarnes. „Ég hef í gegnum árin verið að viða að mér alls kyns þekkingu í hvernig megi fullnýta afurðir sauðkindarinnar í hand- verk. Ég hef smátt og smátt fikr- að mig áfram í hinum og þessum þáttum og hef framleitt ýmislegt. Eldborgar Kind er í raun afrakst- urinn af öllu því sem ég hef lært. Nú er það allt komið undir einn hatt og orðið að heild með nafni og lógói,“ segir Þóra en hún vakti nokkra athygli í vetur á Snapchat fyrir framleiðslu sína. „Fylgjend- um mínum á Snapchat fór nokk- uð ört fjölgandi þegar ég fór að sýna þegar ég súta gærur. Marg- ir höfðu ekki séð það gert áður og þótti fólki það nokkuð merki- legt. Nokkrir sögðu við mig að þeir hefðu ekki gert sér grein fyrir því hversu mikil vinna færi í hverja gæru.“ Leit nánast á sauðburðinn sem frí Þóra segir að framleiðslan hafi gengið mjög vel en hún var, þeg- ar blaðamaður ræddi við hana, í óðaönn að undirbúa sölubás sem hún var með um síðustu helgi á Blönduósi. „Mér finnst þetta alveg svakalega gaman og ég er með nóg að hugmyndum í kollinum; ég er bara rétt að byrja. Það er eiginlega verst að það eru ekki fleiri klukku- stundir í sólahringnum. Það er búið að vera nóg að gera að und- anförnu og maður leit hálfpartinn á sauðburðinn í vor sem frí,“ segir Þóra létt í bragði. Er ein af Sögufylgjunum Þóra er með mörg járn í eldin- um en auk Eldborgar Kindar og starfa sinna sem sauðfjárbóndi er hún það sem kallað er sögufylgja í félaginu Sagnaseiður. „Við erum hópur á sunnanverðu Snæfells- nesi sem köllum okkur Sögufylgj- ur og erum í félaginu Sagnaseið- ur. Sögufylgjur er fínna orð yfir kjaftakerlingar,” segir Þóra og hlær. „Við segjum ferðamönnum sögur sem við kunnum og þekkj- um af stöðunum í kringum okkur. Það er nóg að gera og það er bara gaman að því,“ segir Þóra að end- ingu. Áhugasömum er bent á að hægt er að skoða framleiðslu Þóru á Fa- cebook síðunni Eldborgar Kind og fylgjast með á Snapchat undir nafninu thorakops bþb/ Ljósm. Eldborgar Kind á Facebook Reynir að fullnýta afurðir af sauðkindinni með handverki Um síðustu helgi var Þóra Sif með sölubás á Prjónagleði 2017 á Blönduósi þar sem hún seldi vörur merkisins Eldborgar Kind. Þóra Sif vinnur meðal annars hálsmen og aðra skartgripi úr hornum sauðkinda sinna. Áhugi á að þreyta inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands hefur aukist mik- ið frá því í fyrra en 367 nemend- ur skráðu sig í prófið sem samsvar- ar 23% aukningu. Inntökuprófið fór fram í síðustu viku. Alls þreyttu 311 manns inntökupróf í læknis- fræði og 56 inntökupróf í sjúkra- þjálfun. Sama próf var lagt fyrir alla þátttakendur og þeir sem standa sig best á prófinu fá að skrá sig í nám- ið. Teknir eru inn 48 nemendur í læknisfræði og 35 í sjúkraþjálfun en fjöldinn miðast við afkastagetu sjúkrahúsanna við verklega þjálf- un nemenda. Í tilkynningu frá HÍ kemur fram að þeir sem fara í próf- ið, en komast ekki inn í Lækna- deild, geta skráð sig í aðrar deildir HÍ fram til 20. júlí. mm Sveitastjórnasmiðja Pírata fór fram á Akureyri um Hvítasunnuhelgina. Markmið smiðjunnar er að gefa Pí- rötum um allt land tækifæri til að hittast og hefja stefnumótunar- vinnu fyrir næstu sveitastjórnar- kosningar. „Það er stórkostlegt að sjá hvað það er mikill áhugi meðal félagsmanna af öllu landinu. Þegar við hófum undirbúninginn reikn- uðum við með því að hingað kæmu nokkrir fulltrúar úr hverju kjör- dæmi. Mér kom síðan skemmtilega á óvart að mæta yfir fjörutíu manns í morgun þegar fyrsta sveitastjórn- arsmiðja Pírata hófst. Ég vona inni- lega að þetta setji tóninn fyrir kom- andi sveitastjórnakosningar um allt land,“ sagði Halldór Arason, stjórn- armaður Pírata á Norðurlandi í til- kynningu. Píratar eru þriðji stærsti flokkur landsins samkvæmt nýjustu skoð- anakönnun Gallup. Flokkurinn stækkaði mikið fyrir síðustu alþing- iskosningar og eru Píratar nú með tíu þingmenn í stað þriggja á síð- asta kjörtímabili. Píratar eiga einn aðalmann í sveitarstjórn á lands- vísu, Halldór Auðar Svansson í Reykjavík. mm Píratar brýna sverðin fyrir komandi kosningar Aukinn áhugi á læknis- fræði og sjúkraþjálfun Næstkomandi laugardag, 17. júní, verður opnuð myndlistarsýn- ing í Listasal Stykkishólmskirkju, en salurinn var tekinn í notkun á síðasta ári. Það er Listvinafélag Stykkishólmskirkju sem sér um listviðburði í kirkjunni ár hvert og skipuleggur þessa sýningu. Tón- listarviðburðir hafa verið fastur liður í starfsemi félagsins allt frá því að kirkjan var vígð fyrir rúm- um 25 árum. Hafa fjölmargir tón- listarmenn í fremstu röð komið fram í kirkjunni í gegnum tíðina. Í fyrra var tekinn í notkun sýning- arsalur í safnaðarheimili kirkjunn- ar þegar sýnt var í samstarfi við Ljósmyndasafn Reykjavíkur ljós- myndir eftir Gunnar Rúnar Ólafs- son og vakti sú sýning mikla lukku. Í ár var ákveðið að leita til Harald- ar jónssonar myndlistarmanns um sýningu. Haraldur er sonur jóns Haraldssonar arkitekts kirkjunnar. Haraldur hefur nú unnið sýningu fyrir Listasalinn og verður hún opnuð á laugardaginn klukkan 17 og stendur yfir til 20. ágúst. Sýn- ingarsalurinn er opinn alla daga frá kl. 17-19 með örfáum undantekn- ingum vegna kirkjulegra athafna. Haraldur er fæddur árið 1961 og nam í MHÍ, Kunstakademie Düs- seldorf. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og samsýninga víða um heim frá árinu 1987. Hann er talinn einn af markverðari mynd- listarmönnum af yngri kynslóð- inni og var einn þeirra sem fjallað var um í myndlistarþáttum RúV, Opnun, í vetur. Sýningin ber heit- ið LITROF og þar kallast á ljós og skuggar og skynjun mannsins í náttúrunni. Tónlistarviðburðir Listvina- félagsins eru þegar komnir í gang þetta árið og standa út september. Hægt er að kynna sér viðburði í Stykkishólmskirkju á Facebook- síðu Listvinafélagsins og á stykk- isholmskirkja.is -fréttatilkynning Myndlistarsýning í Listasal Stykkishólmskirkju

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.