Skessuhorn


Skessuhorn - 19.07.2017, Síða 4

Skessuhorn - 19.07.2017, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 19. júlí 20174 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Björn Þór Björnsson bjorn@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Emilía Ottesen emilia@skessuhorn.is Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Kettirnir í sekkjunum Vonandi hafa allir reynt það einu sinni eða oftar að gera það sem kalla mætti góð kaup. Til dæmis að kaupa notaðan bíl fyrir lágt verð, bíl sem jafnvel entist eigandanum svo mánuðum eða árum skipti. Nú eða velja sérlega gott happrættismiðanúmer, miða sem eigendur vinna sífellt á fúlgur fjár (reyndar þekki ég engin slík dæmi). Miklu algengara hygg ég að fólk upplifi að hafa keypt köttinn í sekknum. Ég ímynda mér að slík hafi líðan þeirra verið sem keyptu fimm þúsund króna áskrift að sportrás Stöðvar 2 vegna þess að íslenski fjölbragðaglímukappinn Gunnar Nel- son var að slást við argentískan götustrák á sunnudagskvöldið. Þessir lukkulegu unnendur siðprúðrar íþróttar voru varla sestir, hvað þá búnir að opna popppokana, þegar búið var að blinda kappann með að pota í augu hans og slá hann svo í framhaldinu í rot. Þetta var svona „köttur í sekknum“ áskriftarkaup. jafnvel poppið bragðaðist illa! Sama kvöld og Nelson var rotaður eftir hálfa mínútu var ég í öðru verkefni. Þannig var að ég tók mig til og hugðist þrífa heimilisbílinn eins og ég geri reglulega á hverju ári. Bílinn þreif ég á þvottaplani í boði Olís. Finnst það hljóta að vera í lagi að slíta aðeins kústunum þeirra, í ljósi þess hversu duglegur ég er að kaupa af þeim eldsneyti fyrir 15% hærra verð en ég get keypt það í Costco. Nú, þegar ég var búinn að þvo burtu flugnalík og mávaskít af bílnum hugðist ég ryksuga hann að inn- an, einnig í boði Olís. Þá reyndist rygsugan sú biluð. Ég gafst ekki upp því bíllinn skyldi þrifinn. Ók sem leið lá á útsölustað N1 í sama kaup- stað. Ég byrjaði að gá að hvað bensínlítrinn kostaði þar. Geri það svona af gömlum vana núorðið. Er alltaf að bíða eftir því að þessir sem stilla verðið suðr´í Reykjavík vakni og reyni allavega að láta eins og þeir séu í samkeppni við ameríska kaupfélagið. En, verðið var það sama allsstaðar hjá Fákeppni ehf. Það sama gamla og góða. Þarna á bensínstöðvarplan- inu tók ég mikilvæga ákvörðun. Ég ætla að fjárfesta í hentugum brúsum undir eldsneyti. jafnvel kaupi ég mér svona olíukerru eins og ýtukarl- arnir notuðu í gamla daga þegar þeir fóru milli bæja til að slétta tún og komust ekki í olíubirgðir svo dögum eða vikum skipti. Þá get ég ekið með slíka kerru í eftirdragi suður í Garðabæ af og til og selt svo bensín ef svo ber undir. Það hlýtur allavega að koma að því að einhverjir fari að stunda slík viðskipti. En þegar hér var komið sögu átti ég enn eftir að ryksuga bílinn. En það kostar hjá N1! Það kostar hundrað krónur að nota þetta tæki í fjórar og hálfa mínútu. Þarna var mér eiginlega öllum lokið, Bleik brugðið og allt það. Búið er að breyta olíustöðvunum í illa lyktandi skyndibita steik- ingarhús, ekki lengur hægt að fá eldsneyti dælt á bílana og nú er annað hvort ekki hægt að ryksuga bílinn eða það kostar 1333 krónur klukku- stundin. Halló! Ég var ekki að leigja bíl, heldur aðgang að ryksugu! Ég fór að hugsa hvort þetta væri afleiðing af því að nú hafa lífeyrissjóðirnir keypt olíufélögin, eða hvort önnur ástæða er fyrir því að olíuverslun er orðin að steikhúsi og búið er að stela þjónustulundinni. Eru kannski líf- eyrissjóðirnir búnir að færast of mikið í fang að vera farnir að reka olíu- félög? Getur kannski verið að þeir séu ekki góðir í neinu? Með hlýhug var mér hugsað til þeirra löngu liðnu tíma þegar bílnum var rennt upp að dælum bensínstöðvanna, sérstaklega Hyrnunni í Borg- arnesi, út hljóp maður til að fylla á, tékkaði jafnvel á olíunni á mótorn- um í leiðinni, fyllti á rúðupissið eða mældi loftþrýstinginn í dekkjunum. Þessi breyting finnst mér allavega kalla á að Kári í Erfðagreiningu hefji tafarlaust rannsókn á af hverju íslenska þjónustulundin er svona hratt víkjandi gen í íslendingum. Magnús Magnússon Leiðari Veður fer batnandi um vestanvert landið eftir því sem líður á vikuna. Á föstudag og laugardag er spáð hægri norðlægri átt og að þurrt og bjart verði um allt vestanvert land- ið. Búast má við að hiti fari yfir tuttugu stigin í uppsveitum í Borg- arfirði, en þá verður skýjað og mun svalara á Norðurlandi eftir hita- bylgju sem þar gekk yfir um miðja þessa viku. Á sunnudag er útlit fyrir breytilega vindátt, úrkomulítið og hlýtt í veðri. mm Hlýtt um helgina Hitaspá fyrir laugardag. „Ef þú átt sumarbústað sem þú hef- ur í hyggju að selja þá skaltu gera það áður en þú hefur töku lífeyrirs. Söluhagnaður af sumarbústaðnum skerðir lífeyrisgreiðslur,“ segir í frétt á vefnum lifdununa.is. Vefn- um lifðu núna var komið á fót árið 2014. Markmið hans er að gera líf og störf þeirra landsmanna sem eru komnir um og yfir miðjan ald- ur sýnilegri en þau eru, auka um- ræðu um þau málefni sem tengjast þessu æviskeiði og lífsgæði þeirra sem eru komnir á þennan aldur. Um sölu sumarhúsa að ef viðkom- andi er í þeirri stöðu að vera líf- eyrisþegi og eiga sumarbústað sem hann eða hún vill selja, þá borgi sig að taka skerðinguna út á einu ári, það er að fá bústaðinn greiddan að fullu á einu ári. Að öðrum kosti skerði söluhagnaðurinn lífeyririnn jafn lengi og fólk er að fá bústaðinn greiddan að fullu. Almennt hefur sala á sumar- bústað þau áhrif að söluhagnað- ur verður til sem skilgreindur er sem fjármagnstekjur á skattfram- tali. Fjármagnstekjur hafa áhrif á réttindi hjá TR. „Það skiptir ekki máli hvernig greiðslur fyrir sum- arbústaðinn fara fram. Horft er á söluhagnaðinn sem verður til sam- kvæmt skattframtali þegar rétt- indi eru reiknuð út. Fjármagns- tekjur eru alltaf sameign hjóna og hafi t.d. sumarbústaður verið seldur og söluhagnaður myndast fyrir 10 milljónir króna teljast 5 milljónir fjármagnstekna á hvorn aðila um sig. Hægt er að dreifa söluhagnaði á tíu ár hjá TR en í flestum tilfellum kemur betur út að taka á sig skerð- ingu eitt ár vegna sölu á sumarbú- stað en það verður að meta hverju sinni,“ segir í svari frá TR sem vitn- að er til á vefnum lifdununa.is mm Eldra fólk hvatt til að selja bústaðinn áður en það fer á eftirlaun í byrjun ágústmánaðar 2016 var tekin fyrsta skóflustungan að nýju Amtsbókasafni og skólabókasafni í Stykkishólmi. Framkvæmdir hófust skömmu síðar, en byggingin rís við hlið grunnskólans. Húsið er rúm- ir 500 fermetrar að stærð, teikn- að af Arkitektastofunni OG. Það er Skipavík ehf. sem byggir og að sögn Sævars Harðarsonar, fram- kvæmdastjóra Skipavíkur, hefur verkið sóst vel. „Framkvæmdirn- ar ganga vel um þessar mundir og hafa reyndar gengið með eðlilegum hætti síðan þær hófust. Það er alltaf eitthvað sem kemur upp á, eins og gengur og gerist, en heilt yfir hef- ur gengið vel,“ segir Sævar í samtali við Skessuhorn. „Þessa dagana er verið að klára að glerja að utan og pússa að innan. Öll vinna við þau verk sem eftir á að gera er komin af stað. Undirverktakar eru komn- ir á svæðið í múrverkið, uppsetn- ingu á loftræstikerfi og fleira í þeim dúr. Fáir starfsmenn frá okkur eru við bygginguna sem stendur,“ bæt- ir hann við. Sævar vill ekki kveða svo fast að orði að framkvæmdir séu á loka- metrunum. „En það tekur allt enda og styttist óðum í að þetta klárist þó nokkuð sé eftir enn. Þó er ekki komin endanleg dagsetning á það hvenær við skilum verkinu af okk- ur,“ segir hann. Nóg að gera Sævar segir nóg við að vera hjá starfsmönnum Skipavíkur á öðr- um vígstöðvum. „Fljótlega hefjast framkvæmdir við raðhúsalegju við Móholt hér í Stykkishólmi, beint á móti leikskólanum. Við eigum von á að hefjast handa þar með haustinu. Síðan er meiningin að byggja hús við Aðalgötu, húsnæði sem Skipa- vík kemur til með að eiga og leigja út undir atvinnustarfsemi,“ segir hann. Þá vinnur hluti starfsmanna fyrirtækisins um þessar mundir að að Dröngum á Skógarströnd, þar sem verið er að breyta íbúðarhúsi í gistirými. „Síðan er alltaf nóg að gera í slippnum og í járninu. Það er búið að vera mjög gott það sem af er sumri. Vonum bara að þau hausti ekki snemma, eins og kerlingin sagði,“ segir Sævar léttur í bragði að endingu. kgk Bygging Amtsbókasafns gengur vel Nýtt húsnæði Amtsbókasafns og skólabókasafns í Stykkishólmi rís við hlið grunnskólans. Framkvæmdir hafa gengið vel að sögn Sævars Harðarsonar, framkvæmdastjóra Skipavíkur.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.